Skessuhorn


Skessuhorn - 30.11.2016, Side 26

Skessuhorn - 30.11.2016, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 201626 Vísnahorn Það líður að jólum og leiður er veðranna slagur. Ljósálfar sumarsins allir á brott eru fluttir. Í raun og veru er þessi desemberdagur dálítið svipaður prestinum – báðir stuttir. Svo kvað Jakob Jónsson fyrir mörgum árum og nú eins og þá nálgast blessuð jólin okkur með voru árlega stressi og öllu því sem við þurfum að gera til að verða nú eins og alvöru Ameríkanar. Þeir versla nefnilega svo mikið fyrir jólin og halda uppá allskonar daga sem við höfum ekki heyrt nefnda en þurfum samt að halda hátíðlega til vonar og vara. Þetta er líka svo gott fyrir kaupmennina því ekki lifa þeir á loftinu einu saman. Eða eins og konan sagði: Nú skal gjörvöll Adamsætt eiða stóra vinna. „Í Betlehem er barn oss fætt;“ - nú bjargar ekkert minna. Hugi Hraunfjörð orti líka um blessaða kaup- mennina: Ýmsir hafa úr því bætt ef að fauk í skjólin hvað þeir mikið gátu grætt á Guði fyrir jólin. Veit ekki hvort ég á að þora að birta þá næstu. Hún er nefnilega ekki um kaupmenn- ina en hún er hinsvegar eftir Bjarna frá Gröf: Sanna gleði eignast enginn auðs þó fínan leiki trúð. Hamingjan er heimafengin, hún er aldrei keypt í búð. Fyrir þónokkrum árum sendi Björn heitinn Þórleifsson skólastjóri á Akureyri ættingjum sínum og vinum jólakvæði sem oftar og þar í mun vera að finna þetta erindi um aðventuna: Sumra athygli beinist að glimmer og greinum, glansandi skrauti og laglausum jólasveinum, sem textalaus jólalög kyrja kynlegum róm og kunna við það að birtast á strigaskóm. Þetta erindi minnir mig á ungan mann sem fyrir mörgum árum var staddur á jólatrés- skemmtun og varð reiður ákaflega því ófétis jólasveinninn hafði ,,stolið bæði gítarnum og stígvélunum hans pabba“. Mátti móðir drengs- ins standa í ströngu að halda honum frá því að ganga í að endurheimta þessa muni en faðir hans var einhverra hluta vegna ekki viðlátinn það augnablikið. Oftar en ekki fer það svo að jólaundirbún- ingurinn mæðir meira á blessuðum konunum eins og reyndar margt fleira en stundum geta þær orðið örlítið stressaðar eins og segir í eftir- farandi vísum: Frúrnar eru elskulegar önnum kafnar nú til dags. Jólin koma þá og þegar, - það er að segja nærri strax. Frúin var á kafi í kökum og komið fram yfir miðnættið. Þá greip hana heljartökum hreingerningarbrjálæðið. Það hefur vafist fyrir mörgum góðum mann- inum að velja jólagjöfina handa sinni heittelsk- uðu enda ekki neitt áhlaupaverk. Gjöfin má hvorki vera of dýr né of ódýr. Verður að vera smekkleg að mati konunnar og gjarnan nyt- samleg fyrir að minnsta kosti annað hjóna. Baldur Hafstað hefur greinilega verið að hugsa um jólagjöfina handa konunni þegar hann kvað: Þjóðin vökul velur rit vill ei rökin flókin æsku, slökun, vísdóm, vit veitir kökubókin. Það hefur komið fyrir marga að bæta á sig nokkrum kílóum yfir hátíðarnar. Jafnvel hafa sumir orðið örfáum sentimetrum of stuttir miðað við þyngd. Jón Ingvar Jónsson orti til vinnufélaga sinna fyrir þónokkrum árum: Eftir jól og áramót eflaust mæta hér með skömm spikuð og í lögun ljót langtum fleiri kílógrömm. Þegar menn hafa fengið bæði brjóstkassasig og perustefni í viðbót við þroskaða magavöðva sem að vísu eru þá oft í hvíldarstöðu getur ver- ið ástæða til að leita aðstoðar æðri máttarvalda og fá megrunarráðleggingar. Hygg þó að það hafi ekki verið af þeim ástæðum sem Guð- mundur Þorsteinsson tók upp símtólið: Sála mín glúpnaði andspænis örlagadómi, til almáttugs drottins ég vildi í neyð minni snú mér og einhver svaraði yfirveguðum rómi; ,,Það er enginn notandi með þetta símanúmer”. Fyrir tíma fjölmiðlanna stytti fólk sér gjarn- an stundir við gátur og ekki síst á hátíðum sem voru of heilagar til nokkurrar vinnu nema brýnustu málaverka og koma hér tvær sem munu þó yngri að árum og að ég held eftir Svein Bergsveinsson: Hvað er líkt með hrút og presti heims á mörgu bólunum? Og svarið er náttúrlega: Annatíminn allra mesti er hjá þeim á jólunum. Önnur kemur hér í svipuðum dúr: Hvað er líkt með korktrekkjara og kjörnum manni á þing? Og svarið við henni: Að komast alltaf lengra og lengra um leið og hann snýst í hring. Einu sinni var það siður að kenna stjórninni um allt það sem aflaga fór en ekki gengur það þegar engin er ríkisstjórnin. Stjórnmálamenn- irnir okkar sem við höfum kosið yfir okkur virðast hafa það sjónarmið efst að vera ósam- mála hver öðrum og tala margt en misgáfulegt. Einhvern tímann var ort um ákveðinn stjórn- málaflokk: Lengi gat nú þynnkan þynnst þar sem kratar fóru. Í vaðli þeirra varla finnst votta fyrir glóru. Heiðarleiki stjórnmálamanna hefur stund- um verið dreginn í efa og jafnvel komið fyrir að eitthvað misjafnt hafi á þá sannast. Þeir eru hinsvegar ekkert einir um það. Þorgrímur Ein- arsson vann eitt sinn með manni sem þótti að minnsta kosti linfrómur og orti um hann: Þótt hann lofi að halda hóf og hlutina láta vera, er erfitt fyrir eðlisþjóf ekkert heim að bera. Öðru sinni hafði Þorgrímur hjá sér strák, sem ekki var nema hóflega áhugasamur um vinnuna og orti þá: Sumir strákar standa og masa, starfa ekki par. Er þá gott -að eiga vasa undir hendurnar. Ætli sé svo ekki rétt að ljúka þessu á vísu Kristjáns Samsonarsonar sem margir mættu hafa í huga og þar á meðal ég sjálfur: Glöggt er fylgst með grannans stig. Gát að honum beinist. En að þekkja sjálfan sig sumum erfitt reynist. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is Æsku, slökun, vísdóm, vit - veitir kökubókin Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Auk þess birtum við lausn á kross- gátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum lausn- um og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessuhorni; „Pétrísk íslensk orðabók með alfræðiívafi,“ eftir sr. Pétur Þorsteinsson. Alls bárust 115 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Orðaforði.“ Vinningshafi er: Leifur Þór Ingólfsson, Skúlagötu 12, 340 Stykkis- hólmi. Bestía Bál Dý Viðbót Taut Korn Titill Galdur Ærsl Reifi Inntak Þegar Önug Stígur Óviss Upphr. Hælar Greru Kostur Kvakar Mjór Æstar Runur Lið Afl Tíu 1 Spotti Snertl- ar 8 Sær Ungviði Par 6 Efldu Ílát Korn 3 Rödd 51 Óhljóð Tollur Skap Orka Stertur Haka Ekra Alltaf Votta Geta Ekki Mögl Reisn Suddi Snót Stúlka Þófar Lötur Menn Band Tölur 10 Form Heiður Ábreiða Tölur Glund- ur Eins um G Ekkert Á flík Snúin Tvíhlj. Rot 4 Ískrar Samhlj. Á nótu Mynni Styrkir Tjón Merki Hvorki Ljóður 7 Keyrði Gjald Rugla 5 Þrýst- ingur Tónn Tíni Frá Rómur Andinn Beita Hátta- lag Hnus 9 500 Bið Á fæti Tónn Sérhlj. Vangi Bursta- þek Raftur Sýll 2 Tölur Skör- ungur Lekur Sér- hljóðar Tusk Eðli Lít Annríki 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 E L A N G L U N D A R G E Ð T E F A R I N N I R Ú A L Ó N A M A N D I R Ó M U R I G R U N D U M F E R Ð Ú Ð I I Ð N N Æ R I Ð N A S Ó L G A T A M A D D A M A N V Ó Æ R T Á L A D A M R Ó Æ S Ð A Á V A N I R T T N I N N D I L L R O F T Á S A N E I E S A G A I H R I M Ó G Á T Á L R J Á V Í L D A T T A L A Ó T Æ K A L L A F L Á V Í T T I V I L D U G L A O A U A V I N I R L E I R N Ý R K O L N A L I Ð A G I L Ó Á Ð I N U T U M G N A U S T D Á R Á R I N N O R Ð A F O R Ð I L A U S N Ú R S ÍÐ A S T A B L A Ð I

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.