Skessuhorn - 30.11.2016, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 20166
Eldhús grunn-
skólans leigt út
HVANNEYRI: Í sumar var
lagt fram erindi til byggðar-
ráðs Borgarbyggðar fyrir hönd
Hótels Sólar á Hvanneyri, þar
sem óskað var eftir því að fá
leigt eldhús grunnskólans á
Hvanneyri fyrir gesti hótels-
ins þann tíma ársins sem hót-
elið er rekið og grunnskólinn
ekki að störfum. Erindinu var
frestað þar sem ekki lá fyrir af-
staða skólastjóra Grunnskóla
Borgarfjarðar. Nú hefur Ingi-
björg Inga Guðmundsdótt-
ir skólastjóri tekið jákvæða af-
stöðu til erindisins og í fram-
haldi samþykkti byggðarráð
Borgarbyggðar að leigja Hót-
el Sól eldhúsið yfir sumartím-
ann. Leigan verður 600 þús-
und krónur fyrir hvert sumar
og hefur sveitarstjóra Borgar-
byggðar verið falið að ganga
frá samningi.
-grþ
Hvimleiðar
vegablæðingar
HOLTAV.HEIÐI: Vegagerð-
in vekur athygli á því að blæð-
ing er á slitlagi á vegarköflum
um Holtavörðuheiði, allt frá
Norðurárdal í Borgarfirði og
í Hrútafjörð. Þetta getur vald-
ið því að tjara safnast í hjóls-
kálar bíla, en einnig á boddý-
hluti, raflagnir, fjöðrunarbún-
að og hjólbarða. Flutninga-
bílstjórar sem lendu í tjöru-
mengun af þessu tagi fyrir síð-
ustu helgi bentu í fjölmiðlum
á að best sé að reyna að þrífa
bílana strax og mögulegt er til
að tjaran nái síður að harðna.
Engu að síður er blæðing slit-
lags afar hvimleitt fyrirbrigði
og orsakast venjulega af galla í
efnum sem notuð eru við yfir-
lögn vega.
-mm
Norðurál tíundi
hæsti skattgreið-
andinn
LANDIÐ: Landsbankinn
greiddi mest allra lögaðila í
skatt á síðasta ári, eða um 12,3
milljarða króna, og ríkissjóð-
ur kemur þar næst á eftir með
11,2 milljarða króna. Norður-
ál á Grundartanga er í tíunda
sæti yfir hæstu skattgreið-
endur liðins árs, með rúma
tvo milljarða í skatta. Inni í
þeirri tölu eru ekki greiðslur
til sveitarfélaga, svo sem fast-
eignagjöld eða hafnargjöld.
Einungis sjö fyrirtæki greiða
hærri skatta og eitt sveitarfé-
lag, þ.e. Reykjavíkurborg. Á
lista yfir 25 hæstu gjaldend-
ur opinberra gjalda eru bank-
arnir ofarlega á blaði, sem og
stærstu útgerðarfyrirtæki og
sveitarfélög landsins. Þannig
greiðir Reykjavíkurborg um
3,5 milljarða króna í opin-
ber gjöld og einnig er þar að
finna Kópavogsbæ, Hafnar-
fjörð og Akureyri. Einnig eru
í hópi hæstu skattgreiðenda
fyrirtæki á borð við Icelandair
Group og dótturfélagið Ice-
landair, matvöruverslana-
keðjan Hagar, stoðtækjafyr-
irtækið Össur, álver Norður-
áls og tryggingafélögin VÍS
og Sjóvá. Þetta kemur fram í
frétt á vef Samáls.
-mm
Landsmót 50+
verður í
Hveragerði
LANDIÐ: Forsvarsmenn
Hveragerðisbæjar, Ung-
mennafélags Íslands og HSK
hafa skrifað undir samn-
ing þess efnis að Lands-
mót UMFÍ 50+ verði hald-
ið í Hveragerði næsta sumar,
nánar tiltekið helgina 23.-25.
júní 2017. Gert er ráð fyrir
miklum fjölda þátttakenda á
mótinu. Eins og nafnið gef-
ur til kynna er mótið hugsað
fyrir þátttakendur á aldrinum
50 ára og eldri. Boðið verð-
ur upp á fjölda íþróttagreina,
allt frá sundi og bridds til þrí-
þrautar og bogfimi (sjá meðf.
mynd). HSK er mótshaldari
og er þetta í fyrsta sinn sem
mótið er haldið á svæði HSK.
Haukur Valtýsson, formað-
ur UMFÍ, sagði mótið hafa
stækkað mikið frá því það var
fyrst haldið og viðburðum
í tengslum við það fjölgað.
Mótið sýni að eftirspurn er
eftir fjölbreyttu íþróttamóti
hjá þessum aldurshópi.
-mm
Eins og Skessuhorn greindi frá á
dögunum var ákveðið að endurvekja
Ferðamálasamtök Snæfellsness. Var
lagður grunnur að því með samhrist-
ingi ferðaþjónustufólks á Snæfellsnesi
á Hótel Rjúkanda fyrr í mánuðinum.
Síðan var boðað til formlegs fundar
í liðinni viku sem fram fór á Hótel
Fransiskus í Stykkishólmi og þar voru
Ferðamálasamtök Snæfellsness form-
lega endurvakin og kosið í stjórn.
Ákveðið var að í stjórn félagsins
yrði skipuð fulltrúum frá öllum sveit-
arfélögunum á Snæfellsnesi. Fimm
gáfu kost á sér til veru í stjórn sam-
takanna og voru kosnir samhljóða.
Stjórnin er þannig skipuð: Kári Við-
arsson úr Frystiklefanum í Rifi er
fulltrúi Snæfellsbæjar, Hulda Hildi-
brandsdóttir frá Hákarlasafninu í
Bjarnarhöfn er fulltrúi Helgafells-
sveitar, Ólöf Eyjólfsdóttir á Hótel
Rjúkanda er fulltrúi Eyja- og Mikla-
holtshrepps, Gísli Ólafsson, eigandi
Láki Tours, er fulltrúi Grundarfjarð-
arbæjar og Nadine E. Walter, sölu-
og markaðsstjóri Sæferða, er fulltrúi
Stykkishólmsbæjar.
kgk
Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins á mánu-
dagskvöld var fjallað um málefni
eggjaframleiðandans Brúneggja ehf.
sem reka bú á Kjalarnesi og í Borg-
arfirði. Þar komu fram upplýsingar
um að fyrirtækið hafi ekki sinnt að-
finnslum Matvælastofnunar með full-
nægjandi hætti vegna athugasemda
um aðbúnað dýra. Skort hefur á við-
eigandi ráðstafanir til að mæta kröf-
um sem gerðar eru til eggjaframleið-
enda. Auk þess hefur Brúnegg ehf.
notað merki vistvæns landbúnaðar
þrátt fyrir að reglugerð um merkið
hafi verið numin úr gildi fyrir rúmu
ári síðan.
Bændasamtök Íslands hafa sent frá
sér yfirlýsingu þar sem þau fordæma
illa meðferð á dýrum; „enda hafa sam-
tökin ávallt lagt áherslu á að íslenskur
landbúnaður sé til fyrirmyndar hvað
varðar dýravelferð og góðan aðbún-
að. Það veldur vonbrigðum að heyra
af slæmum aðbúnaði varphænsna hjá
eggjaframleiðandanum Brúneggjum
ehf. á síðustu árum. Undir yfirskini
vistvænnar framleiðslu, þar sem fólki
er talin trú um að velferð varphænsn-
anna sé tryggð, virðast neytendur
hafa verið blekktir um árabil. Þetta
er óafsakanlegt og er harmað,“ segir
Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson for-
maður BÍ.
Ný lög um velferð dýra tóku gildi
í ársbyrjun 2014. Í þeim eru mjög
framsæknar reglur um velferð dýra
og fylgja innleiðingu þeirra miklar
áskoranir fyrir landbúnaðinn. Lög-
in og reglugerðir sem á þeim byggja
gera ríkari kröfur til aðbúnaðar búfjár
en áður hefur tíðkast. Markmiðið er
að tryggja velferð og heilbrigði dýra
með góðri meðferð, umsjá og aðbún-
aði.
Hlutverk MAST að
tryggja að slík mál velkist
ekki í kerfinu
„Bændasamtökin hafa áður lýst yfir
mikilvægi þess að eftirlit sé gott með
þeim sem stunda landbúnað og mat-
vælaframleiðslu og farið sé eftir lög-
um og reglum í hvívetna. Matvæla-
stofnun hefur á síðustu árum þróað
eftirlitskerfi og hefur fleiri úrræði en
áður til þess að bregðast við slæmri
meðhöndlun dýra. Hlutverk stofn-
unarinnar er að gæta þess að mál líkt
og fjallað var um í Kastljósinu komi
ekki upp. Það vekur upp spurningar
af hverju mál geta velkst um í kerfinu
jafnvel um árabil og lítið sé aðhafst.
Mikilvægt er að tryggja að mál sem
þetta endurtaki sig ekki,“ segir í yfir-
lýsingu BÍ.
„Þær myndir sem birtust lands-
mönnum í Kastljósþættinum á mánu-
dagskvöld voru sláandi og bera bú-
skapnum á viðkomandi eggjabúum
slæmt vitni. Bændasamtökin telja að
málið sé fordæmalaust og hér sé um
einstakt tilvik að ræða eins og fram
kom í viðtali við forstjóra Matvæla-
stofnunar í Kastljósþættinum.“ mm
Fordæma slæman aðbúnað
varphænsna hjá Brúneggjum
Skjáskot af mynd-
bandi sem sýnt var frá
hænsnabúinu á RUV á
mánudagskvöldið.
Ferðamálasamtök Snæfellsness endurvakin
Stjórn Ferðamálasamtaka Snæfellsness. F.v. Gísli Ólafsson, Kári Viðarsson, Ólöf
Eyjólfsdóttir, Nadine E. Walter og Hulda Hildibrandsdóttir.