Skessuhorn - 30.11.2016, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 201614
Opinn íbúafundur í tengslum
við endurskoðun aðalskipulags í
Grundarfirði var haldinn í síðustu
viku. Á fundinum var kynnt grunn-
vinna sem farið hefur fram og leit-
að til íbúa sveitarfélagsins um ýmis
mikilvæg atriði sem snerta daglegt
líf og framtíðaruppbyggingu. Ráð-
gjafafyrirtækið Alta sér um skipu-
lagsráðgjöf við endurskoðun aðal-
skipulagsins og verkefnisstjóri er
Björg Ágústsdóttir, lögfræðingur
og ráðgjafi. Íbúar Grundarfjarð-
arbæjar voru hvattir til að mæta
á fundinn, svo að sjónarmið sem
flestra kæmu fram við vinnu aðal-
skipulags fyrir bæjarfélagið. Björg
segir ágætis mætingu hafa verið á
fundinn. „Það voru góðar umræð-
Góðar umræður á íbúafundi í Grundarfirði
Á fundinum voru rædd ýmis atriði sem snerta hagsmuni íbúa Grundarfjarðar-
bæjar. Ljósm. tfk.
Árlegi Malaví markaðurinn var hald-
inn í Grundaskóla á Akranesi síðast-
liðinn fimmtudag. Fjölmargir lögðu
leið sína á markaðinn en þar var hægt
að kaupa ýmsar vörur sem yngri
nemendur skólans hafa unnið á liðn-
um vikum. Unglingadeildin hélt úti
kaffihúsi í sal skólans, þar sem með-
al annars var boðið upp á nýbakaðar
vöfflur og tónlistaratriði.
Í áraraðir hefur það verið sið-
ur hjá Grundaskóla að nemend-
ur og starfsmenn gefi ekki hvort
öðru jólagjafir. Þess í stað samein-
ast þeir um stóra jólagjöf til Malaví,
sem er eitt af fátækustu ríkjum ver-
aldar. Skólinn hefur undanfarin ár
verið í samstarfi við Rauða krossinn
að umfangsmikilli uppbyggingu á
skólastarfi fyrir fátæk börn í Malaví.
Að sögn Sigurðar Arnars Sigurðs-
sonar skólastjóra er mikil ánægja
innan skólans og þakklæti fyrir þær
góðu undirtektir sem Malaví mark-
aðurinn og söfnunin fær á hverju
ári. „Við höldum áfram veginn og
munum halda áfram að styrkja þetta
góða málefni,“ segir hann.
grþ
Fjölmenni á Malaví markaði
Ýmislegt jólaföndur var til sölu á Malaví markaðinum og seldist nánast allt upp.
Fjöldi fólks lét sjá sig á markaðinum og styrkti málefnið með
kaupum á vörum sem yngri nemendur skólans gerðu.
ur og mjög mikill áhugi og eftir
fundinn liggur fyrir góður efnivið-
ur úr umræðunum.
Hún segir að til umræðu hafi
verið stefnumótandi atriði sem
snúa að samfélagi, byggð og nátt-
úru og atvinnu. Sérstaklega var
leitað eftir afstöðu fundarmanna í
málum sem snerta hagsmuni allra
íbúa, bæði í dreifbýli og þéttbýli.
„Það er margt undir og við spurð-
um opinna spurninga. Við viljum
heyra upplifun fólks, spyrja hvaða
staðir og hlutir skipta máli. Vinn-
an við endurskoðun aðalskipulags-
ins felur ennfremur í sér að unnið
verði svokallaður rammahluti að-
alskipulags fyrir miðbæ, hafnar-
svæði og Framnes. Björg segir að
kafað sé aðeins dýpra í þessi svæði
en gert er í aðalskipulagi. „Bæj-
arstjórn vildi skoða þessi þró-
unarsvæði nánar, búa í haginn og
mynda heildarstefnu fyrir svæðin
sem hægt er að styðjast við þegar
deiliskipulag verður gert fyrir ein-
staka hluta þess síðar meir. Aðal-
skipulag er meginstjórntæki sveit-
arstjórna og þó uppbygging verði
kannski ekki á allra næstu árum,
þá þarf að skipuleggja framtíðar-
breytingar. Þó manni finnist 20 ár
langur tími, þá er tíminn fljótur að
líða og mikilvægt að gera ráð fyr-
ir því og hafa skýra sýn þannig að
til lengri tíma séu allir að ganga í
takt. Eins og með uppbyggingu á
miðbæ, hvernig við viljum við hafa
það svæði? Það er mikilvægt að
hafa skýra sýn til framtíðar þann-
ig að fjárfestingar einstaklinga og
sveitarfélagsins séu markvissar og í
takt við þessa sýn,“ segir Björg að
endingu. grþ
Unglingadeildin hélt úti kaffihúsi þar sem boðið var upp á
nýbakaðar vöfflur og tónlistaratriði.
Laugardaginn 18. nóvember síðast-
liðinn varð Hildibrandur Bjarna-
son bóndi, hákarlaverkandi og
ferðamálafrömuður í Bjarnarhöfn
í Helgafellssveit áttatíu ára. Af því
tilefni bauð hann og fjölskyldan
vinum og vandamönnum til veislu
og var fjölmenni saman komið í
Bjarnarhöfn. Meðal annarra voru
átta systkini Hildibrandar, sem
kenna sig við uppeldisstöðvarn-
ar í Asparvík á Ströndum, mætt til
að samfagna með afmælisbarninu.
Flutt voru ávörp, sungið, farið með
gamanmál og notið ljúffengra veit-
inga.
Hildibrandur er himinlifandi
með góðan dag. Fjöldi ættingja og
vina kom, en um 300 manns voru í
veislunni. „Það voru ýmis góð til-
efni til að fagna um þessar mundi,
ekki einvörðungu að ég ætti af-
mæli. Nú eru 65 ár liðin frá því fjöl-
skyldan flutti frá Asparvík og konan
átti afmæli í vikunni. Þá er gamla
bændakirkjan hérna 160 ára, helm-
ingi eldri en ég.“ Þess má geta að
systkinin eru öll fædd í Asparvík,
utan Valgeirs, sem fæddist eftir að
flutt var að Bjarnarhöfn.
mm/ Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.
Hildibrandur hélt
upp á áttatíu árin
Fjölmörg tilefni til að fagna
segir afmælisbarnið
Stefán Bjarnason færði Hildibrandi þennan forláta álf sem eigendur Ytri-Kóngs-
bakka og Hraunholta kváðust hafa fundið úti í hrauni og ákveðið að álfurinn ætti
hvergi betur heima en hjá Hildibrandi.
Hildibrandur í Bjarnarhöfn og Hrefna
Garðarsdóttir eiginkona hans.
Systkinahópurinn frá Asparvík og síðar Bjarnarhöfn. Standandi f.v. Valgeir, Signý, Guðrún, Ásta, Jón, Sesselja, Karl og Hildi-
brandur. Aldursforsetinn Aðalheiður situr fremst. Tíunda systkinið var Reynir, námsstjóri, en hann féll frá um fertugt.
Sungið fyrir afmælisbarnið og gesti. Hér stjórnar Hólmfríður Friðjónsdóttir
karlakórnum Kára í söng.