Skessuhorn - 30.11.2016, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 201612
Um áramótin munu Veitur, dótt-
urfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur,
lækka gjöld fyrir raforkudreifingu
og kalt vatn, en hækka verð á heitu
vatni og fráveitu. Í tilkynningu frá
fyrirtækinu kemur fram að jafnaði
muni vatns-, rafmagns- og fráveitu-
kosnaður lækka fyrir íbúðarhús-
næði í Reykjavík um 4.100 krónur á
ári. Þar kemur hins vegar ekki fram
hvernig samanlögð breyting allra
þjónustuþátta breytist hjá íbúða-
eigendum utan höfuðborgarsvæð-
isins. Gjaldið fyrir dreifingu raf-
magns hjá Veitum lækkar um 5,8%
um áramótin. Þá lækkar verð fyrir
kalt vatn um allt að 11,2%. „Með
breytingum á vatnsgjaldi nú um
áramótin verður stigið skref í þá
átt að verðið fyrir þjónustu hverr-
ar vatnsveitu endurspegli rekstr-
arkostnað hennar. Í Reykjavík og
á Akranesi lækkar vatnsgjaldið um
11,2% og í Stykkishólmi um 8,8%.
Vatnsgjald hjá öðrum vatnsveitum
Veitna og gjald fyrir vatn eftir mæli
hjá öllum vatnsveitunum verður
óbreytt. Almennt vatnsgjald ræðst
af stærð húsnæðis en ekki verðmæti
þess. Í mörgum sveitarfélögum er
vatnsgjald hlutfall af fasteignamati.
Vatnsveitur Veitna eru í fimm sveit-
arfélögum og þjóna um 40% lands-
manna,“ segir í tilkynningunni.
Gjaldskrá hitaveitna Veitna hef-
ur fylgt vísitölu neysluverðs undan-
farin ár og gerir það áfram um sinn.
Nú ráðgerir fyrirtækið hækkun um
áramót sem nemur 0,48%. „Miklar
fjárfestingar standa yfir við endur-
nýjun stofnlagna, til dæmis lögnum
milli Reykjavíkur og jarðhitasvæð-
anna í Mosfellsbæ og frá Deild-
artunguhver um byggðir Borgar-
fjarðar og á Akranes. Gjaldskrá
hitaveitna þarf að hljóta staðfest-
ingu atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytisins.“
Loks mun verð fyrir fráveitu
hækka um 1,6%. „Gjald fyrir frá-
veituþjónustu Veitna hefur fylgt
breytingum á byggingarvísitölu og
endurspeglar hækkunin nú breyt-
inguna á milli ára. Fráveitugjaldið
hjá Veitum miðast við stærð hús-
næðis. Á meðal fjárfestinga sem
standa yfir er uppbygging nýrra
fráveitukerfa á Kjalarnesi, Akra-
nesi og í Borgarbyggð. Af þeim
eru miklar umhverfisbætur og
að þeim loknum mun skólp ekki
lengur streyma út um fjölda lítilla
útrása í fjörurnar. Veitur annast
uppbyggingu og rekstur fráveitu í
Reykjavík, Borgarnesi, á Akranesi,
Bifröst, Hvanneyri, Varmalandi og
í Reykholti.“
mm
Gjaldskrárbreytingar
framundan hjá Veitum
Vinnumálastofnun opnaði 21.
nóvember sl. Greiðslustofu hús-
næðisbóta og upplýsinga- og um-
sóknarvefinn www.husbot.is. Þar
geta leigjendur sótt um húsnæð-
isbætur samkvæmt nýjum lögum
um húsnæðisbætur sem taka gildi
1. janúar næstkomandi. Lög nr.
75/2006 um húsnæðisbætur voru
samþykkt á Alþingi sl. sumar og
taka gildi 1. janúar 2017. Á sama
tíma falla úr gildi lög um húsaleigu-
bætur og hlutverk sveitarfélaganna
varðandi útgreiðslu húsnæðisstuðn-
ings til leigjenda flyst til Greiðslu-
stofu húsnæðisbóta.
Markmið laga um húsnæðisbæt-
ur er að lækka húsnæðiskostnað
efnaminni leigjenda með greiðslu
húsnæðisbóta vegna leigu á íbúðar-
húsnæði og draga úr aðstöðumun
á húsnæðismarkaðnum. Vinnu-
málastofnun annast framkvæmd
húsnæðisbótakerfisins sem er fjár-
magnað að fullu úr ríkissjóði. Við
útreikning húsnæðisbóta er tekið
mið af fjölda heimilismanna óháð
aldri, leigufjárhæð, öllum tekjum
og nettó eign, þ.e. eignum að frá-
dregnum skuldum.
Inni á nýja vefnum www.hus-
bot.is er að finna allar upplýsingar
sem varða húsnæðisbætur og um-
sóknarferlið sjálft auk þess sem þar
er að finna reiknivél sem hjálpar
leigjendum að átta sig á upphæð
mögulegra húsnæðisbóta. Fyrstu
greiðslur samkvæmt lögum um
húsnæðisbætur verða greiddar út 1.
febrúar 2017. mm
Opnað fyrir umsóknir um húsnæðisbætur
Bæjarráð Akraness samþykkti ný-
verið tillögu bæjarstjóra um heim-
ild til að selja ritið Sögu Akraness
á menningarstofnunum bæjarins.
Akraneskaupstaður eignaðist 250
sett af ritinu þegar fyrirtækið Upp-
heimar varð gjaldþrota. Fyrir lager-
inn greiddi Akraneskaupstaður 500
þúsund krónur en ásamt Sögu Akra-
ness fékk bæjarfélagið einnig töluvert
magn af Árbók Akraness. Regína Ás-
valdsdóttir bæjarstjóri vonast til að
bæjarbúar vilji eignast eintak af bók-
unum gegn vægu gjaldi þar sem það
sé engum til gagns að láta þær ryk-
falla í geymslum.
Fyrra bindi Sögu Akraness spann-
ar tímabilið frá landnámstíð til 1700.
Sögusviðið er landnám Ketils og
Þormóðs Bresasona. Bresasynir voru
sem kunnugt er af gelískum ættum
og áttu mikil tengsl við Suðurey en
þaðan koma meðal annars nöfnin
Kalman og Bekan sem má finna á
Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. Annað
bindi gerir átjándu öldinni skil. Upp-
bygging sjávarútvegsins og sjósókn
Akurnesinga mynda þar ákveðna
þungamiðju. Höfundur Sögu Akra-
ness er Gunnlaugur Haraldsson
sagnfræðingur. Bækurnar koma í
sölu í þessari viku og verða seldar á
Bókasafni Akraness og Byggðasafn-
inu að Görðum. Einnig verður versl-
uninni Eymundson á Akranesi boðið
að selja bækurnar. mm
Saga Akraness seld á menningar-
stofnunum bæjarins
Uppskeruhátið hestamannafélags-
ins Snæfellings fór fram í Klifi í
Ólafsvík á laugardagskvöldið. Þar
voru veittar viðurkenningar fyr-
ir góðan árangur á árinu, bæði í
keppni og ræktun. Öll börn, ung-
lingar og ungmenni sem höfðu
keppt á árinu fengu viðurkenningu.
Hestaíþróttamaður ársins hjá Snæ-
fellingi var Siguroddur Pétursson
og Þotuskjöldinn fékk Nadine E.
Walter fyrir æskulýðsstarf. Rækt-
unarbú ársins hjá Snæfellingi var
Berg í Grundarfirði.
Efstu stóðhestar í eigu félags-
manns voru: Fjögurra vetra Sæ-
grímur frá Bergi með 8,31. Efsti
fimm vetra stóðhesturinn var Goði
frá Bjarnarhöfn með 8,46. Í flokki
sex vetra var Hildingur frá Bergi
með 8,41 í einkunn og sjö vetra
og eldri var Bruni frá Brautarholti
með 8,47 í aðaleinkunn. Efstu
hryssur voru: Fjögurra vetra; Ásjá
frá Brautarholti 8,02, fimm vetra
Drápa frá Brautarholti 7,93, sex
vetra Hafdís frá Bergi 8,15 og sjö
vetra og eldri var það Brynglóð frá
Brautarholti með 8,27.
iss
Berg er ræktunarbú Snæfellings 2016
Fjölskyldan á Bergi, en bú þeirra er ræktunarbú ársins.
Siguroddur og Ásdís.Gísli, Hafdís og Fjóla tóku við viðurkenningum í barnaflokki.