Skessuhorn


Skessuhorn - 14.12.2016, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 14.12.2016, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 201624 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík taka enn á ný höndum saman um Eyrarrósinni; viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggð- inni. Markmið viðurkenningarinn- ar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, ný- sköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Meðal verð- launahafa frá því 2005, þegar verð- launin voru fyrst afhent, má nefna Landsnámssetrið í Borgarnesi og Frystiklefann í Rifi. Eliza Reid for- setafrú hefur tekið við hlutverki verndara Eyrarrósarinnar af Dorrit Moussaieff fyrrverandi forsetafrú. Nú hefur verið opnað fyrir um- sóknir fyrir Eyrarrósina 2017. Um- sækjendur geta meðal annars verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð utan höfuð- borgarsvæðisins. Af umsækjendum verða sex verkefni valin á Eyrarrós- arlistann og af þeim hljóta þrjú verk- efni tilnefningu til sjálfrar Eyrarrós- arinnar. Eitt þeirra hlýtur Eyrar- rósina 2017, en henni fylgja tveggja milljóna króna peningaverðlaun, en öðrum tilnefningum fylgja einnig peningaverðlaun. Umsóknarfrestur er til 15. janúar næstkomandi. Um- sóknir skal senda rafrænt til Listahá- tíðar í Reykjavík á netfangið eyrar- ros@artfest.is mm Auglýst eftir umsóknum um Eyrarrósina Pakkhúsið í Ólafsvík er opið á að- ventunni eins og svo oft áður og stendur fyrir ýmsum viðburðum ásamt því að selja handverk og ýms- ar fallegar vörur, kaffi, súkkulaði og fleira gott. Einn þessara viðburða var markaður þar sem fólki gafst kostur á að koma og selja ýmsan varning fimmtudaginn 8. desember. Margir lögðu leið sína í Pakkhús- ið þennan dag og gerðu góð kaup á ýmsu. Á boðstólnum var kjöt beint frá býli, fallegt hárskraut til styrkt- ar Barnaspítala Hringsins, lopavör- ur og einnig seldu konur úr Kvenfé- lagi Ólafsvíkur ýmsar vörur svo sem saltfisk, fjallagrasabrauð og alls kyns bakkelsi. þa Héldu markað í Pakkhúsinu Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis á Akranesi var haldinn 6. desemb- er síðastliðinn. Þórður Emil Ólafs- son formaður fór yfir skýrslu og starf klúbbsins á liðnu ári, gjald- keri fór yfir reikninga og kynnti rekstraráætlun ársins 2017. Rekst- ur GL gekk vel rekstrarárið 2016 og var veltan tæpar 80 milljónir samanborið við tæpar 90 milljón- ir árið 2015. Felst munurinn í að árið 2015 var umfangsmikið 50 ára afmælisár ásamt því að GL hafði umsjón með Íslandsmótinu í golfi. Rekstrargjöld voru tæpar 75 mkr. á þessu ári samanborið við rúmar 86 mkr. árið 2015. Rekstrarhagnaður klúbbsins var því rúmar 5 milljón- ir króna fyrir fjármagnsliði og af- skriftir. Á fundinum kom fram að reksturinn hefði gengið vel en veð- urfar var mjög gott með miklum grasvexti sem takast þurfti á við og sömuleiðis voru kylfingar duglegir að heimsækja Garðavöll, en völlur- inn var opnaður snemma þetta vor- ið eða í lok apríl og leit þá vel út. Í skýrslu stjórnar kom fram hvað myndarlegt og öflugt félagsstarf er hjá Leyni og hefur sömuleiðis mik- il sjálfboðaliðavinna hjálpað til við undanfarin ár að gera góðan klúbb enn betri og eiga félagsmenn mikl- ar þakkir skildar. Í rekstraráætlun fyrir árið 2017 var lagt til að félags- gjöld yrðu hækkuð og var það sam- þykkt. Gjaldskrá verður birt inn- an skamms á heimasíðu GL þeg- ar innheimta árgjalda hefst. Stjórn Leynis var endurkjörin en hana skipa Þórður Emil Ólafsson for- maður, Hannes Marinó Ellertsson, Eiríkur Jónsson, Hörður Kári Jó- hannesson, Berglind Helgadóttir og Ingibjörg Stefánsdóttir. Félagsmenn í Leyni eru 435 og fjölgaði úr 410 frá árinu 2015 eða um 6%. Spiluðum hringjum fækk- að lítillega milli ára en í ár voru spil- aðir 18.400 hringir samanborið við 18.750 hringi árið 2015. Fjölbreytt mótahald var að vanda á vegum GL í sumar með blöndu af innanfélags- mótum, opnum mótum og GSÍ mótum sem töldu um 50 talsins og jókst mótasókn töluvert milli ára en um 2500 kylfingar sóttu Garðavöll heim samanborið við tæpa 2000 árið 2015. Fengu viðurkenningar Viðurkenningar voru að venju veittar. Guðmundar- og Óðins- bikarinn, var veittur Reyni Sigur- björnssyni fyrir dyggan og góðan stuðning við starf GL hvar sem á er litið til langs tíma. Ísak Örn Elvars- son fékk háttvísisverðlaun GSÍ en þau eru veitt ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem Leynir vill sjá í afreksefnaunglingum sín- um. Karl Ívar Alfreðsson fékk við- urkenningu fyrir mestu forgjafar- lækkun hjá Leyni en Karl lækkaði úr 28,0 í 14,1 á árinu 2016. Reyn- ir Gunnarsson fékk viðurkenningu fyrir flesta spilaða hringi á árinu en þeir töldu um 88 frá opnun vallar til lokunnar nú í haust. Þórður Emil formaður Leynis fór yfir stöðu mála varðandi félags- aðstöðu GL en félagið hefur átt í viðræðum við Akraneskaupstað um samstarf og stuðning hvað það varðar. mm/ Ljósm. Leynir. Gott rekstrarár hjá Leyni Karl Ívar Alfreðsson fékk verðlaun fyrir mestu forgjafarlækkun ársins hjá GL. Hér er hann ásamt Þórði Emil formanni Leynis. Ísak Örn Elvarsson fékk háttvísisverðlaun GSÍ en þau eru veitt ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem Leynir vill sjá í afreksefnaunglingum sínum. Hér er Ísak ásamt Þórði Emil. Berglind Helgadóttir tók við verðlaunum fyrir hönd Reynis Sigurbjörnssonar þar sem hann var staddur erlendis. Þórður Emil stendur henni við hlið en sitjandi er Pétur Ottesen fundastjóri.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.