Skessuhorn - 30.11.2016, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2016 15
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
FLOKKSSTJÓRI ÓLAFSVÍK
Starf flokksstjóra hjá þjónustustöðinni í Ólafsvík er
laust til umsóknar. Um 100% starf er að ræða.
Starfssvið
Viðhald, þjónusta og nýbyggingar vega•
Ýmis vinna í starfsstöð Ólafsvík. •
Menntunar- og hæfniskröfur
Almennt grunnnám•
Almenn ökuréttindi, meirapróf er æskilegt•
Vinnuvélaréttindi•
Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt•
Góðir samstarfshæfileikar•
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar
jafnt báðum kynjum og í samræmi við mannauðsstefnu
Vegagerðarinar eru konur með umbeðnar hæfniskröfur
sérstaklega hvattar til að sækja um starfið.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og
Starfsgreinasambands Íslands.
Umsóknarfrestur er til 12. desember 2016. Umsóknir berist
mannauðsstjóra Vegagerðarinnar, netfang oth@vegagerdin.
is. Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt
upplýsingum um þá menntun og hæfni sem óskað er eftir.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Mar
Óskarsson síma 522-1000, smo@vegagerdin.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þriðjudagurinn 6. des. 2016
kl. 20:30
í Bókhlöðu Snorrastofu
Konungsríkið Ísland
1918–1944
Magnús K. Hannesson lögfræðingur og sagnfræðingur flytur
Umræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
Um breytta stjórnskipun Ís lands
frá og með 1. desember 1918 að
Danmörk viðurkenndi Ísland
frjálst og fullvalda ríki. Sagt
verður frá konungi Ís lands, utan -
ríkismálum, sam skiptum þjóð-
anna tveggja og stofnun lýðveldi-
sins Íslands 17. júní 1944.
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Hröð og góð þjónusta um allt land
Eigum einnig til mikið úrval af
perum og öryggjum í bíla
Áratuga
reynsla
Langstærstir í viðgerðum og sölu á
Alternatorum og Störturum
Áhöfnin á línubátnum Trygga Eð-
varðs SH frá Rifi hefur síðan 9.
október í haust róið frá Hólmavík.
„Við höfum róið nokkuð stíft að
undanförnu,“ segir Gunnar Helgi
Baldursson skipstjóri í samtali við
Skessuhorn. „Við erum núna að taka
tíunda róðurinn í röð og erum þrír
um borð, róum með 48 bala,“ sagði
Gunnar þegar rætt var við hann síð-
asta mánudag. Beitt er í Rifi og hef-
ur verið ekið með balana til Hólma-
víkur þar sem þeir hafa verið teknir
um borð. Aflabrögð hafa verið ágæt
að undanförnu.
„Við erum komnir með yfir 100
tonn síðan við komum hingað og
er uppistaðan góður þorskur sem
fer allur á markað. Fiskverð núna er
reyndar 20 til 30 prósent lægra en
á sama tíma á síðasta ári, en þegar
brælur hafa verið höfum við þó get-
að fengið betra verð. Það er fínt að
róa héðan. Þegar ekki gefur vegna
brælu höfum við getað leitað inn
á firðina í skjól. Núna erum við á
veiðum inni á Reykjafirði og svo
höfum við verið inni á Steingríms-
firði, svo það er allsstaðar hægt að
finna skjól.“
af/ Ljósm. Guðmundur Njáll Þórð-
arson sem er í áhöfn Tryggva Eðvarðs.
Þeir á Tryggva Eðvarðs hafa að
undanförnu róið frá Hólmavík
Tryggvi Eðvarðs SH. Á útleið með 48 bala.
Gylfi Scheving Ásbjörnsson kátur með
aflabrögðin.
Gengið frá aflanum á Hólmavík. Gylfi Scheving bregður á leik á land-
leið.
Gunnar Helgi Baldursson goggar
fiskinn inn.
www.skessuhorn.is