Fréttablaðið - 09.11.2019, Side 46
Rekstrarstjóri á skrifstofu
fjárlaga og rekstrar
Félagsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf rekstrarstjóra á
skrifstofu fjárlaga og rekstrar. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf í
krefjandi starfsumhverfi og opnu vinnurými. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón með fjármálum, rekstri og innri þjónustu ráðuneytisins.
• Eftirlit og umsjón með fjárhags- og launabókhaldi.
• Gerð rekstrar- og framkvæmdaáætlana, ásamt eftirliti.
• Greining og úrvinnsla fjárhagsupplýsinga, svörun fyrirspurna o.fl.
• Ráðgjöf og aðstoð vegna ýmiss konar fjármálaumsýslu ásamt
annarri stoðþjónustu.
• Umsjón með greiðslum til nefnda og annarra hópa, gerð
verksamninga o.þ.h.
• Umsjón með húsnæðismálum og öryggismálum ásamt innkaupum
og birgðahaldi.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólamenntun í viðskiptafræði eða önnur sambærileg menntun.
Framhaldsmenntun er kostur.
• Þekking og reynsla af bókhaldi, áætlanagerð og eftirliti.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
• Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Færni í miðlun upplýsinga í mæltu og rituðu máli.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
• Þekking á fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi fjármála- og
efnahagsráðherra og Félags háskólamenntaðra starfsmanna
Stjórnarráðsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Ráðuneytið hvetur karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir
þær hæfnikröfur sem gerðar eru. Mat á hæfni umsækjenda byggist
á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Umsókn getur
gilt í 6 mánuði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir.
Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2019.
Sækja skal um starfið á starfatorgi, starfatorg.is
Nánari upplýsingar veitir
Svanhvít Jakobsdóttir, skrifstofustjóri, í síma 545-8100,
svanhvit.jakobsdottir@frn.is
Nýtt fólk
Tilkynningar um nýtt fólk Atvinnublað Fréttablaðsins
kemur út á laugardögum í viku hverri. Umsjónarmaður
blaðsins er Hrannar Helgason. Blaðið birtir valdar
greinar um ráðningu nýrra starfsmanna. Sendið til-
kynningar ásamt mynd af viðkomandi á netfangið:
nyttfolk@frettabladid.is
Lilja til Eignaumsjónar
Lilja Björg Eiríksdóttir hefur hafið störf sem bókhaldsfull-trúi hjá Eignaumsjón. Þar
mun hún sinna færslu bókhalds
fyrir sívaxandi viðskiptavinahóp
Eignaumsjónar ásamt öðrum
tilfallandi verkefnum hjá fjármála-
sviði félagsins. Lilja Björg kemur
til Eignaumsjónar frá Landslögnum
þar sem hún hafði umsjón með bók-
haldi fyrirtækisins og launaútreikningum. Áður starfaði
hún m.a. fyrir JL Húsið og S9, sem á og rekur JL Hostel,
Oddsson Hostel og Hótel Hildu og fleiri félög. Hún hefur
einnig starfað við bókhald fyrir ZO-ON útivistarvörur og
Nova. Lilja Björk er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði með
áherslu á markaðssamskipti frá Háskólanum á Bifröst.
Valdimar Karl nýr
fjármálastjóri Heimkaup.is
Valdimar Karl Sigurðsson viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn fjármálastjóri
hjá Wedo ehf. sem rekur vef-
verslunina Heimkaup.is, Hópkaup
og Bland. Ráðning Valdimars er
liður í að styrkja innviði Wedo
til að takast á við þann mikla vöxt
sem verið hefur hjá félaginu á síðustu
árum og sem stefnt er að á næstu árum.
Valdimar hefur síðustu rúm níu ár starfað hjá endurskoð-
unar- og ráðgjafarfyrirtækinu KPMG, á endurskoðunar-
sviði á árunum 2010-2016 og frá árinu 2016 á ráðgjafar-
sviði. Valdimar er viðskiptafræðingur frá Háskólanum
í Reykjavík með M.Sc.-gráðu í fjármálum fyrirtækja og
M.Sc.-gráðu í reikningshaldi og endurskoðun.
Birna Íris ráðin til Haga
Birna Íris Jónsdóttir hefur verið ráðin rekstrarstjóri upplýs-ingatækni og stafrænnar
þróunar hjá Högum og dóttur-
félögum. Um er að ræða nýja stöðu
sem varð til í kjölfar skipulags-
breytinga innan Haga sem tilkynnt
var um í ágúst síðastliðnum. Birna
Íris hefur störf þann 15. nóvember
næstkomandi. Birna Íris hefur áralanga
reynslu af upplýsingatækni og stafrænni vegferð fyrir-
tækja. Hún kemur til Haga frá Sjóvá þar sem hún hefur
starfað sem forstöðumaður upplýsingatækni síðastliðin
tvö og hálft ár. Fyrir það starfaði Birna Íris hjá Landsbank-
anum í sex ár sem deildarstjóri á upplýsingatæknisviði.
Birna Íris er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík
og B.Sc.-gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands.
Særún ráðin
samskiptastjóri Haga
Særún Ósk Pálmadóttir hefur verið ráðin samskiptastjóri Haga. Um er að ræða nýja stöðu
sem varð til í kjölfar skipulags-
breytinga innan Haga sem til-
kynnt var um í ágúst síðastliðnum
og er markmið stöðunnar meðal
annars að gera boðleiðir skýrari og
markvissari innan Haga og dóttur-
fyrirtækja. Særún er með M.Sc.-gráðu
í almannatengslum með áherslu á krísusam-
skipti frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð og Háskólanum í
Stirling í Skotlandi, sem og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá
Háskólanum í Reykjavík.
Þarftu að ráða starfsmann?
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum
lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
10 ATVINNUAUGLÝSINGAR 9 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
9
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
3
-5
A
D
4
2
4
3
3
-5
9
9
8
2
4
3
3
-5
8
5
C
2
4
3
3
-5
7
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K