Skessuhorn - 30.11.2016, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 20168
Fundur í kvöld
um búsvæði
fugla
BORGARFJ: Umhverfis-
stofnun hefur boðað íbúa til
almenns kynningar- og sam-
ráðsfundar um stjórnunar- og
verndaráætlun fyrir búsvæði
fugla í Andakíl. Fundurinn
verður í kvöld, miðvikudag-
inn 30. nóvember klukkan
20:00, og fer fram í Ásgarði,
húsnæði Landbúnaðarhá-
skóla Íslands á Hvanneyri. Á
fundinum verður sagt frá gerð
stjórnunar- og verndaráætl-
ana almennt og áætlun fyrir
verndarsvæðið í Andakíl sér-
staklega en unnið er að gerð
hennar um þessar mundir.
Í kjölfarið verður leitað eft-
ir hugmyndum fundarmanna
um hvert skuli stefna og hvað
þurfi að gera til að viðhalda
verndargildi svæðisins og
nýta það, til heilla fyrir íbúa.
-mm
Úrbætur við
Guðrúnarlaug
DALABYGGÐ: Sveitar-
stjórn Dalabyggðar hefur lagt
til að úrbætur verði gerðar við
Guðrúnarlaug á Laugum í
Sælingsdal. Var þetta ákveðið
á sveitarstjórnarfundi á dög-
unum eftir að Anna Margrét
Tómasdóttir, forstöðumaður
Ungmenna- og tómstunda-
búðanna á Laugum, benti á að
léleg umgegni væri við laug-
ina. Segir hún að gera þurfi
átak í aðgengismálum og stýr-
ingu ferðamanna og að eig-
endur svæðisins þurfi að gera
upp við sig hvort vilji sé til að
taka á móti síauknum fjölda
ferðamanna. Sveitarstjórn
lagði til að 300 þúsund krónur
verði lagðar til úrbóta á svæð-
inu strax og að gert verði ráð
fyrir fjármagni á næsta ári,
meðal annars til merkinga.
Ferðamálafulltrúa var falið
að gera tillögu að merking-
um. Meðfylgjandi mynd var
tekin þegar þáverandi forseti
Íslands vígði laugina haustið
2010. -grþ
Verulega dregur
úr atvinnuleysi
LANDIÐ: Samkvæmt
vinnumarkaðsrannsókn Hag-
stofu Íslands voru að jafnaði
197.600 manns á aldrinum
16–74 ára á vinnumarkaði í
október 2016, sem jafngild-
ir 82,5% atvinnuþátttöku.
Af þeim voru 192.200 starf-
andi og 5.400 án vinnu og í
atvinnuleit. Hlutfall starf-
andi af mannfjölda var 80,2%
og hlutfall atvinnulausra af
vinnuafli var 2,7%. Saman-
burður mælinga fyrir októ-
ber 2015 og 2016 sýnir að at-
vinnuþátttakan jókst um 1,7
prósentustig milli ára. Fjöldi
starfandi jókst um 12.900 og
hlutfallið af mannfjölda hækk-
aði um 2,6 stig. Atvinnulaus-
um fækkaði um 1.700 manns
og hlutfall þeirra af vinnuafl-
inu lækkaði um 0,7 prósentu-
stig. -mm
Afhenda hrað-
hleðslustöðvar
BORGARNES: Fyrirtæk-
ið Orkustöðin ehf. mun fyrir
árslok afhenda öllum sveit-
arfélögum landsins hrað-
hleðslustöðvar fyrir rafbíla.
Er það liður í átaki fyrir-
tækisins til að bæta aðgengi
eigenda rafmagnsbíla að
hleðslustöðvum og hvetja á
þann hátt til notkunar raf-
magnsbíla. Um miðjan
þennan mánuð var nokkr-
um sveitarfélögum á Vestur-
landi afhentar slíkar stöðvar,
meðal annars í Borgarbyggð.
Á fundi byggðarráðs í liðinni
viku var Orkusölunni þakkað
fyrir góða gjöf og forstöðu-
manni framkvæmdasviðs fal-
ið að koma stöðinni fyrir hjá
Íþróttamiðstöðinni í Borgar-
nesi.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
19. - 25. nóvember
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 4 bátar.
Heildarlöndun: 23.854 kg.
Mestur afli: Ebbi AK:
13.863 kg í fjórum löndun-
um.
Arnarstapi 2 bátar.
Heildarlöndun: 68. 329 kg.
Mestur afli: Stakkhamar
SH: 38.359 kg í fjórum lönd-
unum.
Grundarfjörður 8 bátar.
Heildarlöndun: 317.316
kg.
Mestur afli: Hringur SH:
68.178 kg í einni löndun.
Ólafsvík 10 bátar. Heildar-
löndun: 166.823 kg.
Mestur afli: Brynja SH:
38.882 kg í sex löndunum.
Rif 12 bátar.
Heildarlöndun: 226.735
kg.
Mestur afli: Saxhamar SH:
61.714 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur 4 bátar.
Heildarlöndun: 53.895 kg.
Mestur afli: Hannes Andr-
ésson SH: 32.909 kg í fimm
löndunum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Hringur SH - GRU:
68.178 kg. 22. nóvember.
2. Grundfirðingur SH
- GRU: 53.384 kg. 20.
nóvember.
3. Steinunn SF - GRU:
52.903 kg. 20. nóvember.
4. Steinunn SF - GRU:
49.030 kg. 23. nóvember.
5. Helgi SH - GRU:
45.569 kg. 21. nóvember.
grþ
Haustir 2015 bauð Háskólinn á
Bifröst upp á tvær nýjar námslín-
ur, en viðbrögð við þeim hafa verið
ólík. Önnur námslínan er BA-nám í
Miðlun og almannatengslum en hin
er BA-nám í Byltingafræðum. Vil-
hjálmur Egilsson, rektor Háskólans
á Bifröst, segir að það hafi gengið
ágætlega með báðar línurnar fyrsta
haustið, en svo hafi aðsóknin í Bylt-
ingafræðina dalað í haust.
„Áhuginn hefur verið mikill fyr-
ir Miðlun og almannatengslum og
við erum mjög sátt við það,“ seg-
ir Vilhjálmur. Um þrjátíu manns
stunda nú nám við námsleiðina og
aðsóknin hefur verið stöðug. Vil-
hjálmur segir að námið gefi strax
beina leið inn í atvinnulífið og hafi
fest sig algjörlega í sessi. „Námið
gefur beina leið inn í ákveðinn sett-
an farveg, hvort sem það er á fjöl-
miðli eða inn í almanntengsl í fyrir-
tækjum og stofnunum.“
Byltingafræðin grunnur
að ýmsu öðru
Aðsókn í Byltingafræðin hafi hins
vegar verið dræmari. Haustið 2015
var aðsókn þokkaleg, en í haust
sótti aðeins einn um að komast í
námið. Samtals eru því á annan
tug nemenda sem stunda námið á
fyrsta og öðru ári. Vilhjálmur segir
að námið sé í sjálfu sér mjög áhuga-
vert en nafnið á námsbrautinni gefi
ekki augljósa möguleika á starfs-
stefnu. „Námið býður upp á það
að læra margt mjög áhugavert um
breytingar í samfélaginu, hvernig
þær verða og af hverju og hvernig
eigi að koma þeim af stað. Það býð-
ur upp á mjög breiðan möguleika
að námi loknu,“ segir Vilhjálmur
og bætir við að byltingafræðin sé
einnig góður grunnur margs konar
greina innan félagsvísinda. Nem-
endur fái auk þess góða sýn á hvern-
ig samfélagið virkar. „Við ætlum að
bjóða upp á Byltingafræðina aftur
næsta haust og sjá hvort að áhuginn
lifni við,“ segir Vilhjálmur.
Fleiri námsleiðir
á döfinni
Þá hefur Háskólinn á Bifröst einn-
ig gert tilraunir með alþjóðlegan
sumarskóla fyrir erlenda nemendur.
„Við fengum um tuttugu nemend-
ur síðasta sumar og ætlum að gera
þetta aftur næsta sumar, sjá hvort
þetta vindi eitthvað upp á sig.“ Vil-
hjálmur segir að ný lína í Viðskipta-
lögfræði sé einnig í farvatninu hjá
Háskólanum á Bifröst. Námið er
meistaranám í Viðskiptalögfræði en
Háskólinn á Bifröst býður nú þegar
upp á BA-nám í Viðskiptalögfræði.
„Við ætlum að sérhæfa okkur í því
sem snýr að viðskiptum,“ segir Vil-
hjálmur.
klj
Nýjar námsleiðir fá misjafnar viðtökur
Grundarfjarðarbær er nú að láta
bæta aðgengi að hafnarskúr bæjar-
ins þar sem Hafsteinn Garðarsson
ræður ríkjum. Verið er að steypa
nýja stétt og leggja hitalagnir í
tröppurnar. Það er engu líkara en
að Hafsteinn hafnarstjóri sé hér
að grandskoða fráganginn á und-
irlaginu á meðan Eyþór Garðars-
son bróðir hans og forseti bæjar-
stjórnar fylgist með úr dyragætt-
inni. Það er Þorkell Gunnar Þor-
kelsson sem hefur yfirumsjón með
framkvæmdunum.
tfk
Framkvæmdir við Grundarfjarðarhöfn
Ljúfmetismarkaðurinn Stykkis-
hólmz Bitter hefur slegið í gegn í
Hólminum þegar hann hefur verið
settur upp. Laugardaginn 17. des-
ember er ráðgerður jólaljúfmetis-
markaður að Reitarvegi 16 og veð-
ur hann opinn frá klukkan 14 til
16. Á markaðnum sýna veitinga-
menn og matvælaframleiðendur
í Stykkishólmi og nágrenni listir
sínar og bjóða upp á hið ýmsa ljúf-
meti með jólaívafi. Markaðurinn
er auglýstur sem upplifun fyrir öll
skilningarvitin. Hægt er að finna
Stykkishólmz Bitter á facebook og
fylgjast þar með frekari framvindu
mála.
jse
Jólaljúfmetismarkaður í Hólminum
Svipmynd frá markaðinum á síðasta ári. Ljósm. sá.