Skessuhorn - 30.11.2016, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2016 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skagamenn gerðu góða ferð suður
í Hveragerði síðastliðinn föstudag
þegar þeir mættu Hamri í 1. deild
karla í körfuknattleik. Eftir jafnan
fyrri hálfleik tók við kaflaskiptur síð-
ari hálfleikur hjá leikmönnum ÍA en
það kom ekki að sök. Skagamönn-
um tókst að tryggja sér dramatískan
eins stigs sigur, 75-76 á lokasekúnd-
um leiksins og þar með annan sigur-
inn í röð.
Hamarsmenn byrjuðu af krafti
og leikmenn ÍA áttu fá svör í vörn-
inni. Skagamönnum til happs gekk
þeim vel í sóknarleiknum. Upphafs-
fjórðungurinn var því jafn allt þar
til á lokamínútunum þegar Skaga-
menn áttu góðan sprett og náðu
fimm stiga forskoti fyrir annan leik-
hluta. Heimamenn tóku að þjarma
að ÍA fyrir miðjan annan fjórðung
og minnkuðu muninn í tvö stig. Eft-
ir það svöruðu Skagamenn fyrir sig.
Þeir héldu Hamarsmönnum siga-
lausum síðustu fjórar mínútur hálf-
leiksins og juku forskot sitt í tólf stig
fyrir hléið, 45-57.
Eftir góðan fyrri hálfleik tók við
erfiður síðari hálfleikur hjá Skaga-
mönnum. Hamarsmenn mættu
ákveðnir til leiks eftir hléið en þriðji
leikhluti Skagamanna var afleit-
ur. Þeir skoruðu aðeins sex stig all-
an fjórðunginn. Heimamenn gengu
hins vegar á lagið, minnkuðu mun-
inn snarlega niður þrjú stig og kom-
ust að lokum yfir og leiddu með
þremur stigum fyrir lokafjórðung-
inn. Sá leikhluti verður seint rómað-
ur fyrir góðan sóknarleik, en samtals
skoruðu liðin aðeins 22 stig. Ham-
arsmenn héldu þriggja stiga forskoti
sínu þar til þrjár mínútur lifðu leiks
að Skagamenn jöfnuðu. Heimamenn
komust yfir á ný og höfðu tveggja
stiga forskot þegar 20 sekúndur voru
eftir af leiknum. Þá fóru Skagamenn
í sókn sem endaði með því að Áskell
Jónsson setti þriggja stiga körfu þeg-
ar 2,6 sekúndur voru eftir á klukk-
unni og Skagamenn komnir stigi yfir.
Hamarsmenn tóku leikhlé og stilltu
upp í lokaskot en reynsluboltinn Jón
Orri Kristjánsson gerði sér lítið fyr-
ir og varði skotið í þann mund sem
lokaflautan gall. Lokatölur í Hvera-
gerði, 75-76 og Skagamenn með
sinn annan sigur í röð.
Derek hársbreidd frá
þrennunni
Derek Shouse átti stórleik fyrir ÍA og
var hársbreidd frá þrennunni með 30
stig, tíu fráköst og níu stoðsending-
ar. Sigurður Rúnar Sigurðsson skor-
aði 15 stig, tók átta fráköst og varði
fimm skot og Áskell Jónsson skoraði
tólf stig.
Skagamenn eru sem stendur í sjö-
unda sæti deildarinnar með sex stig
eftir tíu leiki, tveimur stigum á eftir
Hamri og FSu í sætunum fyrir ofan.
Næsti leikur ÍA fer fram föstudaginn
9. desember þegar liðið tekur á móti
toppliði Hattar. kgk
Skagamenn unnu
dramatískan sigur á Hamri
Reynsla Jóns Orra Kristjánssonar reyndist Skagamönnum drjúg á lokasekúnd-
unum. Hamarsmenn stilltu upp í lokaskot til að vinna leikinn en Jón Orri gerði sér
lítið fyrir og varði skotið og tryggði Skagamönnum sigurinn. Ljósm. jho.
Haustmót 2 í hópfimleikum fór
fram í íþróttahúsinu við Vestur-
götu á Akranesi fyrr í þessum mán-
uði. Fimleikadeild ÍA sá um mótið
og mættu þar til keppni lið í 1. og 2.
flokki, ásamt meistaraflokki B. Alls
skráðu 29 lið sig til leiks og kepptu
um 400 manns á mótinu. ÍA átti
fjögur lið í keppninni.
Í öðrum flokki kvk. varð Stjarnan
1 í fyrsta sæti með heildarstig upp
á 44.932. Gerpla 1 varð í öðru sæti
með 44.882 stig og ÍA 1 í því þriðja
með 42.800 heildarstig. Í 2. flokki
MIX varð Selfoss 1 í fyrsta sæti
með 31.532 en Afturelding 1 í öðru
með 14.766. Í fyrsta flokki B sigr-
aði Höttur 1 með 44.000 heildar-
stigum. FIMAK 1 náði öðru sætinu
með 42.250 stig og ÍA 1 í þriðja sæti
með 39.050 stig. Í meistaraflokki
B lenti ÍA í fyrsta sæti með 34.400
stig. Í 1. flokki kvk. varð Stjarnan
1 í fyrsta sæti með heildarstig upp
á 52.050, Gerpla 1 varð í öðru sæti
með 48.700 stig og Fjölnir 1 í því
þriðja með 47.450 stig. Í 1. flokki
KK varð Stjarnan 1 í fyrsta sæti
með 44.300 heildarstig.
grþ/Ljósm. gbh.
Fjölmargir tóku þátt í haustmóti 2 í fimleikum
Haustmót 2 í hópfimleikum fór fram á Akranesi á dögunum.
Ung Skagastúlka að ljúka stökki.
Skallagrímur tók á móti
toppliði Stjörnunnar í
Domino‘s deild karla í
körfuknattleik á fimmtu-
daginn. Heimamenn léku
afar vel allan leikinn bæði
í vörn og sókn, börðumst
um hvern bolta og unnu
að lokum frækinn sigur
á firnasterku liði Stjörn-
unnar, 78-73.
Skallagrímur hafði
yfirhöndina framan af
fyrsta leikhluta en forysta
þeirra var þó aldrei meiri
en fjögur stig. Stjörnu-
menn áttu síðan góðan
kafla undir lok upphafs-
fjórðungsins, komust yfir
og leiddu með þremur
stigum að honum lokn-
um, 21-24. Skallagrímur
komst aftur yfir í upphafi
annars fjórðungs og hafði
yfirhöndina í leiknum. Heimamenn
náðu sex stiga forskoti þegar fjórar
mínútur voru eftir af fyrri hálfleik
en aftur luku Stjörnumenn leik-
hluta af krafti og minnkuðu mun-
inn í eitt stig áður en flautað var til
hálfleiks. Staðan í hléinu 37-36 og
útlit fyrir áframhaldandi spennu í
síðari hlutanum.
Sú átti einmitt eftir að verða raun-
in. Stjarnan byrjaði betur og náðu
fjögurra stiga forskoti. Það entist
hins vegar ekki lengi því Skalla-
grímsmenn svöruðu fyrir sig, náðu
forystunni á nýjan leik og sigu fram
úr jafnt og þétt eftir því sem leið á
leikhlutann. Þegar loka-
fjórðungurinn hófst höfðu
heimamenn átta stiga for-
ystu, 60-52 og stóðu með
pálmann í höndunum.
Skallagrímsmenn stigu ekki
feilspor það sem eftir lifði
leiks. Þeir juku forystuna,
höfðu 14 stiga forskot þeg-
ar fimm mínútur lifðu leiks
og úrslit leiksins að kalla
ráðin. Stjörnumenn komu
aðeins til baka á lokamín-
útunum en höfðu ekki er-
indi sem erfiði. Lokatölur
78-73, Skallagrími í vil.
Atkvæðamestir Skalla-
grímsmanna voru Eyjólfur
Ásberg Halldórsson með
21 stig og fimm fráköst og
Flenard Whitfield með 20
stig, ellefu fráköst og fimm
stoðsendingar.
Skallagrímur lyfti sér
með sigrinum upp í 7. sæti deildar-
innar með átta stig eftir átta leiki,
tveimur stigum betur en næstu lið á
eftir sem bæði eiga þó leik til góða.
Næsti leikur Skallagríms fer fram á
morgun, fimmtudaginn 1. desemb-
er, þegar liðið mætir Tindastóli
norður á Sauðárkróki. kgk
Botnlið Snæfells mætti Grindavík í
Domino‘s deild karla í körfuknatt-
leik á fimmtudag. Leikið var suður
með sjó. Eftir nokkuð jafnan fyrri
hálfleik tóku heimamenn öll völd á
vellinum í þeim síðari og unnu að
lokum 36 stiga sigur, 108-72.
Snæfellingar voru sterkari í upp-
hafsfjórðungnum. Þeir náðu tólf
stiga forskoti um hann miðjan
áður en heimamenn tóku við sér
og minnkuðu muninn í fjögur stig
þegar leikhlutinn var úti. Leikmenn
Snæfells héldu síðan nokkurra stiga
forskoti þar til um miðjan annan
fjórðung þegar Grindvíkingar jöfn-
uðu. Heimamenn komust síðan
yfir skömmu síðar, bættu nokkrum
stigum á töfluna og höfðu átta stiga
forskot í hálfleik, 51-43.
Það var síðan snemma í síðari
hálfleik að Grindvíkingar hrukku
í gang á sama tíma og Snæfell átti
erfitt uppdráttar. Varð það til þess
að Grindavíkingar gersamlega
stungu Snæfellinga af. Þeir skor-
uðu 36 stig á móti 16 í þriðja leik-
hluta, breyttu átta stiga forskoti í 31
stigs forystu og gerðu út um leikinn
fyrstu tíu mínúturnar eftir hléið. Í
lokafjórðungnum bættu þeir lítil-
lega við forskot sitt og sigruðu að
lokum örugglega, 108-72.
Sefton Barrett var atkvæðamest-
ur leikmanna Snæfells með 16 stig,
13 fráköst og sex varin skot. Næst-
ur honum kom Snjólfur Björns-
son með ellefu stig, þá Árni Elm-
ar Hrafnsson með tíu stig en aðrir
höfðu minna.
Snæfell er því enn án sigurs á
botni deildarinnar eftir fyrstu átta
leiki vetrarins. Þeir fá tækifæri
til þess að breyta því á morgun,
fimmtudaginn 1. desember, þegar
þeir taka á móti Haukum í Stykk-
ishólmi.
kgk/ Ljósm. sá.
Grindvíkingar stungu Snæfell
af í síðari hálfleik
Stjörnuhrap í Borgarnesi
Eyjólfur Ásberg Halldórsson átti skínandi fínan leik fyrir Skalla-
grím þegar liðið vann frækinn sigur á toppliði Stjörnunnar sl.
fimmtudag. Ljósm. Gunnlaugur Auðunn Júlíusson.