Skessuhorn


Skessuhorn - 25.01.2017, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 25.01.2017, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 2017 19 WEST ICELAND Travel Ferðast um Vesturland 2017-2018 Fr ee Co pyPublished by Skessuhorn - www.skessuhorn.is Kynning á ferðablaðinu Travel West Iceland 2017-2018 Útgáfuþjónusta Skessuhorns mun vorið 2017 gefa út árlegt Ferðablað um Vesturland. Blaðið verður á ensku og íslensku og ber nafnið Travel West Iceland 2017-2018. Ljósmyndir og kort af einstökum svæðum og þéttbýlis- stöðum á Vesturlandi prýða blaðið og auglýsendur verða númeraðir inn á kortin. Lögð verður áhersla á að auglýsendur noti alþjóðleg ferðaþjónustumerki í auglýs- ingum. Dreifing og form Blaðið verður gefið út í 50.000 eintökum. Helstu dreif- ingarstaðir nú verða á höfuðborgarsvæðinu, upplýsinga- miðstöðvum um land allt, aðkomuleiðum ferðamanna í landshlutann og síðast en ekki síst helstu áningar- og ferða- mannastaðir á Vesturlandi sjálfu. Dreifing blaðsins verður efld enn frekar frá síðustu árum með áherslu á allt árið enda er ferðaþjónusta orðin heilsárs atvinnugrein. Lager af blaðinu verður ætíð til dreifingar hjá Markaðsstofu Vestur- lands í Borgarnesi. Loks verður blaðið í aðgengilegu formi á www.skessuhorn.is þaðan sem ferðaþjónustuaðilar geta hvenær sem er sótt það og sent viðskiptavinum sínum. Blaðið verður litprentað í A5 broti og 120-160 blaðsíður. Efnistök Vesturland er „Land tækifæranna“ árið 2017-2018. Einstök fyrirtæki og landshlutinn í heild hafa hlotið viðurkenningar að undanförnu og nefna má að Vesturland var af ferða- bókaútgefandanum Lonely Planet útnefnt annað áhuga- verðasta svæði í heimi 2016 og í upphafi þessa árs eitt af sautján áhugaverðustu svæðum í heimi af CNN-Travel. Í blaðinu má m.a. lesa almennan kafla um Vesturland, áhugaverðar héraðslýsingar fyrir Akranes, Hvalfjörð og Kjós, Borgarfjörð, Snæfellsnes, Dali og Reykhóla á ensku og íslensku auk ábendinga um markverða viðkomustaði, náttúruundur og Vesturland að vetri. Loks verður við- burðaskrá og sérstök þjónustuskrá fyrirtækja í ferðatengdri starfsemi sem kynna sig og auglýsa í blaðinu. Auglýsingasala og þjónustuskráning Panta þarf auglýsingapláss og þjónustuskráningar tíman- lega eða í síðasta lagi fyrir 10. mars 2017. Auglýsinga- verð eru óbreytt frá árinu 2016. Um sölu auglýsinga og skráningu þjónustuskrár sér Emilía Ottesen á netfanginu auglysingar@skessuhorn.is og í síma 433-5500. Auglýsendum standa til boða fjölbreyttir kostir: Heilsíðuauglýsing: Stærð: 128x190 mm. Verð kr. 231.000 en með vsk. kr. 286.440. Hálfsíðuauglýsing: Stærð: 128x93 mm eða 61.8x190 mm. Verð kr. 123.200 en með vsk. kr. 152.768. 1/4 síða: Stærð: 61.8x93 mm. Verð kr. 66.000, en með vsk. kr. 81.840. 1/8 síða: Stærð: 61.8x45 mm. Verð kr. 35.200, en með vsk. kr. 43.648. Skráning í þjónustuskrá blaðsins kostar 18.000 kr. en með vsk. kr. 22.320. Athugið að líkt og undanfarin ár verða einungis skráðar upplýsingar í þjónustuskrá blaðsins um þau fyrirtæki sem þess óska og greiða fyrir. Í skráningunni kemur fram nafn fyrirtækis, heimili, sími, netfang og vef- fang auk helstu þjónustuþátta. Þeir sem kaupa 1/4 auglýs- ingu í blaðinu eða stærri, fá fría skráningu í þjónustuskrá sem kaupauka. Hægt er að kaupa umfjallanir að hluta eða öllu leyti í stað auglýsinga. Panta þarf slíkt tímanlega. Við hlökkum til góðs samstarfs sem fyrr við ferðaþjónustu- fyrirtæki og aðra samstarfsaðila á Vesturlandi. Starfsfólk Skessuhorns 1/1 1/2 1/4 1/8 Félag eldri borgara á Akranesi og í Borgarnesi hafa á undanförnum árum haft þann sið að skiptast á um að vera gestgjafar á sameiginlegu þorrablóti. Að þessu sinni var kom- ið saman í sal Félags eldri borgara á Kirkjubraut 40 á Akranesi á sjálfan bóndadaginn. Matur kom frá Ga- litó en um söng og skemmtun sá valið tónlistarfólk. Gísli S Einars- son spilaði undir og stýrði fjölda- söng en auk hans komu fram Samú- el Þorsteinsson og Alla Jóna Axels- dóttir. Hljómsveitin Tamangó spil- aði fyrir dansi. Úr varð hin besta skemmtun. Meðfylgjandi myndir tók Kolbrún Ingvarsdóttir við þetta tilefni. mm Héldu sameiginlegt þorrablót

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.