Fréttablaðið - 09.11.2019, Qupperneq 10
BANDARÍKIN Æðstu ráðamenn í
ríkisstjórn Bandaríkjanna hugðust
segja af sér til að mótmæla hegðun
og framgöngu Donalds Trump
Bandaríkjaforseta. Þetta kemur
fram í nýrri bók sem skrifuð er af
nafnlausum höfundi sem ku vera
núverandi eða fyrrverandi innan-
búðarmaður í Hvíta húsinu.
Höfundurinn er sá sami og skrif-
aði nafnlausa grein í The New York
Times í fyrra sem olli nokkru fjaðra-
foki vestanhafs. Var þar farið yfir
hvernig hópur ráðamanna í innsta
hring hefði tekið sig saman með það
að markmiði að koma í veg fyrir að
tilfinningar forsetans sköðuðu hags-
muni Bandaríkjanna.
Bókin heitir Viðvörun, eða A
Warning, og kemur út þann 19. nóv-
ember. Dagblaðið The Washington
Post er komið með eintak og voru
nokkrar blaðsíður úr bókinni opin-
beraðar í þætti Rachel Maddow á
sjónvarpsstöðinni MSNBC.
Stephanie Grisham, upplýsinga-
fulltrúi Hvíta hússins, segir bókina
lygar. „Alvöru höfundar hafa sam-
band við þá sem þeir skrifa um til
að fá staðreyndir á hreint. Þessi ein-
staklingur er í felum, sem gerir það
ómögulegt,“ segir í bréfi Grisham til
fjölmiðla. „Þessi heigull setti ekki
nafn sitt á bókina því hann veit að
bókin er ekkert nema lygar.“
Í bókinni segir að hópurinn, sem
kennir sig við stöðugleika, hafi
alvarlega íhugað að segja af sér á
sama tíma til að mótmæla hegðun
Trumps sem forseta og „koma í veg
fyrir að hjólin rúlli undan bílnum“
eins það er orðað í bókinni. Hóp-
urinn hafi svo hætt við þar sem
aðgerðin gæti grafið undan stöðug-
leika í landinu. Viðurkennir höf-
undurinn að hópurinn hafi aldrei
náð að hafa nein áhrif á forsetann.
Meðal þess sem kemur fram er að
þegar verið var að ræða mikilvæg
mál, jafnvel upp á líf og dauða, væri
forsetinn aldrei búinn að undirbúa
sig. Aðstoðarmenn forsetans hefðu
bent ráðherrunum á að fá Trump
aldrei löng minnisblöð í hendur því
„hann mun aldrei lesa þau“. Það hafi
leitt til þess að öll mál eru sett upp í
glærusýningar.
„Það var helst PowerPoint því
hann vill læra með myndum,“ segir
höfundurinn um Trump. Síðar hafi
komið beiðnir um að stytta glæru-
sýningarnar og bæta við myndum
því forsetinn ætti erfitt með að
halda athygli. Allir sem gæfu skýrslu
væru svo beðnir um að koma aldrei
með meira en þrjá meginpunkta,
hvort sem það væri um yfirlit fjár-
mála eða stöðu hernaðarmála.
Í raun snerist upplýsingagjöf
til forsetans um að mæta á fund
og endurtaka sama hlutinn aftur
og aftur þangað til hann næði því
sem þyrfti að gera. Í eitt skipti hafi
Trump svo fengið ítarlegt minnis-
blað áþekkt þeim sem forverar hans
fengu í hendur. „Hvað í andskot-
anum er þetta?“ mun Trump hafa
spurt. „Þetta eru bara orð. Fullt af
orðum. Þau segja mér ekki neitt.“ Er
forsetanum lýst sem „tólf ára barni
í f lugturni sem ýti handahófskennt
á takka“.
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna sendi bréf til útgefanda bókar-
innar á mánudaginn með beiðni um
upplýsingar um nafn höfundarins
þar sem möguleiki væri á að verið
væri að brjóta samningsbundinn
trúnað. arib@frettabladid.is
Ráðherrar ætluðu að ganga út
ÁSTRALÍA Yfirvöld í Ástralíu segja
engin fordæmi fyrir þeim fjölda
skógarelda sem geisa nú í Nýja
Suður-Wales. Í gær loguðu meira
en 90 skógareldar í fylkinu. Þar af
eru 17 eldar metnir mjög alvarlegir.
Margir eldanna geisa á þurrka-
svæðum þar sem hitinn fer upp í
35 gráður. Kröftugar vindhviður
sjá svo um að dreifa eldinum.
Fregnir hafa borist af fólki sem
fast er á heimilum sínum á eld-
svæðum. Hafa yfirvöld hvatt fólk
sem er lokað inni á svæðum vegna
eldanna til að byrgja sig af í stað
þess að reyna að f lýja, það sé of
seint.
„Við höfum aldrei séð svona
mikla elda á mörgum stöðum
á sama tíma,“ sagði Shane Fitz-
simmons, slökkviliðsstjóri á svæð-
inu, við fjölmiðla í gær. „Við erum
að feta ótroðnar slóðir.“
Í gærmorgun geisuðu 96 eldar
í fylkinu. Þá var ekki búið að ná
tökum á 57 eldum og 17 voru metn-
ir mjög alvarlegir. Frá því að byrjaði
að vora í september hefur slökkvi-
lið tekist á við mörg hund ruð
skógarelda í Ástralíu, f lesta í Nýja
Suður-Wales. Tveir létust á heimili
sínu í eldunum í október. Í síðustu
viku brann tvö þúsund hektara
griðasvæði fyrir kóalabirni, er ótt-
ast að mörg hundruð þeirra hafi
orðið eldinum að bráð. – ab
Fordæmalaus
fjöldi skógarelda
Gervihnattarmynd af eldum við
Yuraygir-þjóðgarðinn í Nýja Suður-
Wales. NORDICPHOTOS/GETTY
Demókratar á bandaríska þinginu og innanbúðarmenn í Hvíta húsinu
sækja nú hart að Donald Trump Bandaríkjaforseta. NORDICPHOTOS/GETTY
Hópur æðstu ráða-
manna í Bandaríkj-
unum ætlaði að segja
af sér til að mótmæla
framgöngu Trumps
Bandaríkjaforseta. Ítar-
legar lýsingar á hegðun
forsetans er að finna í
nýrri bók. Hvíta húsið
segir bókina lygar.
ANNMARKAR VIÐ
KAUP RÍKISINS Á
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU
Málþing á vegum Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu,
Læknafélags Reykjavíkur, Félags sjúkraþjálfara, Samtaka
heilbrigðisfyrirtækja og Tannlæknafélags Íslands.
Þriðjudaginn 12. nóvember kl. 13.30
á hótel Reykjavík Natura
DAGSKRÁ
13.30 - 13.40 Setning málþings
Pétur Magnússon, formaður Samtaka
fyrirtækja í velferðarþjónustu
og forstjóri Hrafnistuheimilanna
13.40 - 14.10 Starfsumhverfi þjónustuveitenda í
heilbrigðisþjónustu – ný skýrsla KPMG
Svanbjörn Thoroddsen, stjórnarformaður
KPMG á Íslandi
14.10 - 14.25 Lögin um opinber innkaup og þjónusta
í almannaþágu sem ekki er af
efnahagslegum toga
Dögg Pálsdóttir, hæstaréttarlögmaður
14.25 - 14.40 Samningagerð við Sjúkratryggingar
Íslands
Eybjörg Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu
14.40 - 14.55 Hvað á ríkið að kaupa? Þarfagreining og
forgangsröðun
Kristján Guðmundsson, formaður
samninganefndar Læknafélags Reykjavíkur
14.55 - 15.10 Félag sjúkraþjálfara og SÍ – saga, reynsla
og staða
Haraldur Sæmundsson, formaður samninga-
nefndar sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara
15.10 - 15.25 Tannlæknafélag Íslands – samstaða og
samvinna
Elín Sigurgeirsdóttir, fv. formaður
Tannlæknafélags Íslands
Að framsögum loknum verða pallborðsumræður.
Fundarstjóri: Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri
Samtaka verslunar og þjónustu.
Málþingið verður haldið á hótel Reykjavík
Natura, þriðjudaginn 12. nóvember nk.
kl. 13.30-16.00.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.
Pétur Magnússon
Kristján
Guðmundsson
Elín SigurgeirsdóttirHaraldur
Sæmundsson
Eybjörg HauksdóttirSvanbjörn
Thoroddsen
Dögg Pálsdóttir
Andrés Magnússon
ENGLAND Breska lögreglan hefur
gefið upp nöfn þeirra 39 einstaklinga
sem fundust látnir í vöruflutningabíl
í Essex á Englandi þann 23. október.
Meðal látinna eru tíu ungmenni, þar
af tveir fimmtán ára gamlir drengir.
BBC greinir frá.
Rúmar tvær vikur hefur tekið að
bera kennsl á hin látnu. Aðstoðar-
lögreglustjórinn í Essex, Tim Smith,
sagði lögregluna hafa unnið hörðum
höndum að því að bera á þau kennsl.
„Við teljum það mikilvægan þátt í
rannsókn málsins að veita áhyggju-
fullum fjölskyldum fórnarlambanna
svör. Það hefur verið í forgangi hjá
okkur að bera kennsl á hin látnu,“
segir Tim.
Fingraför, DNA-sýni, tannlækna-
skýrslur og sérkenni líkt og húðflúr
og ör voru notuð til að bera kennsl á
fórnarlömbin.
Fólkið var allt frá Víetnam og í leit
að betra lífi á Englandi. Hin 26 ára
gamla Pham Thi Tra My sendi föður
sínum smáskilaboð nóttina áður
en fólkið fannst þar sem hún sagði
honum að hún næði ekki andanum
og að „ferðin hefði mistekist“.
Fjöldamargir hafa verið hand-
teknir í tengslum við málið. Einn á
Englandi, annar á Írlandi og ellefu í
Víetnam. Tveggja írskra manna er
enn leitað. –bdj
Tveir fimmtán
ára drengir
meðal látinna
Meðal látinna eru tíu
ungmenni, þar af tveir
fimmtán ára gamlir drengir.
9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
3
-2
4
8
4
2
4
3
3
-2
3
4
8
2
4
3
3
-2
2
0
C
2
4
3
3
-2
0
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
0
4
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K