Skessuhorn - 14.12.2016, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 201620
Markvörðurinn Árni Snær Ólafs-
son meiddist illa í æfingaleik með
ÍA gegn HK á dögunum þeg-
ar hann sleit krossband í hné.
Mun hann af þeim sökum þurfa
að gangast undir aðgerð sem dag-
sett er skömmu fyrir jól, 22. des-
ember. Óvíst er hvort hann getur
leikið með Skagamönnum í Pepsi
deild karla næsta sumar. Hann
heldur þó í vonina um að geta eitt-
hvað verið með liðinu í sumar, eins
og fram kemur í frétt Skagafrétta,
en framundan sé mikil endurhæf-
ing og vinna.
Árni Snær er 25 ára gamall og
hefur leikið allan sinn feril með
ÍA. Hann lék sinn fyrsta meist-
araflokksleik árið 2009 og síðan
þá hefur hann leikið samtals 93
meistaraflokksleiki með liðinu, þar
af 57 í efstu deild. Undanfarin þrjú
keppnistímabil hefur Árni verið
aðalmarkvörður Skagamanna og
fest sig í sessi sem einn af burðar-
stólpum liðsins. Hann er af mörg-
um sparkspekingnum talinn einn
af bestu markvörðum deildarinn-
ar og einnig talinn skipa sér í hóp
með bestu spyrnumönnum lands-
ins, en slíkt er óalgengt um mark-
verði. kgk
Árni Snær með slitið
krossband
Árni Snær Ólafsson handsamar knöttinn í leik með ÍA. Ljósm. gbh.
Ljósin voru tendruð á jólatré
Reykhólahrepps á lóð dvalar- og
hjúkrunarheimilisins Barmahlíð-
ar á Reykhólum að morgni síðasta
þriðjudags. Tréð var, eins og vænta
mátti, sótt í Barmahlíð í Þorskafirði
og mun fram yfir hátíðirnar gleðja
augu þorpsbúa.
Nemendur grunn- og leikskóla-
deildar Reykhólaskóla sóttu at-
höfnina ásamt kennurum og fleir-
um, sungu saman jólalög og stigu
dans kringum einiberjarunn. Eft-
ir að skemmtunin var hafin sást í
fjarska hvar Grundarbóndinn Guð-
mundur Ólafsson kom akandi inn í
þorpið á fornri International Far-
mal dráttarvél, sem þó ber aldur-
inn vel. Þó varð gestum jólatrés-
skemmtunarinnar samstundis ljóst
að ekki var allt eins og venjulega.
Þó alvanalegt sé að bóndinn aki um
þorpið á fornum fararskjótum voru
það farþegarnir sem vöktu athygli
og eftirtekt. Með Guðmundi í för
voru nefnilega tveir rauðklæddir og
síðskeggjaðir menn. Reyndust það
vera bræðurnir Gluggagægir og
Hurðaskellir, sem höfðu laumast
til byggða í óþökk foreldra sinna til
að vera viðstaddir jólatrésskemmt-
unina á Reykhólum. Fór ekki bet-
ur en svo að þeir bræður villtust
á leiðinni að heiman í Vaðalfjöll-
um, þvældust síðan sem leið lá út
á Reykjanesið þar til Guðmundur
kom auga á þá á fjallsbrúninni fyrir
ofan bæinn. Aðstoðaði hann bræð-
urna niður af fjallinu og ók þeim
síðan til móts við hátíðargestina þar
sem útdeildu mandarínum og jóla-
eplum og tóku þátt í gleðinni við
mikla hrifningu viðstaddra.
kgk/ Ljósm. Reykhólaskóli
Áttavilltir jólasveinar fengu far til byggða
Bræðrunum Gluggagægi og Hurðaskelli ekið í hlað á Farmalnum. Það var Guð-
mundur á Grund sem gerðist ekill jólasveinanna.
Jólasveinarnir útdeildu jólaeplum og mandarínum og tóku þátt í gleðinni. Vakti
heimsókn þeirra sveina mikla hrifningu viðstaddra.
Tryggingafélagið TM fagnaði 60
ára afmæli síðastliðinn miðviku-
dag. Viðskiptavinum og verðandi
viðskiptavinum var boðið að kíkja
við hjá umboðsaðilum og þiggja
kaffi og kökur. Börnin fengu svo
safa, blöðrur og endurskinsmerki.
Í útibúi TM á Akranesi tók Alma
Auðunsdóttir brosandi á móti gest-
um og ekki voru síðri viðtökurnar í
Borgarnesi þar sem Sigríður Leifs-
dóttir ræður ríkjum. mm
TM bauð til veislu á
afmælisdaginn
Tveir sundgarpar frá Akranesi
kepptu á Norðurlandameistara-
mótinu í Kolding um liðna helgi.
Þetta eru þau Ágúst Júlíusson,
sundmaður úr Sundfélagi Akraness
og Inga Elín Cryer frá Akranesi
sem nú æfir og syndir með Ægi.
Ágúst komst í úrslit í 50 m flug-
sundi á tímanum 24,76 sek. og bætti
um betur í úrslitasundinu sem hann
lauk á 24,57 sek. sem er aðeins sex
hundruðustu úr sekúndu frá hans
besta tíma. Skilaði það Ágústi
fimmta sæti í 50 m flugsundi. Hann
komst einnig í úrslit í 100 m flug-
sundi. Hann synti á 54,88 sek. í
undanrásunum og bætti sig síðan
í úrslitasundinu og synti á sínum
öðrum besta tíma, rétt við Akra-
nesmetið. Ágúst lauk síðan þátt-
töku sinni á Norðurlandameistara-
mótinu á því að setja nýtt Akranes-
met í 50 m skriðsundi, en metið sló
hann er hann synti fyrsta sprettinn
í 8x50 m blönduðu boðsundi á tím-
anum 23,30 sek.
Inga Elín Cryer keppti í 50 m
flugsundi og bætti sinn skráða tíma,
synti á 29,04 sek. og bætti sömu-
leiðis skráðan tíma í 100 m flug-
sundi þar sem hún synti á 1.02,5
og tryggði sér sæti í úrslitasund-
inu. Þar hafnaði hún í fjórða sæti,
aðeins þremur hundruðustu úr sek-
úndu frá bronsverðlaunum. Í 100 m
skriðsundi synti hún á 58 sek. eða
rétt við sinn besta tíma og á 27,4
sek. í 50 m skriðsundi, einnig rétt
við sinn besta tíma. „Þetta mót fer
svo sannarlega í reynslubankann
hjá henni, en eins og áður hefur
komið fram þá er Inga Elín að jafna
sig af erfiðum veikindum. Hún er
nú öll að koma til og styrkjast og
stefnir á góða endurkomu á nýju
ári. Það mun kosta blóð, svita og tár
að koma sér aftur í sitt besta form,
en hún er tilbúin í þann slag,“ seg-
ir í tilkynningu frá fjölskyldu Ingu
Elínar.
kgk
Skagamenn syntu á NM í Kolding
Inga Elín Cryer, sundkona frá Akranesi, synti vel og bætti
meðal annars sinn besta tíma í 50 m flugsundi.
Ljósm. úr safni.
Ágúst Júlíusson, sundmaður úr Sundfélagi Akraness, setti
meðal annars nýtt Akranesmet í 50 m skriðsundi á NM um
síðustu helgi. Ljósm. SA.