Skessuhorn


Skessuhorn - 25.01.2017, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 25.01.2017, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 20172 Sýningar standa yfir á Journey to the Centre of the Earth í Frystiklefanum í Rifi, en það er síðasta nýja verkið sem Kári Viðarsson í Frystiklefanum gerir fyrir leik- húsið. Áhugasamir eru því hvattir til að tryggja sér miða en þó skal áréttað af gefnu tilefni að Kári hyggst halda starf- semi Frystiklefans áfram um ókomna tíð. Hægur vindur og úrkomulítið verður framan af degi á morgun, fimmtudag, en síðan norðaustan 10-15 m/s og él á Vest- fjörðum. Sunnan 8-13 m/s og rigning eða slydda á Austurlandi. Frostlaust við suð- ur- og austurströndina en annars staðar 0 til 8 stiga frost, kaldast inn til sveita. Norð- an- og norðaustanátt 8-15 m/s á föstudag, hvassast á Norðvesturlandi. Slydda og hiti 0 til 5 stig á Suðausturlandi en snjókoma eða él og frost 0 til 7 stig í öðrum lands- hlutum. Á laugardag er útlit fyrir kalda norðanátt og snjókomu eða él, en bjart- viðri á suðvesturhorni landsins. Austanátt og snjókoma eða él á sunnudag en létt- skýjað Norðaustanlands. Áfram kalt í veðri. Austlæg átt og slydda eða rigning með köflum á mánudag. Þurrt að kalla á norð- anverðu landinu. Hlýnandi veður. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Finnst þér að konur eigi að hafa val um að vera berar að ofan í sundi?“ Yfirgnæf- andi meirihluti, eða 68% þeirra sem tóku afstöðu, svöruðu spurningunni játandi en „nei“ sögðu 28%. Óákveðnir voru 4% og svöruðu „ég veit það ekki.“ Í næstu viku er spurt: „Hversu oft í viku ferð þú í matvöruverslun?“ Stefán Bjarnason, fyrrverandi yfirlögreglu- þjónn á Akranesi, fagnaði 100 ára afmæli sínu í liðinni viku. Bauð hann af því tilefni til veislu á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða og var hún vel sótt. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Vilja hugmyndir íbúa um framtíðarsýn BORGARNES: Miðviku- daginn 22. mars næstkom- andi verða liðin 150 ár frá því að Kristján VIII Danakonung- ur undirritaði skjal þess efnis að Borgarnes hlyti stöðu sem lög- giltur verslunarstaður. Í skjalinu er kveðið á um að heimilt sé að reisa sölubúðir og reka verslun við Brákarpoll allt árið. Upphaf byggðar í Borgarnesi er rakið til þessa dags. Stefnt er að útgáfu Sögu Borgarness um þetta leyti. Sveitastjórn Borgarbyggðar hefur ákveðið að minnast þess- ara tímamóta með hátíðarfundi á afmælisdaginn. Sérstök af- mælis-hátíðarnefnd er einnig farin að undirbúa afmælisfagn- að sem verður laugardaginn 29. apríl þar sem Guðni Th Jó- hannesson forseti Íslands verð- ur heiðursgestur. Ein af þeim hugmyndum sem hátíðarnefnd- in langar til að verði að veru- leika er að birta með einhverj- um hætti þá sýn sem íbúar hafa á framtíð Borgarness. Því hefur verið opnuð á heimasíðu Borg- arbyggðar skráningarform þar sem íbúar eru beðnir að koma með tillögur, skrá hugmynd- ir sínar um framtíðarýn fyr- ir Borgarnes í sérstakan reit. Á meðfylgjandi mynd er línuveið- arinn og nótaskipið Eldborg að leggjast við bryggju. Þarna var verið að útbúa skipið til stríðs- siglinga. Sjá nánar borgar- byggd.is. -mm Beitarhegðun sauðfjár DALIR: Laugardaginn 28. janúar kl. 15 mun Hafdís Stur- laugsdóttir fjalla um beitarhegð- un sauðfjár. Fyrirlestur henn- ar verður á Byggðasafni Dala- manna á Laugum í Sælings- dal. Hafdís er bóndi í Húsavík á Ströndum og landnýtingarfræð- ingur hjá Náttúrustofu Vest- fjarða. Aðgangseyrir er 500 kr fyrir fullorðna og kaffi á könn- unni. Frítt fyrir börn yngri en 18 ára. Þetta kemur fram á vef Dalamanna. -mm Æfingar í frjálsum hafnar AKRANES: Frjálsíþrótta- æfingar eru hafnar hjá Ung- mennafélaginu Skipaskaga á Akranesi. Æft er í Akraneshöll- inni á mánudögum og miðviku- dögum frá klukkan 17:30-19:00 báða dagana. Æfingarnar mið- ast við aldurinn 6 ára og upp- úr. Þjálfari er Ómar Ólafsson og er síminn hans 841-8065. Allir eru velkomnir að taka þátt, seg- ir í fréttatilkynningu frá Umf. Skipaskaga. -mm Heill herskari grágæsa sást síðast- liðinn miðvikudag á flugi og á beit í Leirár- og Melasveit í Borgarfirði. Þrátt fyrir rok og skafrenning var engu líkara en gæsirnir væru búnar að gleyma að þær eru farfuglar og virtust una hag sínum vel í dæmi- gerðu vetrarveðri. Gæsirnar sáust fyrir hádegi í oddaflugi áleiðis upp í Svínadal og aftur síðdegis en þá voru þær á beit skammt frá þjóð- veginum við Skorholt í Melasveit. Fremur óvenjulegt er að grágæsir hafi vetursetu í stórum hópum hér á landi. Þó er vitað um hóp fugla sem eru afkomendur gæsa sem voru vængstýfðir við Reykjavíkur- tjörn á árum áður og hafa hrein- lega aldrei lært að koma sér á hlýrri slóðir að hausti. Á Vísindavefnum segir að slíkur innnesjastofn hafi vaxið nokkuð á undanförnum ára- tugum og er talinn telja yfir eitt þúsund fugla að hausti. Einnig er þekkt að vetrarstofn grágæsa haldi til í Ölfusi. Þessi hópur í Melasveit nú er því annað hvort nýr stofn eða hópur fugla sem valið hefur að fara ekki utan í haust. Með tilliti til nýj- ustu ákvarðana Breta í sjálfstæðis- málum sínum, mætti kalla þennan nýja stofn sjálfstæðra íslenskra grá- gæsa Brexit-stofninn. Jafnvel er hér á ferðinni angi úr hópi afkomenda vængstýfðu Reykjavíkurtjarnar- fuglanna sem telja hag sínum betur borgið á Vesturlandi. mm Hópur grágæsa hefur hér vetursetu Líkt og greint hefur verið frá í Skessuhorni mun endurgerð Vest- urgötu á Akranesi hefjast á vor- mánuðum. Gatan var fræst síðast- liðið vor og í framhaldinu kom í ljós að óhjákvæmilegt er talið að endurbyggja götuna að fullu. Jarð- vegsskipt verður í götunni og hún malbikuð en jafnframt verða lagn- ir veitufyrirtækja í götunni end- urnýjar eða endurbættar, eftir því sem við á. Akraneskaupstaður, Veitur ohf. og Míla hafa nú óskað eftir tilboðum í verkið. Það felst í að endurbyggja Vesturgötu á milli Stillholts og Merkigerðis auk hluta gangstétta á því svæði. Útboðs- gögn má nálgast hjá EFLU verk- fræðistofu og verða tilboð opnuð á skrifstofu Akranesbæjar 9. febrúar. Gert er ráð fyrir að framkvæmd- um eigi að vera lokið fyrir 5. ágúst næstkomandi. grþ Óska eftir tilboðum í framkvæmdir við Vesturgötu Óskað hefur verið eftir tilboðum við gatnagerð og endurnýjun lagna við Vesturgötu. Hefð er fyrir því að á þorrablóti Skagamanna er verðlaunaður Skaga- maður ársins. Á gríðarlega fjöl- mennu og vel heppnuðu þorrablóti sem fram fór á laugardaginn var Dýr- finna Torfadóttir gullsmiður útnefnd Skagamaður ársins 2016. Í umsögn um útnefninguna segir: „Dýrfinna hefur um árabil ver- ið einn dyggasti stuðningsmaður kvennaknattspyrnunnar á Akranesi og stutt stelpurnar í ÍA með marg- víslegum hætti. Hún hefur eflt tengsl listamanna og knattspyrnunnar, með því að færa besta leikmanni hvers leiks í efstu deild karla og kvenna, verk eftir listafólk af Skaganum. Hún er öflugur listamaður og hélt tvær sýningar á Akranesi á árinu 2016. Aðra sýninguna hélt hún í garðin- um heima hjá sér á Írskum dögum og sýndi þar nýjustu verk sín. Seinni sýningin var haldin í safnaskálanum á Byggðasafninu í Görðum á Vöku- dögum en þar sýndi Dýrfinna skart og skó. Dýrfinna er einn af þessum litríku einstaklingum sem er sífellt boðin og búin að aðstoða aðra og taka þátt í verkefnum til að auðga menn- ingar- og íþróttalíf á Akranesi. Hún var kjörin bæjarlistamaður Akraness árið 2010.“ Dýrfinna er gilft Guðjóni Brjánssyni alþingismanni og fyrrum forstjóra HVE. Dýrfinna fékk að gjöf styttu eftir Skagakonuna Gyðu Jónsdóttur Wells að gjöf og veglegan blómvönd. Ort af þessu tilefni Það var Ólafur Adolfsson formað- ur bæjarráðs Akraneskaupstað- ar sem kynnti Skagamann ársins á blótinu. Það gerði hann með eftir- farandi vísum sem Heiðrún Jóns- dóttir á bæjarskrifstofunni orti af þessu tilefni: Skagamaður ársins er afar flottur karakter. Hæfileika í bunkum ber, en býsn af hógværð líka. Sínum kostum síst því er að flíka. Unir smíðar iðin við allt er fágað handverkið. Fótboltanum leggur lið á leikjum stuðning veitir. Aðferðunum ýmsum við það beitir. Vestfirðingur uppalinn ei það skaðar ferilinn. Er í mörgu ákveðin eins til sókna og varnar. Manni á Alþing kom við kosning- arnar. Eins og gull af eiri ber um þá segja mætti hér, sem þekkt af iðngrein sinni er. Aldrei mælt hún kvarti. Hugfangin er bæði af skóm og skarti. mm Dýrfinna Torfadóttir er Skagamaður ársins 2016 Dýrfinna og Ólafur Adolfsson sem afhenti henni verðlaunin. Ljósm. Heida HB. Dýrfinna við störf sín á verk- stæðinu. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.