Fréttablaðið - 09.11.2019, Síða 40

Fréttablaðið - 09.11.2019, Síða 40
Suzuki bílar • Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • 568 5100 Starfsmaður óskast í varahlutadeild Suzuki! Leitum að vinnusömum, jákvæðum og metnaðarfullum einstakling í varahlutadeild Suzuki. Hæfniskröfur: Almennur áhugi og þekking á bílum eða reynsla sem nýtist í starfi og viðkomandi þarf að vera íslenskumælandi. Um er að ræða fullt starf og óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá fyrir 28. nóvember á netfangið varahlutir@suzuki.is STÖRF HJÁ GARÐABÆ Álftanesskóli • Grunnskólakennari í afleysingar Urriðaholtsskóli • Leikskólakennarar eða leiðbeinendur með aðra háskólamenntun Leikskólinn Bæjarból • Leikskólakennari Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is. GARÐATORGI 7 • SÍMI 525 8500 • GARDABAER.IS ÍSAM ehf. óskar eftir að ráða tollmiðlara. STARFSSVIÐ: • Gerð tollskýrslna og bókun reikninga • Samskipti við tollayfirvöld • Samskipti við innri og ytri viðskiptavini • Skjalavinnsla • Önnur tilfallandi störf HÆFNISKRÖFUR: • Hafa lokið námskeiði í tollskýrslugerð vegna innflutnings • Reynsla af tollun • Góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund • Jákvæðni, heiðarleiki og stundvísi • Kunnátta á Ax og Excel, sem og almenn tölvukunnátta æskileg • Íslensku- og enskukunnátta skilyrði • Góð skipulagshæfni • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 21. nóvember 2019 og skulu umsóknir berast rafrænt á heimasíðu www.isam.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðsdeild mannaudur@isam.is TOLLMIÐLARI ÓSKAST ISAM ehf. • BLIKASTAÐAVEGUR 2-8 • 112 REYKJAVÍK • isam.is Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Skólastjóri Ártúnsskóla Skóla- og frístundasvið Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Ártúnsskóla lausa til umsóknar. Ártúnsskóli er leik- og grunnskóli ásamt frístundaheimili í Ártúnsholti, í göngufæri við Elliðaárdalinn og Árbæjarsafnið. Í skólan- um eru tæplega 200 grunnskólanemendur í 1.-7. bekk og rúmlega 60 leikskólabörn. Auk þessa taka tæplega 90 börn á aldrinum 6-9 ára þátt í frístundastarfinu. Starfsmenn skólans eru um 70. Einkunnarorð skólans eru árangur – virðing – vellíðan. Í Ártúnsskóla er lögð sérstök áhersla á að allir fái að njóta sín í leik og starfi. Ártúnsskóli er Grænfánaskóli og því er umhverfis- mennt daglegur þáttur í skólastarfinu. Skólinn er leiðandi í útinámi með sérstaka áherslu á samþættingu námsgreina, heild- stæða móðurmálskennslu, sköpun og lífsleikni. Ártúnsskóli er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi skóli þar sem markmiðið er að efla og stuðla að velferð og góðri heilsu nemenda og starfsfólks. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur kunnáttu og færni til að leiða faglegt starf við sameinaðan skóla, býr yfir leiðtogahæfileikum og hefur góða og víðtæka þekkingu á skóla- og frístundastarfi. Helstu verkefni og ábyrgð: • Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við aðalnámskrá leikskóla, grunnskóla, starfsskrá frístunda- miðstöðva og stefnu Reykjavíkurborgar. • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi leik- skóla, grunnskóla og frístundaheimilis. • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnu- tilhögun og starfsþróun. • Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins. Menntunar- og hæfniskröfur: • Leyfisbréf til kennslu á leik- og/eða grunnskólastigi. • Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskóla- og/eða grunnskólastigi. • Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi. • Stjórnunarhæfileikar. • Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun. • Færni til að leita nýrra leiða og leiða framsækið samþætt skóla- og frístundastarf. • Lipurð og hæfni í samskiptum. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari og/eða leikskólakennari, greinar- gerð um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. janúar 2020. Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2019. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf. Nánari upplýsingar veita Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Ragnheiður E. Stefánsdóttir, mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: soffia.vagnsdottir@reykjavik.is / ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Verkefnastjóri á fagskrifstofu frístundamála Skóla- og frístundasvið Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu verkefnastjóra á fagskrifstofu frístundamála lausa til umsóknar. Fagskrifstofa frístundamála leiðir stefnumótun og hefur yfirumsjón með frístundastarfi fyrir börn og unglinga á vegum Reykja- víkurborgar. Hlutverk skrifstofunnar er að efla og þróa fagumhverfi frístundastarfs með áherslu á börn og unglinga. Fagskrifstofa frístundamála er hluti af fagskrifstofu sviðsins, en þar eru einnig skrifstofur leik- og grunnskólamála. SFS rekur fimm frístunda- miðstöðvar í hverfum borgarinnar og er starfsvettvangur þeirra frítími barna og unglinga. Frístundamiðstöðvar sjá um rekstur frístundaheimila og félagsmiðstöðva auk þess að taka þátt í margvíslegu hverfasamstarfi. Áhersla er lögð á að allt frístunda- starf frístundamiðstöðva hafi forvarnar-, menntunar- og afþreyingargildi í samræmi við Starfsskrá frístundamiðstöðva. Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðar- ljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Nánari upplýsingar: www.menntastefna.is Verkefnastjóri ber ábyrgð á þverfaglegri samvinnu, ráðgjöf og handleiðslu vegna starfsemi í félagsmiðstöðvum og frístunda- heimilum fyrir 6-16 ára börn og unglinga. Verkefnastjóri er hluti af stjórnendateymi frístundahluta og tekur þátt í heildar- stefnumótun. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri fagskrifstofu frístundamála. Helstu verkefni : • Þverfagleg samvinna, ráðgjöf og stuðningur vegna barna- og unglingastarfs á vegum fagskrifstofu frístundamála. • Miðlun upplýsinga og gagna vegna frístundastarfs barna og unglinga. • Þátttaka í stefnumótun og innleiðingu á þeim stefnum sem liggja fyrir. • Miðlægt utanumhald um starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva; fundir, skipulagning, upplýsingagjöf, innritun og skráning. • Þátttaka í ytra mati á gæðum frístundastarfs. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun. • Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði. • Víðtæk reynsla af starfi með börnum og unglingum. • Víðtæk þekking og reynsla af frítímastarfi. • Færni í framsetningu og miðlun upplýsinga ásamt greiningu gagna. • Reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg. • Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð. • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. • Góð tölvukunnátta. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember 2019. Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og Sameykis. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf. Nánari upplýsingar veitir Soffía Pálsdóttir, skrifstofustjóri frístundamála, netfang: soffia.palsdottir@reykjavik.is. Sími : 411-1111. 4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 9 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 0 9 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 3 -5 F C 4 2 4 3 3 -5 E 8 8 2 4 3 3 -5 D 4 C 2 4 3 3 -5 C 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 0 4 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.