Fréttablaðið - 09.11.2019, Page 32

Fréttablaðið - 09.11.2019, Page 32
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Það hafa orðið hraðar breytingar á fasteignamarkaðnum á síkjum Amsterdam í Hollandi. Árum saman hafa húsbátarnir verið ódýr húsakostur í borg með hátt fast- eignaverð en bara á síðustu fimm árum hefur verðið hækkað um 30 til 40 prósent og í dag er það efnað fólk með áhuga á nýrri hönnun, þægindum og sjálf bærni sem er að taka sér bólfestu á síkjum borgar- innar. Christopher F. Schuetze fjallaði um þessar breytingar við New York Times á dögunum. Árið 1999, þegar Karen Bosma flutti bátinn sinn fyrst til Borneo- kade, rétt norðaustan við miðborg Amsterdam, samanstóð hverfið aðallega af bryggjum og van- nýttum vöruhúsum. „Þá var þetta fyrir fátæka,“ segir hún. „Margir listamenn bjuggu í bátum.“ Á síðustu tuttugu árum hafa Karen og eiginmaður hennar svo alið upp tvo syni í bátnum sínum, sem er 25 metra langt vöruflutn- ingaskip frá 1912 sem búið er að taka vélina, eldsneytistankana og lestina úr. Rétt hjá skipi Karenar liggur skipið B18, 40 metra langt glæsi- hýsi á tveimur og hálfri hæð sem inniheldur yfir 280 fermetra íbúð. „Þetta þarf að vera skip að utan og hús að innan,“ segir Gijs Haver- kate, sem bjó skipið til og býr á því með fjölskyldu sinni. Hann er hönnuður og vonast til að bátur- inn hans verði öðrum innblástur til að byggja á vatninu. Hann rekur fyrirtækið UrbanShips, sem byggir sérhannaða húsbáta sem líta út eins og skip. Það eru þó ekki bara fínni skip sem útskýra þá miklu hækkun sem hefur orðið á fasteignaverði í síkjunum, heldur hefur bryggju- pláss líka hækkað mjög mikið Lúxus að búa á síkjunum Húsbátar á síkjum Amsterdam hafa lengi verið tiltölulega ódýr staður til að búa á í borg með hátt fasteignaverð. En á síðustu árum hefur þetta breyst og nú sækir efnað fólk í síkin. Í Amsterdam eru 165 síki og samanlögð lengd þeirra er yfir 100 kílómetrar. Á þeim eru um 2.500 húsbátar. Hluti síkjanna í miðborginni hafa verið á heimsminjaskrá UNESCO síðan 2010. Síðustu fimm ár hefur fasteignaverð á síkjum Amsterdam hækkað um allt að 40 prósent. Áður fyrr bjuggu fátækir á síkjunum. NORDICPHOTOS/GETTY Áður fyrr voru síkin full af vinnubátum sem hafði verið breytt, en nú er sífellt meira um fljótandi hús. Það getur verið dýrt og erfitt að koma sér fyrir á síkj- unum en það hefur samt líka ýmsa spennandi kosti. í verði. Týpískt bryggjupláss á síkjum Amsterdam getur kostað rúmlega 62 milljónir króna, en það er breytilegt eftir staðsetningu og stærð. Í sumum tilvikum sitja hins vegar eldri og óuppgerð skip í þessum plássum sem eru kannski minna en þriggja milljóna króna virði. Fljótandi hús, ekki bátar Það sem virðist þó skipta fólk meira máli en verð á bryggju- plássum er arkitektúr húsbátanna. Áður fyrr voru bryggjuplássin fyllt vinnubátum sem hafði verið breytt, en nú eru sífellt f leiri pláss skipuð fljótandi húsum sem eru hönnuð til að líta út eins og skip, en hafa ekkert af búnaðinum sem þarf til siglinga. Þessi hús eru betur einangruð en bátar og bjóða upp á betri nýtingu á plássi og orku. Skip Bobs van Wely, AM 58, er gott dæmi um möguleikana sem eru fólgnir í að endurhanna bát sem heimili fyrir fjölskyldu. Skipið er 35 metra langt og var áður tog- ari. Til að nýta bryggjuplássið sem best var ákveðið að lengja skipið um rúmlega níu metra og svo var allt tekið úr skipinu sem hafði ekki notagildi á nútíma heimili. Bob van Wely er arkitekt og hann breytti stýrishúsinu í skrifstofu og lestinni í rúmgóða stofu sem hefur að geyma píanó. Stefnið er svo yfir- byggt og þar er gestaherbergi. Báturinn er kyntur með hita- dælu og sólarsellum og það er stór hitari í eldhúsinu sem heldur her- bergjum heitum á veturna og hitar vatn sem vermir gólfið. „Það er hlýtt og notalegt hér, líka á veturna,“ segir Bob, sem flutti um borð með maka sínum og fjórum börnum þeirra á síðasta ári. „Maður getur haldið áfram að búa í borginni, en maður er ekki lengur í þrengslum.“ Eftir að hann lauk breytingun- um á bát sínum hefur Bob sérhæft sig í húsbátum sem arkitekt. Erfitt að komast að Húsbáturinn var ódýrari kostur en hús fyrir Bob, en það er að mörgu leyti erfiðara og flóknara að koma sér upp heimili á síkjunum en í hefðbundnari húsakynnum. Bátar sem eru á síkjunum hafa varanlegt leyfi til að leggjast að bryggju og það er selt með bátunum. Eina leiðin til að flytja nýjan bát í síkin er ef einhver sem á bát ákveður að selja bryggjuplássið og flytja þann gamla úr borginni eða selja hann í brotajárn. Borgar- yfirvöld hafa líka flóknar reglur um stærð, stíl og hönnun bátanna og þær breytast með árunum og eru ólíkar milli síkja. Eini hol- lenski bankinn sem hjálpar fólki að fjármagna húsbátakaup lánar líka bara fyrir bátum, en ekki bryggjuplássum. Það er líka svo gríðarlegur fjöldi báta á síkjum Amsterdam að það getur tekið mörg ár að bíða eftir að pláss losni, ef maður vill ekki kaupa bát til að fá pláss. Af ýmsum ástæðum eru margir sem nota eigið fjármagn og það stuðlar að því að í auknum mæli er það efnað fólk sem býr á síkjunum. En þrátt fyrir að þetta sé erfitt og dýrt sjá fáir eftir því að taka sér bólfestu á síkjunum í þessari fal- legu og skemmtilegu borg, sem er umkringd iðandi mannlífi og laus við þrengslin sem einkenna íbúðir í miðborg Amsterdam. Opið alla daga vikunnar frá kl. 11:00 - 22:00 Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi www.kinahofid.is l Sími 554 5022 TILBOÐ SÚPA OG FJÓRIR RÉTTIR Kjúklingur í karrýsósu Núðlur með grænmeti Djúpsteiktar rækjur með súrsætri sósu Lambakjöt í piparsósu Tekið með heim 1.890 kr. (á mann) Borðað á staðnum 2.200 kr. (á mann) Frábær hóptilboð Sjáðu öll tilboðin okkar á www.kinahofid.is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 0 9 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 2 -F 3 2 4 2 4 3 2 -F 1 E 8 2 4 3 2 -F 0 A C 2 4 3 2 -E F 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 0 4 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.