Skessuhorn - 30.11.2016, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2016 25
Farið í ferð um bæinn
Að erindum loknum hélt hópurinn
áleiðis niður á höfn þar sem Sæ-
rún, eitt skoðunarskipa Sæferða,
lá við bryggju. Gekk hópurinn um
borð, skoðaði sig lítillega um áður
en gestir voru fengnir til að kynna
sig og sína starfsemi í örfáum orð-
um. Því næst tók Nadine E. Wal-
ter, sölu- og markaðsstjóri Sæferða,
sér stöðu við matsöluna í Særúnu
þar sem hún hóf sinn feril hjá Sæ-
ferðum eitt sumar. Hún sagði lítil-
lega frá skipinu, sem notað er við
eyjasiglingar og skoðunarferðir,
en á því er hægt að sigla mjög ná-
lægt eyjunum í nágrenni Stykkis-
hólms. Því næst bauð hún hópnum
að þiggja kaffi og kökur í móttöku
og verslun Sæferða og sagði lítil-
lega frá fyrirtækinu sjálfu.
Hópurinn arkaði síðan sem leið
lá í Norska húsið - Byggðasafn
Snæfellinga og Hnappdæla. Þar er
á jarðhæð sýningin Aton, sýning
um húsgagnasmiðjuna Aton sem
rekin var um árabil í Stykkishólmi.
Á annarri hæð hússins er innréttað
heimili í heldri manna stíl. Kom á
daginn meðan á heimsókn hóps-
ins í Norska húsinu stóð að einn
gestanna, Áslaug Þorvaldsdóttir
í Landnámssetrinu í Borgarnesi,
hafði búið í húsinu ásamt fjölskyldu
sinni þegar hún var ung stúlka. Að-
spurð sýndi hún nokkrum gestum
hvar herbergið hennar hefði verið
og lýsti því hvernig hefði verið um-
horfs í húsinu þegar hún bjó þar.
Æðarsetur Íslands
Því næst var haldið á sýninguna
Æðarsetur Íslands þar sem Erla
Friðriksdóttir tók á móti hópnum.
Flutti hún erindi um æðarfuglinn,
íslenska æðardúninn og vinnslu á
honum. Kom fram í máli hennar að
aðeins fjögur tonn væru framleidd
af hreinsuðum æðardúni í heim-
inum á ári og þrjú þeirra kæmu
frá Íslandi. Hins vegar væri stærsti
markaðurinn fyrir æðardún í Jap-
an og þar fengist gríðarlega hátt
verð fyrir dúninn. Ein dúnsæng í
Japan kostaði til að mynda um og
yfir tvær milljónir króna. Auk þess
sagði hún stuttlega frá sýningunni
Æðarsetur Íslands, sem inniheldur
meðal annars litla hlunnindasýn-
ingu þar sem handverk er til sýn-
is, gömul áhöld og fleira. Þá sýndi
hún gestum stutta heimildarmynd
um æðarfuglinn og svaraði spurn-
ingum úr sal. Sköpuðust nokkrar
umræður um æðarfuglinn og dún-
inn í kjölfar þess.
Ylur í kroppinn
á Hótel Egilsen
Næsti viðkomustaður var Hótel Eg-
ilsen þar sem Gréta Sigurðardótt-
ir bauð gestum upp á heitt súkkul-
aði, smákökur og jólabjór. Hótelið
er tíu herbergja og sagði hún rekst-
ur þess ganga vel. Kvaðst Gréta
hafa í gegnum árin lagt áherslu á
að andrúmsloftið og viðmótið væri
heimilislegt og vingjarnlegt. Fengu
nokkrir gestir sem óskuðu þess sér-
staklega að fara litla skoðunarferð
um hótelið, ásamt Elínu Rögnu
Þórðardóttur, sem tók við sem hót-
elstýra á haustmánuðum og stýrir
nú öllum daglegum rekstri á Hót-
el Egilsen. Annars naut hópurinn
sín vel með drykkjarföngin og pip-
arkökurnar og var það mál manna
að heita súkkulaðið væri sérlega
bragðgott.
Söfn og gallerí
Eldfjallasafnið var næsti viðkomu-
staður hópsins, en þar er sýn-
ing á alþjóðlegri list og munum
sem tengjast eldgosum og áhrifum
þeirra víða um heim, sem og steins
frá tunglinu. Jarðfræðifróðleik má
lesa af spjöldum sýningarinnar og
eftirprent frægra málverka af eld-
gosum var að finna á safninu, þar á
meðal eftir Andy Warhol. Jarðfræði
Snæfellsness gátu gestir fræðst um
og skoðað allar algengustu berg-
tegundir sem finna má á Íslandi.
Gerðu nokkrir gesta sér það að leik
að geta sér til um bergtegundirnar,
með misjöfnum árangri.
Næst lá leiðin á opna vinnustofu
Leirs 7 og Smávina þar sem Sig-
ríður Erla Guðmundsdóttir, eig-
andi Leirs 7 og Lára Gunnarsdótt-
ir í Smávinum tóku á móti hópn-
um. Sigríður sagði frá keramik-
inu, en hún vinnur helst úr íslensk-
um leir sem numinn er í Fagradal
á Skarðsströnd. Býr hún meðal
annars til borðbúnað og kom þá á
daginn að bollarnir sem hópurinn
hafði drukkið súkkulaði úr á Hót-
el Egilsen fyrr í ferðinni komu ein-
mitt þaðan. Einnig mátti sjá diska,
smjörskrín og fleira og nokkrir
gesta voru svo hugfangnir að þeir
drógu fram veskið og fengu muni
keypta.
Lára Gunnarsdóttir í Smávinum
sagði einnig stuttlega frá sinni starf-
semi á verkstæði Leirs 7 og Smá-
vina. Hún sagði frá því þegar hún
starfaði sem grafíker en tók sér fyrir
tilviljun birkigrein í hönd og tálg-
aði sína fyrstu fígúru með grafík-
járnunum sínum í byrjun tíunda
áratugarins. Heillaðist hún svo
mjög af birkinu og eiginleikum þess
að það hefur allar götur síðan verið
hennar aðal viðfangsefni.
Sturla ræddi við gestina
Síðasti ferðamannastaðurinn sem
hópurinn sótti heim var Vatnasafn-
ið og þar flutti Sturla Böðvarsson,
bæjarstjóri í Stykkishólmi, stutta
tölu. Ræddi hann ferðaþjónustuna
auk þess sem hann rakti í stuttu máli
sögu Vatnasafnsins, húsnæðis sem
áður hýsti bókasafnið. Vatnasafn-
ið er skapað af listakonunni Roni
Horn og þar er að finna í glersúlum
vatn úr 24 íslenskum jöklum. Hafði
Sturla orð á því að safnið væri ein-
stakt og síbreytilegt eftir árstíma og
eftir því hvenær fólk kæmi í heim-
sókn að deginum. Sagði hann því al-
gengt að gestir bæjarins sem litu inn
í safnið að morgni kæmu gjarnan aft-
ur að kvöldi, en þá væri ásýnd safns-
ins allt önnur. Einnig kvaðst hann
ánægður að hafa fengið að koma að
og fylgjast með uppgangi ferðaþjón-
ustunnar sem bæjarstjóri í Stykkis-
hólmi á áttunda, níunda og tíunda
áratugnum, síðan sem ráðherra og
aftur nú sem bæjarstjóri. Að end-
ingu bað Sturla gesti að lyfta glösum
og skála fyrir ferðaþjónustunni.
Að lokinni heimsókn í Vatnasafn-
ið hélt hópurinn á Narfeyrarstofu og
snæddi saman kvöldverð. Hópurinn
var beðinn að kynna sig á nýjan leik
og segja stuttlega frá sér, rétt eins og
í upphafi skoðunarferðarinnar um
bæinn. Það sem eftir lifði kvölds
nutu gestir sín við mat og drykk,
ræddu málin yfir kvöldverðinum
auk þess sem nokkrar góðar sög-
ur fengu að heyrast. Að veglegum
kvöldverði loknum þökkuðu gestir
fyrir sig og héldu heim á leið. Var
það mál manna að Uppskeruhátíð
Ferðaþjónustunnar á Vesturlandi
2016 hafi verið mjög vel heppnuð.
kgk
Í heimsókn hjá Sæferðum. Nadine E. Walter, sölu- og markaðsstjóri fyrirtækisins, segir frá starfseminni.
Eitt leirlistaverkanna sem unnið er í
Leir 7 til sýnis.
Svipmynd frá Vatnasafninu.
Gengið milli súlnanna á Vatnasafninu, en þær innihalda vatn úr 24 íslenskum
jöklum.
Lára Gunnarsdóttir í Smávinum sýnir eitt sinna verka í heimsókn hópsins í
vinnustofu Leirs 7 og Smávina.
Á Hótel Egilsen tyllti hópurinn sér niður við kertaljós, þáði kakó, smákökur og
jólabjór og fræddist um starfsemi hótelsins.
Erla Friðriksdóttir ræðir við hópinn um æðarfuglinn, æðardúninn og vinnslu á
honum.