Fréttablaðið - 09.11.2019, Page 34

Fréttablaðið - 09.11.2019, Page 34
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Singles’ Day er hátíð þeirra sem vilja hafa það kósí á aðventunni, vera snemma í jólainnkaupunum og spara sér stórfé,“ segir Brynja Dan Gunn- arsdóttir, forsprakki netútsölu- dagsins Singles’ Day á Íslandi. „Ég hratt Singles’ Day af stað hér á landi árið 2014 því mér fannst ástæða til að kynna þennan frábæra dag fyrir Íslendingum. Hann hefur síðan vaxið og dafnað með hverju árinu sem líður og sífellt f leiri netverslanir stökkva á vagninn. Það er svo óneitanlega gaman þegar kaupmenn úr öllum áttum og í ólíkum verslunarrekstri geta verið vinir í einn dag og gert dásemdum netverslana hátt undir höfði,“ segir Brynja kát og full til- hlökkunar fyrir komandi Singles’ Day. Stórútsöludagur heimsins Nafngiftin Singles’ Day er upp- runnin í Kína. Þar í landi er 11. nóvember í hávegum hafður sem Dagur einhleypra því dag- setningin 11.11. samanstendur af tölustafnum einum (1), sem vísar til þess að standa einn á eigin fótum og vera stoltur af því. „Dagur einhleypra fékk nýja merkingu árið 2013 þegar kín- verska stórfyrirtækið Alibaba, sem er án efa stærsti netverslunarrisi heims, ákvað að gera daginn að stórútsöludegi netverslana þar í landi. Það var gert til að koma jóla- versluninni af stað og sem mótsvar við stórútsöludögunum Black Friday og Cyber Monday,“ útskýrir Brynja um tilurð Singles’ Day sem nú teygir anga sína um allan heim. „Fyrir netverslanir á Íslandi var annaðhvort að hoppa á banda- ríska Cyber Monday-vagninn eða kínversku Singles’ Day-kerruna, sem varð úr, enda víðfræg orðin um víða veröld. Þannig seldi Ali- baba fyrir 17,8 milljarða Banda- ríkjadala á Singles’ Day í fyrra en aðeins 3,34 milljónir dala á Black Friday. Það segir sitt um þetta risa- stóra og viðskiptavæna fyrirbæri sem Íslendingar geta nú tekið þátt í og nýtt sér hér heima.“ Afslættir sem um munar Í árdaga netverslunar voru lands- menn hikandi við að gefa upp kreditkortaupplýsingar á netinu. „Nú á dögum er það óþarfa hræðsla og löngu búið að sann- reyna að kortaviðskipti á netinu eru örugg. Flest kort eru tryggð ef eitthvað óeðlilegt kemur upp á,“ segir Brynja sem í upphafi vildi sjá Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is hvort Singles’ Day kæmi íslenskum netverslunum á flug eins og annars staðar í heiminum. „Ég ákvað því að vekja athygli á þessum degi hér heima til að sjá hvort netverslun Íslendinga færi ekki á skrið. Sú varð raunin enda er þetta stórskemmtilegur dagur fyrir bæði verslanir og viðskipta- vini þeirra og léttir mikið undir í jólastressinu,“ segir Brynja og víst er að bæði íslenskar netversl- anir og íslenskir neytendur tóku Singles’ Day fagnandi. „Viðtökurnar urðu fljótt ótrú- lega góðar og ég hef ekki heyrt neitt nema gott frá þeim net- verslunum sem tekið hafa þátt. Oftar en ekki hefur Singles’ Day reynst þeirra stærsti söludagur á árinu. Þetta er líka afsláttur sem um munar og telur vel þegar fólk þarf að kaupa margt og mikið fyrir jólin,“ upplýsir Brynja. Hagstæð jólainnkaup heima Singles’ Day er hvalreki fyrir þá sem vilja sleppa við langar bið- raðir í jólaversluninni, tímafrekan umferðarþunga og ys og þys í aðdraganda jóla. „Það er þægilegt að geta slakað á heima í stofu, tyllt sér upp í sófa með malt, appelsín og smákökur, komast í jólaskap og skoða sig um í glæsilegum netverslunum sem bjóða fádæma flottan varning á miklum afslætti á Singles’ Day. Langflestir nota þennan dag til að minnka jólastressið, klára að kaupa flestar ef ekki allar jóla- gjafirnar og fá þær sendar heim, jafnvel innpakkaðar með slaufu,“ segir Brynja sem hefur nýtt sér það óspart í gegnum árin að versla á netinu. „Við erum jú öll meðvituð um ástandið í heiminum og allir reyna að minnka við sig og kaupa minna. Við gefum þó enn jóla- gjafir og þá er frábært að geta gert það á sem hagkvæmastan hátt fyrir budduna, draga úr mengun í umferðinni, forðast heilsuspill- andi streituvalda, velja vörur sem mæta kröfum okkar um vistvænni lífsstíl og kaupa eitthvað vandað og sem okkur vantar í raun og veru. Mig bráðvantar til dæmis ryksugu og þá er upplagt að nýta sér tilboðin á Singles’ Day,“ segir Brynja sem keypti sér síðast sjón- varp í vefverslun. „Þá fann ég sjónvarp á ómót- stæðilegu tilboði og ákvað um leið að kaupa í matinn á netinu, en það fágætasta sem ég hef keypt á netinu er sennilega Vince Camuto- ferðataska sem ég datt niður á í Flórída þegar ég var þar að vafra um á vefnum eitt kvöldið. Uppá- halds netverslanir mínar í heim- inum eru svo líklega ferðaskrif- stofur, Dohop eða annað í þeim dúrnum,“ segir Brynja hress. Hún hvetur sem flesta til að not- færa sér stórafslættina sem bjóðast á Singles’ Day hér heima enda sparar það umtalsverð fjárútlát á dýrum árstíma. „Best er að ríghalda í Singles’ Day-blaðið, nýta sér tékklistann og skipuleggja sig sem best. Á miðnætti á sunnudaginn, þegar klukkan slær tólf og dagsetningin breytist í 11.11. fer maður inn á 1111.is og skoðar hvaða fyrir- tæki eru með, hvað þau bjóða og á hvaða afslætti. Þá er auðvelt að smella á hvert fyrirtæki fyrir sig og vefsíðan flytur þig sjálfkrafa á viðkomandi síðu þar sem hægt er að gera bestu kaup ársins og undir- búa jólin heiman úr stofu,“ segir Brynja. Munið vefgáttina, 1111.is, sem gal- opnar fyrir Singles’ Day-tilboðin á miðnætti 11. nóvember. Brynja Dan segir sérlega huggulegt að geta klárað hagstæð jólainnkaup á netinu heiman úr stofu. MYND/ALDÍS PÁLS Singles’ Day er hátíð þeirra sem vilja hafa það kósí á aðventunni, vera snemma í jólainnkaup- unum og spara sér stórfé. Á miðnætti á morgun, þegar dagsetningin breytist í 11. nóvember, fer maður á 1111.is til að gera bestu kaup ársins og undirbúa jólin heiman úr stofu. Innkaupa- listi • Fyrir hana • Fyrir hann • Fyrir þau • Barn 1 • Barn 2 • Barn 3 • Barn 4 • Afi • Amma • Til mín • Óskalisti 1 • Óskalisti 2 • Óskalisti 3 2 KYNNINGARBLAÐ 9 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RSINGLES’ DAY 0 9 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 3 -3 D 3 4 2 4 3 3 -3 B F 8 2 4 3 3 -3 A B C 2 4 3 3 -3 9 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 0 4 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.