Skessuhorn


Skessuhorn - 30.11.2016, Qupperneq 24

Skessuhorn - 30.11.2016, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 201624 Uppskeruhátíð ferðaþjónustunn- ar á Vesturlandi var haldin í Stykk- ishólmi síðastliðinn fimmtudag. Dagskráin var skipulögð af Mark- aðsstofu Vesturlands og viðburðinn sóttu ferðaþjónar víða að úr lands- hlutanum til að sýna sig, sjá aðra og gleðjast í góðum hópi. Blaðamaður Skessuhorns slóst með í för og hér á eftir fer frásögn af þéttskipaðri dag- skrá uppskeruhátíðarinnar. Dagurinn hófst með léttum há- degisverði á Hótel Fransiskus og síðan tóku við fimm stutt erindi áður en hópurinn gekk um Stykk- ishólmsbæ og heimsótti sjö ferða- þjónustufyrirtæki í bænum. Dag- skránni lauk síðan með kvöldverði á Narfeyrarstofu. Fór yfir verkefni Markaðsstofunnar Kristján Guðmundsson, forstöðu- maður Markaðsstofu Vestur- lands, hóf daginn formlega að há- degisverði loknum með stuttu er- indi þar sem hann sagði frá starf- semi Markaðsstofunnar á liðnu ári. Hann sagði fulltrúa Markaðsstof- unnar hafa tekið þátt í ferðasýning- unum Mid-Atlantic og Vestnorden á liðnu ári, sem og sótt vinnustof- ur í Montréal í Kanada og Boston og Washington í Bandaríkjunum í samstarfi við Íslandsstofu. Þá hefði Markaðsstofa Vesturlands stað- ið fyrir blaðamannferðum, einnig í samstarfi við Íslandsstofu. Sagði hann blaðamannaferðirnar hafa gefið góða raun og sagði frá heim- sókn þýskra blaðamanna til lands- hlutans. „Það skilaði meðal annars mjög flottri umfjöllun um sögu- staði á Vesturlandi í stórum þýsk- um miðlum, til dæmis Der Spie- gel,“ sagði Kristján og bætti því við að grein um heimsóknina sem birt var á vef Der Spiegel hafi náð til 10 milljóna manna. Kristján sagði samstarf mark- aðsstofa landshlutanna hafa aukist mikið að undanförnu, enda væru hagsmunir landsbyggðarinnar sam- eiginlegir. Þá ynnu markaðsstof- urnar náið með Ferðamálastofu og Stjórnstöð ferðamála. Visit the locals Efni sem unnið væri að núna sagði Kristján meðal annars verkefnið „Visit the locals“, sem og gerð myndbanda af náttúru og umhverfi frá hverju sveitarfélagi á Vestur- landi. Sýndi hann gestum mynd- bönd frá Akraneskaupstað og Hval- fjarðarsveit, en fleiri myndbönd eru ekki fullunnin enn sem komið er. Þá er einnig unnið að því að taka vetrarljósmyndir frá landshlutan- um sem nota á í kynningarstarfi, en hlé var gert á því verkefni þegar tók að vora í ár. „Stefnan er að koma því aftur af stað eftir áramót þeg- ar það verður kominn snjór,“ sagði Kristján. Þau verkefni sem framundan eru sagði Kristján vera að samræma upplýsingagjöf á Vesturlandi og að auka samstarf upplýsingamið- stöðvanna. Einnig væri DMP verk- efnið að fara af stað, stefnumótandi stjórnunaráætlanir í ferðaþjón- ustu. „Hvar viljum við byggja upp og hvernig, er spurningin sem á að reyna að svara í því verkefni,“ sagði Kristján að lokum. Sagt frá Svæðisgarði Snæfellsness Næst tók til máls Ragnhildur Sig- urðardóttir, framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins Snæfellsness. Hún sagði frá því að yfir hundrað manns hafi komið að undirbúningi svæð- isgarðsins og skapað sameiginlega framtíðarsýn fyrir sveitarfélögin á Snæfellsnesi. Það hafi verið unn- ið í samstarfi við ráðgjafafyrirtækið Alta og síðan sett í formlegt svæðis- skipulagsferli. Þau lykilsvið svæðis- ins sem fram komu í undirbúnings- vinnunni voru upplifun, jarðfræði og strandmenning. Þá hafi áætlun- inni verið skipt í stefnu í skipulags- málum, atvinnumálum og fræðslu- og markaðsmálum. Markmið- um svæðisskipulagsins verði síðan framfylgt í aðalskipulagi sem öll- um sveitarfélögum er skylt að fara eftir. Hún sagði verkefni Svæðisgarðs- ins að laða að fjármagn og fá styrki til ýmissa verkefna á Snæfellsnesi. „Það hefur gengið ágætlega og ætl- unin er að halda áfram, því sú vinna sem þegar hefur verið unnin á því sviði lofar góðu,“ sagði Ragnhild- ur. Verkefnin sem framundan eru sagði hún vera að stýra umferð um svæðið, ákveða hvert skuli beina gestum og hvert ekki. „Það er vel hægt og lýsandi dæmi um það er Bjarnafoss í Staðarsveit. Annað dæmi um það er að finna á Helga- felli, þar sem landeigendur hafa enga hagsmuni af heimsóknum ferðamanna. Þar náðist í góðri samvinnu við landeigendur að út- búa gestasvæði og um leið að beina umferð þangað og þar með stýrt frá öðrum stöðum þar sem land- eigendur kæra sig ekki um um- ferð ferðamanna,“ sagði hún. „Í því verkefni var hlutverk Svæðisgarðs- ins að leiða saman þá aðila sem áttu hlut að máli.“ Meðal verkefna sem framund- an eru hjá Svæðisgarðinum sagði Ragnhildur vera að samræma skilti og merkingar og almennt að gera Snæfellsnes sýnilegra, sem og að kanna enn frekar möguleika á ferðaleiðum og áfangastöðum. Vinna við að auka menntunarstig Efling menntunar í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu er verkefni sem unnið hefur verið af Símennt- unarmiðstöð Vesturlands og greint hefur verið frá í Skessuhorni. Næsta erindi á Uppskeruhátíð ferðaþjón- ustunnar fjallaði um þetta verkefni og var það Inga Dóra Halldórs- dóttir frá Símennt sem tók til máls. Hún sagði að markmið verkefnisins sé að hækka menntunarstig innan þessara greina svo gæði framleiðslu og þjónustu aukist. Kannað var námsframboð sem gæti fallið und- ir þetta verkefni á Vesturlandi sem og fræðsluþörfin. Af hálfu atvinnu- greinarinnar var kallað eftir nám- skeiðum sem væru einhvers konar blanda af stað- og fjarnámi og tækju ekki of mikinn tíma þar sem fólk þyrfti að vera fjarri vinnu. Út frá þarfagreiningunni hefur framboð námskeiða sem tengjast verkefninu verið aukið hjá Símenntunarmið- stöð Vesturlands, Háskólanum á Bifröst og Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Nú stendur yfir kynningarstarf verkefnisins. Sagði hún að það færi fram með markpóstum, fræðsluerindum sem því sem hún hélt á uppskeruhátíð- inni, greinum í blöðum og miðl- um, á heimasíðunni og fleiri stöð- um. Þá sagði hún að verkefnið hafi leitt af sér ánægjulegar aukaafurð- ir. „Til dæmis varð til hálfgerð matarsmiðja, þá jukust samskiptin innan þessa fræðslusvæðis sem og áhugi á nýsköpun þar sem ólíkar greinar voru leiddar saman,“ sagði Inga Dóra. Íslenski ferðaklasinn Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, klasa- stjóri Íslenska ferðaklasans, tók næst til máls og kynnti starfsemi klasans. „Íslenski ferðaklasinn er fyrirtækjadrifinn og verkefnadrif- inn vettvangur fólks sem starf- ar í ferðaþjónustu og tengdum at- vinnugreinum. Hann var stofn- aður árið 2015 með það að mark- miði að efla samvinnu og sam- starf í greininni, efla hvers konar nýsköpun í ferðaþjónustu, stuðla að aukinni fagmennsku og gæð- um og efla innviði greinarinnar,“ sagði Ásta. Hún sagði að aðstand- endur klasans hygðust ná þess- um markmiðum sínum með skil- greindu og verkefnamiðuðu sam- starfi. „Kjarnaverkefnin okkar eru fjárfestingar í ferðaþjónustu, sér- staða svæða, sem er unnin í svæð- isbundnum klösum og miðar að því að styrkja innviði ferðaþjón- ustunnar, og ábyrg ferðaþjónusta,“ sagði Ásta og bætti því við að síð- astnefnda verkefnið, ábyrg ferða- þjónusta, væri hvatningarverkefni þar sem fyrirtæki í ferðaþjónustu væru hvött til að setja sér markmið í samfélagsábyrgð. Starfsemi Íslenska ferðaklasans er hrein viðbót við þá starfsemi sem þegar fer fram á sviði ferða- mála, til dæmis hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, Ferðamála- stofu og Íslandsstofu og er ekki ætlað að koma í stað þeirra. Þvert á móti er honum ætlað að stuðla að auknu samstarfi við þessa aðila sem og aðra um landið allt. „Hér er um að ræða þverfaglegt samstarf sem styrkir og eflir greinina með markvissum hætti.“ Tveir í Startup Tourism Síðasta erindið á dagskrá flutti Svana Björk Ólafsdóttir frá Star- tup Tourism. Hún sagði lítil- lega frá fyrirtækinu, sem áður hét Klak Innovit. „Þetta er einkafyrir- tæki sem er ekki rekið í hagnað- arskyni heldur til að aðstoða fólk sem vill stofna fyrirtæki utan um góða hugmynd í ferðaþjónustu,“ sagði Svana. Hún sagði að sér þætti ánægjulegt að greina frá því á þessum vettvangi að Vestlending- ar hafi átt tvo fulltrúa af tíu sem valdir hafi verið til þátttöku í við- skiptahraðlinum Startup Tourism á síðasta ári. Það eru annars veg- ar ferðaskrifstofan Cold Spot sem gerir út frá Hvanneyri og fyrirtæk- ið Criss Cross sem hyggst skipu- leggja matarferðir um Vesturland. Hún sagði markmiðið með starfsemi fyrirtækisins að hvetja til nýsköpunar á sviði ferðaþjónustu, styrkja fyrirtæki sem þegar störf- uðu í greininni, fjölga afþreying- armöguleikum á landsbyggðinni og dreifa ferðamönnum víðar um landið. „Einnig er leitað að tækni- lausnum, hvort sem það tengist af- þreyingu eða öðru, til að styrkja innviði ferðaþjónustunnar,“ sagði Svana. Nefndi hún sem dæmi fyr- irtækið Bergrisa, sem hefur hann- að hugbúnaðar- og tæknilausn sem gerir ferðafólki mögulegt að greiða fyrir þjónustu sjálfvirkt. Þar með væri möguleiki á að taka gjald fyrir veitta þjónustu, hvort sem það væru salerni eða bílastæði, án þess að rekstraraðili þyrfti að hafa starfsmann á staðnum. Að lokum nefndi hún að opið væri fyrir í umsóknir í Startup Ice- land og umsóknarfrestur væri til 16. janúar. „Þá er rétt að geta þess að það er möguleiki fyrir starfandi fyrirtæki að sækja um, til dæmis ef þau eru með hugmynd að nýrri vöru sem þau vilja þróa. Fyrirtæk- ið þarf ekki að vera alveg nýtt, að- eins með góða hugmynd,“ sagði Svana. Stykkishólmur var gestgjafi ferðaþjóna á Vesturlandi Dagskráin hófst með fimm erindum á Hótel Fransiskus sem öll tengdum ferðaþjónustu. Hér hlýðir hópur ferðaþjónustufólks af Vesturlandi á eitt slíkt. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir sagði frá starfsemi Íslenska ferðaklasans. Sigríður Erla Guðmundsdóttir segir frá Leir 7.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.