Fréttablaðið - 09.11.2019, Side 44

Fréttablaðið - 09.11.2019, Side 44
Embætti skrifstofustjóra á skrifstofu lýðheilsu og forvarna í heilbrigðisráðuneytinu Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra á skrifstofu lýðheilsu og forvarna. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára frá 1. janúar 2020. Helstu verkefni og ábyrgð - Undirbyggja stefnumarkandi ákvarðanir ráðherra og móta stefnu stjórnvalda á sviði lýðheilsu og forvarna. - Stýra daglegum verkefnum og starfsfólki skrifstofunnar. - Yfirumsjón með verkefnum er varða lýðheilsu og forvarnir. - Framkvæma stefnu stjórnvalda og fylgja henni eftir með gerð lagafrumvarpa og reglugerða. - Þátttaka í nefndarstörfum og innlendu og erlendu samstarfi. - Samstarf við stofnanir og hagsmunaaðila sem starfa við forvarnir og lýðheilsu. Menntunar- og hæfniskröfur: - Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun áskilin. - Þekking og reynsla á sviði rekstrar og stjórnunar. - Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu. - Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum. - Góð tölvukunnátta. - Metnaður og vilji til að ná árangri. - Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt hæfni í verkefnastjórnun. - Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. - Góð kunnátta í ensku nauðsynleg og kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli æskileg. Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til heilbrigðisráðherra, sem skipar í starfið. Nefndin starfar skv. reglum nr. 393/2012 um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands. Um embættið gilda lög nr. 115/2011 um Stjórnarráð Íslands og lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahags ráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðs hafa gert. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá, og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur. Umsóknir skulu berast heilbrigðisráðuneytinu, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík eða í tölvupósti á póstfangið hrn@hrn.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Undirfyrirsögn Meginmál Fyrirsögn, to ex everis áhersla ullabor ibusc Upplýsingar um starfið veitir Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri, sími 545 8700. Starfshlutfall er 100% Umsóknafrestur er til og með 29. nóvember 2019. Við ráðum WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS Stjórnendaleit Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja. Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára­ löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið. Almennar ráðningar á markaði Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið. Sveigjanleg nálgun Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða starfs tengdar æfingar. Matstæki Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður en ráðning fer fram. Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index) skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og staðfærð að íslenskum markaði. Ráðgjöf við starfslok Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs­ ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl. Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar þjónustu sniðna að þörfum viðskiptavinarins. Finnur þú starf við þitt hæfi hjá Kópavogsbæ? kopavogur.is P ip a r\TB W A \ SÍA Kynntu þér fjölbreytt og spennandi störf hjá Kópavogsbæ á vefsíðu okkar, kopavogur.is. Hlökkum til að starfa með þér. 8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 9 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 0 9 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 3 -4 7 1 4 2 4 3 3 -4 5 D 8 2 4 3 3 -4 4 9 C 2 4 3 3 -4 3 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 0 4 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.