Skessuhorn - 30.11.2016, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2016 11
Ungmennafélagið Skallagrímur heldur upp á aldarafmælið
Afmælisveisla
í Hjálmakletti laugardaginn 3. desember kl. 14:00
Leikdeild Umf. Skallagríms kynnir hátíðarsýningu í tilefni aldarafmælis:
Leikið í 100 ár
Upprifjun leikdeildar í leikstjórn Jónasar Þorkelssonar
Frumsýnt í Lyngbrekku mmtudaginn 10. nóvember
8. sýning mmtudaginn 1. desember kl. 20:30
Aukasýning föstudaginn 2. desember kl. 20:30
Hátíðarsýning laugardaginn 3. desember kl. 20:30
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR!
Miðapantanir í síma 846 2293 og leikdeildskalla@gmail.com
Miðaverð kr. 3.000 - Veitingasala á sýningum - Posi á staðnum
Laugardaginn 3 desember fagnar Ungmennafélagið Skallagrímur 100 ára afmæli félagsins.
Af því tilefni er íbúum Borgarbyggðar boðið í afmæliska og dýrindis köku frá Geirabakarí í
Hjálmakletti þar sem þessara tímamóta í sögu Skallagríms verður fagnað.
Þar verða ri aðir upp ýmsir eftirminnilegir þættir úr sögu félagsins
og leikdeild Skallagríms slær á létta strengi.
Dagskrá hefst kl.14.00 - Allir velkomnir!
Minnum jafnframt á stórleik Skallagríms og Ke avíkur í Dominosdeild kvenna
kl. 16:30 og hátíðarsýningu Leikdeildar Skallagríms kl. 20:30 í Lyngbrekku.
Þessar indælu stúlkur á myndinni
komu til starfsfólksins í Rauða kross
búðinni í Borgarnesi í liðinni viku.
Þær heita Heiða og Júlía og höfðu
bakað piparkökur og selt þær. Gáfu
þær ágóðan af sölunni til Rauða
krossins. „Við hjá RKÍ í Borgar-
nesi þökkum þeim hjartanlega fyrir
framlagið sem mun koma sér vel,“
segir í tilkynningu frá félaginu.
mm
Bökuðu pipar-
kökur og seldu
fyrir RKÍ
Þessar ungu dömur úr Brekkubæj-
arskóla á Akranesi sátu í anddyri
Krónunnar og seldu kerti um síð-
astliðna helgi. Kertin gerðu nem-
endur í Brekkubæjarskóla og voru
þau seld til styrktar hjúkrunar-
og dvalarheimilisins Höfða. All-
ur ágóði kertasölunnar rennur til
kaupa á fjölþjálfa fyrir heimilisfólk-
ið á Höfða.
grþ
Seldu kerti
til styrktar
Höfða
Margt var um að vera í Grundarfirði
fyrsta sunnudag í aðventu. Markaður
var í Samkomuhúsinu þar sem fólk
sýndi og seldi ýmsan varning. Veitt-
ar voru viðurkenningar í Ljósmynda-
samkeppni Grundarfjarðar. Í fyrsta
og öðru sæti urðu myndir eftir Sal-
björgu Nóadóttur. Þriðju verðlaun
hlaut Sigríður Dilja Guðmundsdótt-
ir.
Loks var veitt viðurkenning eftir
kjör á Íþróttamanni Grundarfjarðar
2016. Hann er að þessu sinni Þor-
steinn Már Ragnarsson knattspyrnu-
maður. Þorsteinn lék með Víkingi
Ólafsvík í sumar og átti prýðilegt
sumar. sk
Þorsteinn Már er Íþróttamaður Grundarfjarðar
Þær stóðu vaktina á markaðinu sem einatt fyrr.Salbjörg og Sigríður með viðurkenningar og verðlaun.
Þorsteinn Már Ragnarsson, knatt-
spyrnumaður.