Fréttablaðið - 09.11.2019, Side 30
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Hjónin Sólveig Grétarsdóttir og Hörður Þór Harðarson keyptu verslunina í sumar.
Sólveig hefur starfað þar frá
árinu 2016. „Það er nóg af nýtísku
verslunum í Reykjavík en þessi
verslun er gimsteinn sem þarf að
hlúa að. Við ætlum okkur að vera
áfram á Laugaveginum þrátt fyrir
að Reykjavíkurborg geri okkur
það erfitt,“ segir Sólveig sem fann
vel fyrir samdrætti í sölu í sumar
þegar bæði Laugavegur og hliðar-
götur voru lokaðar. „Rótgrónir
viðskiptavinir sögðust ekki treysta
sér niður í miðbæ vegna lokunar
gatna,“ segir hún og bætir við að
núna sé að hefjast skemmtilegur
tími með jólainnkaupum.
Sólveig bendir á að til þess að
hafa blómlegan miðbæ þurfi
að vera góðar verslanir og góð
aðkoma. „Íslendingar þurfa að
vera duglegri að koma í miðbæinn,
ekki bara á kvöldin. Það væri svo
sorglegt ef gamlar og fallegar versl-
anir þyrftu að leggja upp laupana,“
segir hún.
Frægir í glugganum
Sólveig hefur bryddað upp á þeirri
nýjung í búðinni að láta ljósmynda
þekkta Íslendinga í herrafatnaði
frá Guðsteini og myndirnar hafa
verið settar upp í glugga verslunar-
innar.
„Þetta hefur vakið ómælda
ánægju hjá vegfarendum sem
staldra við og taka myndir,“ segir
hún. „Ég fékk þessa hugmynd
haustið 2016 og við fengum Ástu
Kristjánsdóttur ljósmyndara í
lið með okkur. Í fyrstu mynda-
syrpunni voru Guðmundur Ingi
Þorvaldsson, Theódór Júlíus-
son, Kristinn Jónsson og Samúel
Aron. Í þeirri næstu leituðum
við til söngvara og það lukkaðist
frábærlega. Í þeirri myndasyrpu
voru Megas, Ragnar Bjarnason og
Emmsjé Gauti.
Bæði Íslendingar og erlendir
ferðamenn hafa staðið fyrir utan
gluggann og virt fyrir sér mynd-
irnar. Ferðamennirnir hafa komið
í búðina og spurst fyrir um þessa
menn á myndunum sem er mjög
skemmtilegt.
Í næstu viku er komið að þriðju
myndasyrpunni sem verður ekki
síður flott. Þá koma í gluggann rit-
höfundarnir Hallgrímur Helgason,
Sigurjón Birgir Sigurðsson, Sjón,
og Ragnar Helgi Ólafsson. Það
verður spennandi að sjá hvaða við-
brögð þeir fá,“ segir Sólveig.
Virðing og góð þjónusta
Þegar Sólveig er spurð hvers vegna
hún vildi eignast þessa gömlu
verslun, svarar hún: „Mér þykir
vænt um þessa verslun og þykir
starfið mjög skemmtilegt. Ég hef
alltaf verið miðbæjarkona og
fannst tækifæri í að fara í rekstur
hér á Laugaveginum. Ég ber mikla
virðingu fyrir Verslun Guðsteins
sem hefur alltaf lagt áherslu á
gæðafatnað fyrir karlmenn og
selur hágæða vörur.
Ég ætla að halda í gamla stílinn,
halda fallegu innréttingunum
þótt smávægilegar breytingar hafi
verið gerðar. Ég opnaði glugga
baka til sem gefur meiri birtu inn
í búðina og léttir andrúmsloftið.
Einnig máluðum við búðina og
ég hef komið inn með persónu-
lega muni. Við viljum taka búðina
skrefinu lengra en þó hægt og
rólega. Ég horfi til fallegu, gömlu
eðalherrafataverslananna í
London sem eiga mikla sögu og
leggja ríka áherslu á persónulega
þjónustu. Ég vil að viðskiptavinum
þyki þeir vera að koma inn í stofu
þar sem er þægilegt og rólegt and-
rúmsloft.
Kynslóð eftir kynslóð
Sólveig hefur frá því hún hóf störf
hjá Guðsteini lagt áherslu á að
höfða til yngri herra jafnt sem
þeirra eldri með breiðari fatalínu.
„Við höldum tryggð við okkar
fastakúnna og höldum í þau merki
sem hér hafa verið lengi en erum
að bæta við nýjum merkjum sem
höfða til yngri karlmanna. Hér
verða áfram hinar gríðarlegu
vinsælu Meyer buxur en margir
koma í búðina og kaupa þær aftur
og aftur. Þeir þurfa ekki lengur
að máta heldur biðja bara um
ákveðna stærð. Markmið okkar er
að þjónusta kynslóð eftir kynslóð.
Eldri karlmenn í dag eru með-
vitaðir um tísku og vilja vera vel
klæddir og smart.“
Jólabúðin
Sólveig segir að Verslun Guðsteins
sé jólabúðin því þangað leita
margar konur að jólagjöfum.
„Peysur, náttföt, skyrtur, bindi
eða sokkar, allt eru þetta vinsælar
gjafir fyrir herra. Við erum með
mikið úrval af fallegum og góðum
sokkum jafnt fyrir töffara sem
lúna fætur. Einnig dýrari gjafir
eins og vandaða frakka. Ekki má
gleyma sixpensurum og höttum
en slíkar vörur hafa alltaf verið
vinsælar hjá okkur.
Síðan hafa konur komið hingað
til að kaupa sér trefla eða peysur
fyrir sjálfar sig. Þær eru líka hrifn-
ar af þessari vöru. Mikil áhersla er
lögð á vandaðan fatnað á hag-
stæðu verði frá góðum þýskum,
dönskum, ítölskum og enskum
framleiðendum,“ segir hún.
„Verslun Guðsteins hefur alltaf
verið jólaverslun með frábærar
jólagjafir fyrir soninn, eiginmann-
inn, kærastann eða afann. Við
höfum lagt áherslu á að hafa
vandaðan herrafatnað fyrir allan
aldur.“
Verslunin hefur lengi boðið
úrval jakkafata, stakra jakka og
annan fatnað frá þýska merkinu
Digel en fyrir rúmum tveimur
árum fóru þeir að framleiða mjög
flotta línu af skóm sem núna er
hægt að fá hjá okkur,“ segir Sólveig
og bætir við að veitt sé persónuleg
þjónusta og afgreiðslufólk aðstoði
herrana við val á jakkafötum eða
öðru því sem þá vanhagar um.
Setur svip á Laugaveginn
Verslun Guðsteins Eyjólfs-
sonar hefur verið í sama húsinu
að Laugavegi 34 frá árinu 1929
en hún var fyrst opnuð árið 1918.
Guðsteinn lét sjálfur byggja húsið
á Laugavegi en það hefur vakið
athygli fyrir glæsileika. Utan á
húsinu er mynd sem margir kann-
ast við en þar er sýnt hvernig binda
á bindishnút. Myndin er orðin
eitt af einkennum verslunarinnar
og ferðamenn stoppa gjarnan við
hana og taka myndir.
Í vinnslu er endurgerð á heima-
síðu Guðsteins og netverslun sem
Sólveig vonast til að geta opnað
eftir áramótin. Þá getur hún
þjón ustað allt landið á einfaldan
hátt og einnig þá sem eiga erfitt
með gang og leggja ekki í að fara á
Laugaveginn.
Þórir Svan Árnason er hér til vinstri með þeim Herði og Sólveigu. Þórir hefur lengi unnið í versluninni og þekkir
föstu kúnnana vel og veit hvað þeir vilja. Þórir mun standa vaktina áfram með nýjum eigendum í versluninni.
Hvernig á að binda bindishnút. Þessi mynd á veggnum hjá Guðsteini vekur
mikla athygli vegfarenda og er mikið mynduð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Í annarri myndasyrpunni sem Ásta Kristjánsdóttir tók fyrir Verslun
Guðsteins sitja þeir fyrir Emmsjé Gauti, Ragnar Bjarnason og Megas.
Þessir sátu fyrir í fyrstu myndasyrpu Verslunar
Guðsteins. Hér eru Theódór Júlíusson, Guð-
mundur Ingi Þorvaldsson og Samúel Aron.
Hallgrímur Helgason situr fyrir í nýjustu
myndaseríu Verslunar Guðsteins.
Ragnar Helgi Ólafsson rithöfundur er í nýju
seríunni fyrir Verslun Guðsteins.
Sjón er glæsilegur í jakkafötum frá Verslun
Guðsteins. MYNDIR/ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
9
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
3
-0
6
E
4
2
4
3
3
-0
5
A
8
2
4
3
3
-0
4
6
C
2
4
3
3
-0
3
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K