Fréttablaðið - 09.11.2019, Side 98
ÉG HEF FARIÐ ÚT AÐ
HLAUPA OG ÁKVEÐIÐ
AÐ ALLAN TÍMANN ÆTLI ÉG AÐ
NEFNA ALLT SEM MÉR DETTUR Í
HUG TIL AÐ ÞAKKA FYRIR, ALLT
FRÁ SJAMPÓI TIL GÓÐRAR
HEILSU. ÉG MÆLI MEÐ ÞESSU.
ÉG VARÐ ÓVÆNT ÓLÉTT
OG ÁÆTLAÐUR FÆÐ-
INGARDAGUR VAR Í KRINGUM
KOSNINGAR OG SVO BARA MÁ
SEGJA AÐ EFTIRSPURN EFTIR
FLOKKNUM MÍNUM ÞÁVERANDI
HAFI EKKI VERIÐ MIKIL.
Eva segist vera með nokkrar sögur í bígerð, þar á meðal eina fyrir fullorðna lesendur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Eva Einarsdóttir, fyrr-verandi borgarfulltrúi og fyrrverandi stjórnar-maður Bjartrar fram-tíðar, hætti afskiptum af stjórnmálum þegar hún
fann að þau gáfu henni minna en þau
tóku. Nú starfar hún sem kynningar-
stjóri fyrir Nordplus og Erasmus+ hjá
Rannís og gaf nýverið út sína aðra
barnabók, Saga um þakklæti.
Fyrri bókin, Saga um nótt, kom
út árið 2013 og er frumburður Evu,
dóttirin Saga, fyrirmynd sögu-
hetjunnar rétt eins og í bókinni sem
nú er komin út. „Bókin kom þann-
ig til að Saga mín, þá um þriggja
ára, var svolítið myrkfælin, svo ég
sagði henni sögu um það fallega við
myrkrið og nóttina. Þegar ég hafði
sagt henni söguna hugsaði ég með
mér að þetta væri nú bara ágætis
saga, eða allavega hafði dóttirin
hlustað með mikilli athygli og ákvað
ég því að skrifa hana niður þegar ég
stuttu seinna sat í lest erlendis.“
Skapandi fæðing má taka tíma
Ég elska að vera í flugvél en sérstak-
lega lest, það er svo róandi og ég verð
oftar en ekki kreatíf. Ég gekk hrein-
lega svo langt að teikna litlar myndir
með sögunni en þær voru meira til
að útskýra hvernig ég sæi söguna
fyrir mér. Síðan æxlaðist það þann-
ig að ég fékk Lóu Hjálmtýsdóttur
teiknara til liðs við mig. Við þekkt-
umst þá líklega meira í gegnum tón-
listarbransann en ég vissi að hún
væri mjög flink að teikna. Bækurnar
væru ekkert án myndanna hennar
Lóu, hún vatnslitar hverja og eina
og á bak við er mikil vinna. Sökum
annríkis leið svo smá tími frá því að
bókin var tilbúin þar til hún kom út.
En ég trúi því sterkt að sumt eigi sinn
tíma og því fannst mér hún koma út
á hárréttum tíma. Og sama með nýju
bókina, fæðing einhvers skapandi
má taka smá tíma, þá eykst jafnvel
virðið,“ útskýrir Eva.
Eva segir Sögu sjálfa hafa verið
hæstánægða með heiðurinn. „Í
útgáfuhófinu fyrir Sögu um nótt
tók hún míkrafóninn úr höndum
okkar Lóu, hélt tölu og las upp úr
bókinni, þá sjö ára. Hún gladdist
mjög þegar við fengum Ibby-barna-
bókaverðlaunin og eins fannst henni
merkilegt að það væri fjallað um
bókina í Kiljunni man ég. Núna er
hún í 8. bekk en finnst þetta bara
skemmtilegt og ætlar til dæmis að
lesa upp úr nýju bókinni á bóka-
messunni í Hörpu.“
Var orðin gröm í pólitíkinni
Eins og fyrr segir hætti Eva afskipt-
um af pólitík árið 2018. „Ég ákvað að
ég myndi ekki bjóða mig aftur fram
þegar ég fann að starfið var ekki
að gefa mér eins mikið og það tók
af mér. Ég var orðin gröm og þetta
átti dálítið hug minn allan. Ætli
það megi síðan ekki segja að örlög
og staðreyndir hafi ýtt undir að ég
hætti. Ég varð óvænt ólétt og áætl-
aður fæðingardagur var í kringum
kosningar og svo bara má segja að
eftirspurn eftir f lokknum mínum
þáverandi hafi ekki verið mikil. Mér
fannst samt hunderfitt að hætta, en
finn að það er hollt. Þessi heimur
getur verið eins konar hellir og það
er gott að stíga aðeins út. Ég er mjög
sátt í mínu nýja starfi þar sem eru
nýjar og spennandi áskoranir,“ segir
Eva sem þó útilokar ekki frekari
afskipti af stjórnmálum.
Þakklát fyrir sjampó og heilsu
Umfjöllunarefni barnabókarinnar
sem nú kemur út er þakklæti en
Eva segist lengi hafa trúað á mátt
þess. „Til dæmis finn ég þegar ég er
döpur eða jafnvel í sjálfsvorkunn að
þá hjálpar mikið að þakka fyrir það
sem ég á. Á fjölskyldufundum höfum
við til dæmis farið hring þar sem á að
nefna eitthvað sem maður er þakk-
látur fyrir. Ég hef farið út að hlaupa
Skrifar sögur
um Sögu
Eva Einarsdóttir skrifaði bók fyrir dóttur sína, Sögu,
þegar hún var þriggja ára og myrkfælin og nú hefur önn-
ur bók um Sögu litið dagsins ljós þó svo að Saga sjálf sé
komin í áttunda bekk og myrkrið hræði ekki líkt og áður.
og ákveðið að allan tímann ætli ég
að nefna allt sem mér dettur í hug
til að þakka fyrir, allt frá sjampói til
góðrar heilsu. Ég mæli með þessu,“
segir Eva í léttum tón.
Barnshafandi rúmlega fertug
Eins og Eva sagði þá varð hún óvænt
barnshafandi sem hafði áhrif á að
hún ákvað að hætta afskiptum af
stjórnmálum. Eva og eiginmaður
hennar áttu tvö börn, þá 11 og sjö
ára og voru sjálf komin yfir fertugt
og frekari barneignir alls ekki á
dagskránni. „Já, hún Vaka okkar,
16 mánaða, bætti sér í hópinn.
Við vorum bara ansi sátt, fjögurra
manna fjölskyldan og höfðum allt-
af sagt við börnin þegar þau suðuðu
um systkini að við yrðum ekki fleiri,
þetta væri bara fínt og við værum
gott teymi.
En svo gerist lífið og þegar við
sögðum frá því að von væri á litlu
viðbótinni trúði sonur minn okkur
ekki og sagðist fara að heiman ef
við værum að ljúga,“ rifjar Eva upp.
Aðspurð hver munurinn sé á að
eignast barn á milli tvítugs og þrí-
tugs og svo eftir fertugt segist Eva
vera rólegri núna. „Ég treysti því að
ég viti hvað er rétt og rangt og er lítið
að lesa mér til og svona.“
Klístrað gólf og bleyjuskipti
„En aðallega myndi ég segja að stóri
munurinn sé að ég veit betur hvað
tíminn líður hratt og reyni því að
njóta hvers tímabils, líka klístraðs
gólfs og bleyjuskipta,“ segir Eva og
brosir. „Svo vinnur aldurinn líklega
með manni að manni finnst bara
huggulegt að fara snemma fram úr
með henni, drekka kaffi og njóta
samverunnar. Og það fallegasta er
sjá alla ástina milli systkinanna og
líklega erum við fjögur að ala hana
upp. En ég viðurkenni að mér féllust
smá hendur þegar ég hugsaði, enn
eitt leikskólabarnið; með blautum
fötum og sandi lekandi úr stígvél-
unum,“ segir Eva og hlær.
Margar hugmyndir í farvatninu
Aðspurð um framhaldið segist Eva
eiga litlar bækur um allt þar sem hún
rissar niður hugmyndir en hún hafi
þó ekki haft tíma til að sinna þeim
öllum. „Ég hef hægt og rólega verið
að skrifa bók fyrir fullorðna, er með
eina litla sögu tilbúna í skúffunni
fyrir yngri lesendur og er líka búin
að gera beinagrind og persónu-
sköpun að bók fyrir eldri börn. Var
líka búin að skila efnisyfirliti að mat-
reiðslubók til bókaforlags en fannst
svo ekki vera rétti tíminn, og bók
kannski ekki endilega rétta formið.
Kannski kemur eitthvað út af þessu
og þá á hárréttum tímapunkti. Það
er alltaf á to-do listanum mínum
að fara eitthvert ein yfir helgi eða í
viku og skrifa,“ segir Eva að lokum
augljóslega uppfull af hugmyndum.
Útgáfu bókarinnar verður fagnað
í dag, laugardag, frá klukkan 15 til 16
í Máli og menningu, Laugavegi 18.
bjork@frettabladid.is
Bókin er myndskreytt af Lóu Hjálmtýsdóttur
rétt eins og fyrri bókin um Sögu.
9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R50 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
0
9
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
3
3
-2
4
8
4
2
4
3
3
-2
3
4
8
2
4
3
3
-2
2
0
C
2
4
3
3
-2
0
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
0
4
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K