Fréttablaðið - 09.11.2019, Side 40
Suzuki bílar • Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • 568 5100
Starfsmaður óskast í
varahlutadeild Suzuki!
Leitum að vinnusömum, jákvæðum og metnaðarfullum
einstakling í varahlutadeild Suzuki.
Hæfniskröfur:
Almennur áhugi og þekking á bílum eða reynsla sem nýtist
í starfi og viðkomandi þarf að vera íslenskumælandi.
Um er að ræða fullt starf og óskað er eftir því að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá fyrir
28. nóvember á netfangið varahlutir@suzuki.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
Álftanesskóli
• Grunnskólakennari í afleysingar
Urriðaholtsskóli
• Leikskólakennarar eða leiðbeinendur
með aðra háskólamenntun
Leikskólinn Bæjarból
• Leikskólakennari
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is.
GARÐATORGI 7 • SÍMI 525 8500 • GARDABAER.IS
ÍSAM ehf. óskar eftir að ráða tollmiðlara.
STARFSSVIÐ:
• Gerð tollskýrslna og bókun reikninga
• Samskipti við tollayfirvöld
• Samskipti við innri og ytri viðskiptavini
• Skjalavinnsla
• Önnur tilfallandi störf
HÆFNISKRÖFUR:
• Hafa lokið námskeiði í tollskýrslugerð vegna innflutnings
• Reynsla af tollun
• Góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund
• Jákvæðni, heiðarleiki og stundvísi
• Kunnátta á Ax og Excel, sem og almenn
tölvukunnátta æskileg
• Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
• Góð skipulagshæfni
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 21. nóvember 2019 og
skulu umsóknir berast rafrænt á heimasíðu www.isam.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur
verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðsdeild
mannaudur@isam.is
TOLLMIÐLARI
ÓSKAST
ISAM ehf. • BLIKASTAÐAVEGUR 2-8 • 112 REYKJAVÍK • isam.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skólastjóri Ártúnsskóla
Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Ártúnsskóla lausa til umsóknar.
Ártúnsskóli er leik- og grunnskóli ásamt frístundaheimili í Ártúnsholti, í göngufæri við Elliðaárdalinn og Árbæjarsafnið. Í skólan-
um eru tæplega 200 grunnskólanemendur í 1.-7. bekk og rúmlega 60 leikskólabörn. Auk þessa taka tæplega 90 börn á aldrinum
6-9 ára þátt í frístundastarfinu. Starfsmenn skólans eru um 70. Einkunnarorð skólans eru árangur – virðing – vellíðan.
Í Ártúnsskóla er lögð sérstök áhersla á að allir fái að njóta sín í leik og starfi. Ártúnsskóli er Grænfánaskóli og því er umhverfis-
mennt daglegur þáttur í skólastarfinu. Skólinn er leiðandi í útinámi með sérstaka áherslu á samþættingu námsgreina, heild-
stæða móðurmálskennslu, sköpun og lífsleikni. Ártúnsskóli er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi skóli þar sem markmiðið er
að efla og stuðla að velferð og góðri heilsu nemenda og starfsfólks.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur kunnáttu og færni til að leiða faglegt starf við sameinaðan skóla, býr yfir
leiðtogahæfileikum og hefur góða og víðtæka þekkingu á skóla- og frístundastarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá leikskóla, grunnskóla, starfsskrá frístunda-
miðstöðva og stefnu Reykjavíkurborgar.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi leik-
skóla, grunnskóla og frístundaheimilis.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnu-
tilhögun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf til kennslu á leik- og/eða grunnskólastigi.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskóla-
og/eða grunnskólastigi.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar
í skólastarfi.
• Stjórnunarhæfileikar.
• Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Færni til að leita nýrra leiða og leiða framsækið samþætt
skóla- og frístundastarf.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari og/eða leikskólakennari, greinar-
gerð um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er
málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. janúar 2020. Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2019.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veita Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Ragnheiður E. Stefánsdóttir,
mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: soffia.vagnsdottir@reykjavik.is / ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Verkefnastjóri á fagskrifstofu frístundamála
Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu verkefnastjóra á fagskrifstofu frístundamála lausa til umsóknar.
Fagskrifstofa frístundamála leiðir stefnumótun og hefur yfirumsjón með frístundastarfi fyrir börn og unglinga á vegum Reykja-
víkurborgar. Hlutverk skrifstofunnar er að efla og þróa fagumhverfi frístundastarfs með áherslu á börn og unglinga. Fagskrifstofa
frístundamála er hluti af fagskrifstofu sviðsins, en þar eru einnig skrifstofur leik- og grunnskólamála. SFS rekur fimm frístunda-
miðstöðvar í hverfum borgarinnar og er starfsvettvangur þeirra frítími barna og unglinga. Frístundamiðstöðvar sjá um rekstur
frístundaheimila og félagsmiðstöðva auk þess að taka þátt í margvíslegu hverfasamstarfi. Áhersla er lögð á að allt frístunda-
starf frístundamiðstöðva hafi forvarnar-, menntunar- og afþreyingargildi í samræmi við Starfsskrá frístundamiðstöðva.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðar-
ljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Nánari upplýsingar: www.menntastefna.is
Verkefnastjóri ber ábyrgð á þverfaglegri samvinnu, ráðgjöf og handleiðslu vegna starfsemi í félagsmiðstöðvum og frístunda-
heimilum fyrir 6-16 ára börn og unglinga. Verkefnastjóri er hluti af stjórnendateymi frístundahluta og tekur þátt í heildar-
stefnumótun. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri fagskrifstofu frístundamála.
Helstu verkefni :
• Þverfagleg samvinna, ráðgjöf og stuðningur vegna barna-
og unglingastarfs á vegum fagskrifstofu frístundamála.
• Miðlun upplýsinga og gagna vegna frístundastarfs barna
og unglinga.
• Þátttaka í stefnumótun og innleiðingu á þeim stefnum sem
liggja fyrir.
• Miðlægt utanumhald um starfsemi frístundaheimila og
félagsmiðstöðva; fundir, skipulagning, upplýsingagjöf,
innritun og skráning.
• Þátttaka í ytra mati á gæðum frístundastarfs.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og
félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
• Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar
eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi
sérfræðisviði.
• Víðtæk reynsla af starfi með börnum og unglingum.
• Víðtæk þekking og reynsla af frítímastarfi.
• Færni í framsetningu og miðlun upplýsinga ásamt
greiningu gagna.
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg.
• Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð.
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
• Góð tölvukunnátta.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember 2019.
Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og Sameykis. Umsækjendur eru beðnir að sækja um
starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veitir Soffía Pálsdóttir, skrifstofustjóri frístundamála, netfang: soffia.palsdottir@reykjavik.is. Sími : 411-1111.
4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 9 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
9
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
3
-5
F
C
4
2
4
3
3
-5
E
8
8
2
4
3
3
-5
D
4
C
2
4
3
3
-5
C
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K