Skessuhorn


Skessuhorn - 30.11.2016, Blaðsíða 29

Skessuhorn - 30.11.2016, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2016 29 Nýfæddir Vestlendingar Reykhólahreppur - miðvikudagur 30. nóvember Íbúafundur um fjárhagsáætlun Reykhólahrepps. Sveitarstjórn Reykhólahrepps boðar til íbúa- fundar um fjárhagsáætlun Reykhólahrepps fyrir árið 2017. Fundurinn verður í matsal Reyk- hólaskóla og hefst kl. 17. Stykkishólmur - miðvikudagur 30. nóvember Snæfell mætir Val í úrvalsdeild kvenna í Stykkishólmi kl. 19:15. Stykkishólmur - fimmtudagur 1. desember Snæfell mætir Haukum í úrvals- deild karla í Stykkishólmi kl. 19:15. Snæfellsbær - fimmtudagur 1. desember Jólatónleikar með Borgardætrum í félagsheimilinu Klifi kl. 20. Miða- verð 2.500 kr., 6-12 ára: 500 kr., 0-5 ára: Frítt inn. Borgarbyggð - fimmtudagur 1. desember Prjóna-bóka-kaffi í Bókhlöðunni kl. 20 - 22. Kvöldstund við hann- yrðir, bókaspjall og kaffisopa. Safnið er opið til útlána og gestir eru hvattir til að koma með upp- skriftir og hugmyndir að hvers kyns handverki. Auk þess hafa kvöldin reynst góður vettvangur fyrir þá, sem hafa frá einhverju fróðlegu og skemmtilegu að segja eða vilja kynna viðfangsefni sín og hugðarefni á annan hátt. Allir eru hjartanlega velkomnir. Akranes - laugardagur 3. desember Opnaðar verða tvær sýningar í Akranesvita kl. 14. Annars vegar mun Sigurbjörg Einisdóttir opna málverkasýningu á annarri og þriðju hæð vitans og hins vegar mun Tara Wills opna ljósmynda- sýningu á fimmtu hæð vitans. Sigurbjörg hefur áður haldið málverkasýningu í Akranesvita en Tara, sem er lögblind er að halda sína fyrstu ljósmyndasýningu í vitanum. Akranes - laugardagur 3. desember Jólasamvera á Garðakaffi kl. 14 - 17. Notaleg aðventustund fyrir jólabörn á öllum aldri. Smákökur, föndur, piparkökuskreytingar, opinn jólahljóðnemi, jólatónlist frá Valgerði og Dodda o.fl. Verð: 1.700 krónur / 800 kr. fyrir 10 ára og yngri. Borgarfjörður - laugardaginn 3. desember Sveitamarkaður í Nesi í Reykholts- dal kl. 13-17. Stykkishólmur - laugardagur 3. desember Úrvalsdeild kvenna í körfuknatt- leik: Snæfell mætir Haukum í Stykkishólmi kl. 15. Dalabyggð - laugardagur 3. desember Sögustund á Byggðasafni Dalamanna kl. 15. Ragnar Ingi Aðalsteinsson verður sögumaður dagsins. Borgarbyggð - laugardagur 3. desember Úrvalsdeild kvenna í körfuknatt- leik: Skallagrímur tekur á móti Keflavík í Borgarnesi kl. 16:30. Stykkishólmur - laugardagur 3. desember Jólastemning er á veitingastöðum í Stykkishólmi. Boðið er upp á jólamatseðil á Narfeyrarstofu og þriggja rétta jóla-óvissu á Skúrnum. Þá er jólahlaðborð á Fosshótel Stykkishólmi. Pant- anir þar eru í síma 430-2100 og á stykkisholmur@fosshotel.is Borgarbyggð - sunnudagur 4. desember Karlakórinn Söngbræður heldur tónleika í Reykholtskirkju kl. 20. Einsöngvari verður Elmar Þór Gil- bertsson tenór. Það er okkur mikil ánægja að fá Elmar Þór til liðs við okkur, en hann æfði eitt sinn með Söngbræðrum þegar hann var við nám á Hvanneyri. Elmar Þór er í dag tvímælalaust einn vinsælasti tenór landsins. Hann mun syngja einsöngslög, auk þess að syngja með kórnum. Lagvalið verður fjöl- breytt. Aðgangseyrir 2.500 kr. Frítt fyrir börn 12 ára og yngri. Posi á staðnum. Stykkishólmur - mánudagur 5. desember Jólatónleikar Tónlistarskóla Stykk- ishólms verða haldnir í sal skólans: 5. desember kl. 18. 6. desember kl. 18 og 18:45. 7. desember kl. 18 og 18:45. Borgarbyggð - þriðjudagur 6. desember Fyrirlestrar í héraði: Konungs- ríkið Ísland 1918–1944. Magnús K. Hannesson lögfræðingur og sagnfræðingur flytur í Bókhlöðu Snorrastofu kl. 20:30. Á döfinni Rekstur kaffihúss til sölu á besta stað á Akranesi Rekstur kaffihússins Skökkin café á Akranesi er til sölu vegna breyttra aðstæðna hjá eigendum. Góð sala framundan í desember og sumarið lofar mjög góðu. Öll tilboð eru skoðuð. Áhugasamir vinsamlega setjið sig í samband við Hákon Svavarsson á fasteignsölunni Valfelli á Akranesi. Íbúð til leigu á Skallagrímsgötu Borgarnesi Nýuppgerð 4.herbergja sérhæð (125 ferm) til leigu. Upplýsingar í síma 660-3816 og í netfang: asahlin@simnet.is Óska eftir Hondu MT eða MB 50/ SS50 Óska eftir Hondu MT eða MB 50/ SS50 - varahlutum eða hjóli í vara- hluti. Hvað sem er, vantar mikið og get notað allt . Endilega ef menn vilja losna við eitthvað úr kompunni hjá sér, þá skal ég losa ykkur við það! Verð: samkomulag. Sími 896-0158 valur@heimsnet.is Týnd kisa Þessi lét sig hverfa úr bústað í Hvítár- síðu í Borgarfirði fyrir í lok júlí. Væri gott að fá að vita ef einhver hefur séð til hennar. Er í síma 820-4469. Borgarnes dagatalið 2017 Veggdagatal með 13 myndum úr Borgarnesi. Skoða má myndirnar og fá nánari upplýsingar á slóðinni: www.hvitatravel.is/dagatal LEIGUMARKAÐUR 22. nóvember. Stúlka. Þyngd 2.970 gr. Lengd 48 sm. Foreldrar: Alda Björk Einarsdóttir og Guðjón Valgeir Bjarkason, Akranesi. Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir. 23. nóvember. Drengur. Þyngd 3.840 gr. Lengd 53 sm. Foreldrar: Helga Dóra Rúnarsdóttir og Jónas Fjeldsted, Búðardal. Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir. Markaðstorg Vesturlands ATVINNA Í BOÐI TAPAÐ/FUNDIÐ ÓSKAST KEYPT Getir þú barn þá birtist það hér, þ.e.a.s. barnið! www.skessuhorn.is 27. nóvember. Stúlka. Þyngd 4,088 gr. Lengd 51,5 sm. Foreldrar: Aleksandra Lewicka og Alan Hebda, Akranesi. Ljósmóðir: Helga R. Höskuldsdóttir. 29. nóvember. Stúlka. Þyngd 3.578 gr. Lengd 50 sm. Foreldrar: Rúna Dís Þorsteinsdóttir og Björn Árnason, Akranesi. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir. SK ES SU H O R N 2 01 6 Opinn kynningarfundur um fjárhags- og fjárfestingaáætlun Akraneskaupstaðar 2017 Opinn kynningarfundur um fjárhags- og fjárfestingaáætlun Akraneskaupstaðar 2017 verður haldinn þann 8. desember í bæjarþingsal kaupstaðarins að Stillholti 16-18 3. hæð, kl. 17.00. Heitt á könnunni og allir velkomnir. TIL SÖLU

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.