Skessuhorn - 30.11.2016, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2016 19
ferðaþjónustunnar. „Vöxtur ferða-
þjónustunnar, sem hefur ekki farið
framhjá neinum, hefur ekki leitt til
aukinnar fjölbreytni fyrirtækja innan
geirans. Ný störf eru því ef til vill ekki
jafn vel launuð og þau gætu verið,“
sagði Oddur en bætti þó við að ný-
sköpun í ferðaþjónustu hefði hjálpað
til við að auka fjölbreytileikann und-
anfarin misseri. „Íslendingar eru mjög
framarlega í nýsköpun samkvæmt öllu
mælikvörðum, hver sem ástæðan er.
Startup Tourism hefur skapað vett-
vang fyrir fólk sem er að stofna fyr-
irtæki og frumkvöðlaumhverfið hef-
ur tekið stakkaskiptum á undanförn-
um árum. Orðinn er til stór hópur
eldri og reyndari frumkvöðla sem eru
fengnir til að deila reynslu sinni öðr-
um til góða,“ sagði Oddur.
Góð hugmynd á oft
einmanalega æsku
Þeir sem eru með nýtt fyrirtæki hönd-
unum fá þannig endurgjöf frá leið-
beinendum Startup Tourism sem og
fólki úr atvinnulífinu. „Hvers kyns
endurgjöf er mikilvæg. Íslenskir frum-
kvöðlar eiga oft erfitt með að kynna
hugmyndina og markaðssetja sig á
meðan ferlinu stendur og fá þannig
viðbrögð frá væntanlegum kaupend-
um. Þeir vilja helst bíða þangað til allt
er tilbúið,“ sagði Oddur og bætti því
við að það væri ekki endilega besta
leiðin. Með því að hefja markaðssetn-
ingu fyrr væri hægt að laga vöruna að
óskum kaupenda áður en hún kæmi á
markað. Sú væri hins vegar alls ekki
alltaf raunin. „Góð hugmynd á oft
einmanalega æsku,“ sagði Oddur en
bætti því við að endingu að opið væri
fyrir umsóknir í Startup Tourism og
hvatti alla sem hefðu góða hugmynd
í maganum að hafa samband, sækja
um eða þiggja ráðgjöf, sem boðið væri
upp á endurgjaldslaust. kgk
Laugardaginn
03.12.2016
Kl 13 -17
Í gömlu hlöðunni í Nesi Reykholtsdal
Handverk og matvara úr héraði
Hlökkum til að sjá sem flesta
Jólamarkaður
Hér eru
fyrir þá sem eig
a allt
Erpsstaða ís.
Sauðfjárbúið Ytra Hólmi.
Geitaafurðir frá Háafelli.
Nautakjöt frá Glitsstöðum.
Afurðir frá Bjarteyjarsandi.
Matvara frá Kjalvararstöðum.
Jarðarberja sýróp og sultur frá
Sólbyrgi.
Ilmkjarnaolíur frá Rauðsgili.
Náttúrulegar sápur.
Kósýföt.
Handverk úr tré.
Límmiðar frá B og G studio.
Íslenskt sinnep. Mysudrykkur.
Töskur úr roði og leðri.
Glerlampar.
Kökur og föndur til sölu.
Kaffi sala ungmennafélags Reykdæla.
Bjartmar frá Norðurreykjum.
Dúnn og gærur.
Kærleikssetrið býður upp á einkatíma í miðlun og heilun. Tímapantanir í
síma 8943061. Skyggnilýsingafundur í Gólfskálanum kl: 17:30
Dagur nýsköpunar var haldinn síðast-
liðinn miðvikudag í Landnámssetrinu
í Borgarnesi. Samtök sveitarfélaga á
Vesturlandi standa fyrir dagskránni.
Páll S Brynjarsson, framkvæmdastjóri
SSV, greindi frá því að með því að
halda daginn nú væri verið að endur-
vekja hefð sem legið hefur í dvala um
skeið. Sömuleiðis voru veitt nýsköp-
unarverðlaun SSV fyrir árið 2016, en
þar er einnig endurvakin hefð sem
viðhöfð var um árabil. Að lokum var
síðan úthlutað úr Uppbyggingarsjóði
Vesturlands, en frá nýsköpunarverð-
laununum og úthlutun úr sjóðnum
er greint er ítarlega frá á öðrum stað í
Skessuhorni vikunnar.
Dagskráin hófst á erindum Bjarna
Gylfasonar, hagfræðings hjá Sam-
tökum iðnaðarins og Odds Sturlu-
sonar frá Startup Iceland. Hér á eftir
fer úrdráttur blaðamanns úr erindum
þeirra.
Hægt að bæta
framleiðni á Íslandi
Það var Bjarni sem reið á vaðið og hóf
hann tölu sína á léttu nótunum. Hann
sagði að dagsdaglega starfaði hann
sem hálfgerður lobbíisti en fengi á
tyllidögum að ræða nýsköpun, fram-
leiðni og fleira skemmtilegt. Hann
sagði markmið samtakanna að efla
hvers konar íslenskan iðnað og auka
samkeppnishæfni hans. Til að vinna
að því markmiði reyndu samtökin að
hvetja til aukinnar menntunar, ný-
sköpunar og betri framleiðni. Síðast-
nefnda hugtakið; framleiðni, ræddi
hann sérstaklega í erindi sínu. „Ís-
lendingar koma vel út þegar skoðuð
er verg landsframleiðsla á hvern íbúa.
Hins vegar komum við ekki nógu vel
út þegar skoðuð er framleiðni, eða
landsframleiðsla á hverja unna vinnu-
stund,“ sagði hann en bætti því við að
það þyrfti ekki endilega að líta nei-
kvæðum augum. „Að verg landsfram-
leiðsla sé góð en að við komum verr
út þegar landsframleiðsla er skoðuð
per vinnustund er lán í óláni,“ sagði
Bjarni og bætti því við að það þýddi
að verðmætasköpunin yrði ekki auk-
in með því að auka vinnuna og fjölga
vinnustundum, heldur með því að fá
meira út úr hverri vinnustund. Hann
sagði það gott, því fjölgun vinnu-
stunda væru ákveðnar skorður sett-
ar, til dæmis hvað varðar mannfjölda.
Aukin verðmætasköpun með bættri
framleiðni byggði hins vegar á hug-
viti núverandi vinnuafls og þeirri leið
væru í raun mjög fáar skorður sett-
ar. Til þess að bæta framleiðni sagði
hann lykilatriði að bæta hæfni fólks
og auka þekkingu vinnuafls í landinu.
Þannig mætti nýta krafta og hæfileika
núverandi vinnuafls til að finna leiðir
til að fá meira út úr „hráefninu“. En
til þess að svo mætti verða sagði hann
að þyrfti skilvirkari og betri stjórnun á
öllum sviðum, sem og aukna fjárfest-
ingu til nýsköpunar, því í nýsköpun
fælist einmitt að fá meira fyrir minni
vinnu með frumlegum lausnum og
nýjum leiðum. Fjárfesting í hvers
konar innviðum sagði hann hins vegar
að væri einn stærsti veikleiki íslenska
hagkerfisins.
Íslendingar framarlega
í nýsköpun
Næstur tók til máls Oddur Sturluson
og sagði frá Startup Tourism, sem er
svokallaður viðskiptahraðall í ferða-
þjónustu. Starfseminni væri ætlað að
aðstoða frumkvöðla að skapa sína vöru
og þjónustu og komast á þann stað að
fyrirtækin yrðu lífvænleg. Markmið-
ið með því væri að hvetja til nýsköp-
unar í ferðaþjónustu og styrkja stoð-
ir fyrirtækja sem þegar starfa í grein-
inni, fjölga afþreyingarmöguleikum
á landsbyggðinni, dreifa ferðamönn-
um víðar um landið og styrkja innviði
Dagur nýsköpunar var haldinn í Borgarnesi
Bjarni Gylfason, hagfræðingur hjá Sam-
tökum iðnaðarins.
Oddur Sturluson sagði frá Startup
Tourism.