Skessuhorn - 14.12.2016, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016 17
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi
Miðbær austan Aðalgötu
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt á fundi
24. nóvember 2016 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi
samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Markmið þessarar deiliskipulagsbreytingar er að færa inn rétt
lóðamörk og stærðir lóða sem hafa nú verið mældar upp. Í gildandi
deiliskipulagi er gerður fyrirvari um lóðamörk vegna þess að þegar
það var unnið þá voru nákvæmar upplýsingar um stærðir lóða
ekki til. Breytt lóðamörk hafa sumstaðar áhrif á byggingarreiti og
þá er einnig farið yfir heimildir til að byggja bílskúra.
Deiliskipulagsbreytingin verður aðgengileg á vef Stykkishólmsbæjar,
www.stykkisholmur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa,
Hafnargötu 3, á skrifstofutíma milli klukkan 10-15, frá 14. desember
2016 til 26. janúar 2017 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna
að gæta hvattir til að kynna sér breytinguna og koma ábendingum
eða athugasemdum á framfæri skriflega til skipulags- og
byggingarfulltrúa Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3,
340 Stykkishólmi, í síðasta lagi 26. janúar 2017.
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi
Miðbær vestan Aðalgötu
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt á fundi
8. desember 2016 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi
samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Markmið þessarar deiliskipulagsbreytingar er að skapa svigrúm
til uppbyggingar í miðbæ Stykkishólms sem styrkt gæti
bæjarmyndina enn frekar. Einnig eru lóðamörk og stærðir lóða
leiðrétt samkvæmt uppmælingum sem hafa farið fram. Í gildandi
deiliskipulagi er gerður fyrirvari um lóðamörk vegna þess að þegar
það var unnið þá voru nákvæmar upplýsingar um stærðir lóða
ekki til. Breytt lóðamörk hafa sumstaðar áhrif á byggingarreiti.
Deiliskipulagsbreytingin verður aðgengileg á vef Stykkishólmsbæjar,
www.stykkisholmur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa,
Hafnargötu 3, á skrifstofutíma milli klukkan 10-15, frá 14. desember
2016 til 26. janúar 2017 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna
að gæta hvattir til að kynna sér breytinguna og koma ábendingum
eða athugasemdum á framfæri skriflega til skipulags- og
byggingarfulltrúa Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3,
340 Stykkishólmi, í síðasta lagi 26. janúar 2017.
Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi
Stykkishólms 2002-2022
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er
hér auglýst „lýsing“ fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu.
Lýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á aðalskipulagi Stykkishólms
2002-2022 við Reitarveg, athafna- og íbúðarsvæði.
Um er að ræða breytingu á aðalskipulagi Stykkishólms.
Skipulagsbreytingin takmarkast við Reitarveginn og svæði
þar við. Bæjaryfirvöld hafa hug á að breyta yfirbragði svæðisins
og fegra það með því að heimila fjölbreytta notkun á svæðinu og
skilgreina nýja uppbyggingarmöguleika fyrir fjölbreyttari
atvinnu, verslun, þjónustu og íbúðir.
Lýsingin verður aðgengileg á vef Stykkishólmsbæjar,
www.stykkisholmur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingar-
fulltrúa, Hafnargötu 3, á skrifstofutíma frá klukkan 10:00-15:00 frá
14. desember til 29. desember 2016 og eru þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér lýsinguna og koma
ábendingum eða athugasemdum á framfæri skriflega til skipulags-
fulltrúa Stykkishólmsbæjar að Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða á
netfangið bygg@stykkisholmur.is í síðasta lagi 29. desember 2016.
Sigurbjartur Loftsson
Skipulags- og byggingarfulltrúinn
í Stykkishólmi.
Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmur - Sími: 433-8100
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Stykkishólmsbær
Virðum hvíldartímann
um hátíðarnar
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
Nánar á vr.is
Hvíld er ekki bara svefn. Til að njóta gæðastunda um
jólin – og allt árið um kring – eiga félagsmenn VR rétt
á 11 klukkustunda hvíld á sólarhring að lágmarki.
www.skessuhorn.is
Gunnhildur Gunnarsdóttir, fyrir-
liði Snæfells, var valin körfuknatt-
leikskona ársins 2016 þegar KKÍ
valdi körfuknattleiksfólks ársins,
en valið hefur verið tvískipt síðan
árið 1998. Gunnhildur var fyrirliði
Snæfells sem vann tvöfalt, bæði Ís-
lands- og bikarmeistaratitil, á síð-
asta keppnistímabili og jafnframt
þriðja Íslandsmeistaratitilinn í röð.
Þá er hún einn mikilvægasti leik-
maður íslenska landsliðsins og hef-
ur verið um nokkurt skeið. „Með
óbilandi baráttu og dugnaði sé hún
ómissandi bæði fyrir landsliðið og
félagslið sitt,“ segir í rökstuðningi
með útnefningunni. „Þá var Gunn-
hildur ofarlega á tölfræðilistum
deildarinnar í helstu tölfræðiþátt-
um á síðastliðnu tímabili og í úr-
valsliði ársins á lokahófi KKÍ auk
þess að hún var kjörin „varnarmað-
ur ársins“ í deildinni. Á þessu tíma-
bili hefur Gunnhildur byrjað vel
í deildinni hér heima og er með-
al bestu íslensku leikmanna deild-
arinnar í öllum tölfræðiþáttum.
Gunnhildur hefur leikið alla lands-
leiki íslenska liðsins frá árinu 2012,
eða 27 leiki samtals.“
Í öðru sæti í valinu á körfuknatt-
leikskonu ársins hafnaði Helena
Sverrisdóttir, körfuknattleikskona
ársins undanfarin ellefu ár og Borg-
nesingurinn Sigrún Sjöfn Ámunda-
dóttir, leikmaður Skallagríms, hafn-
aði í þriðja sæti.
Martin bestur karla
Martin Hermannsson, leikmaður
franska liðsins Étoile de Charle-
ville-Mézéres, var útnefndur körfu-
knattleikskarl ársins. Hann lék síð-
asta tímabil með LIU Brooklyn-há-
skólanum í NCAA háskóladeildinni
bandarísku þar sem hann hlaut við-
urkenningar fyrir frammistöðu sína.
Hann lék alla leiki íslenska lands-
liðsins á liðnu sumri og hjálpaði
liðinu að tryggja sér sæti á Evrópu-
mótinu á næsta ári. Fékk hann mik-
ið lof fyrir frammistöðu sína með
landsliðinu og hélt á haustmánuð-
um í atvinnumennsku í Frakklandi.
Er hann einn af bestu leikmönnum
liðs síns sem situr öðru sæti deild-
arinnar þegar þessi orð eru rit-
uð. „Martin er orðin einn af betri
leikmönnum íslenska landsliðsins á
sínu 22. aldursári og einn af fram-
tíðarburðarásum landsliðsins,“ seg-
ir meðal annars í rökstuðningi.
Í öðru sæti í valinu á körfuknatt-
leikskarli ársins hafnaði Jón Arn-
ór Stefánsson, leikmaður KR og
Grundfirðingurinn Hlynur Bær-
ingsson, leikmaður Stjörnunnar,
hafnaði í því þriðja.
kgk
Gunnhildur er körfuknatt-
leikskona ársins 2016
Landsliðskonan Gunnhildur Gunnarsdóttir, fyrirliði Snæfells, í leik fyrr á þessu ári.