Skessuhorn - 25.01.2017, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 2017 19
WEST ICELAND
Travel
Ferðast um Vesturland 2017-2018
Fr
ee
Co
pyPublished by Skessuhorn - www.skessuhorn.is
Kynning á ferðablaðinu
Travel West Iceland 2017-2018
Útgáfuþjónusta Skessuhorns mun vorið 2017 gefa út
árlegt Ferðablað um Vesturland. Blaðið verður á ensku og
íslensku og ber nafnið Travel West Iceland 2017-2018.
Ljósmyndir og kort af einstökum svæðum og þéttbýlis-
stöðum á Vesturlandi prýða blaðið og auglýsendur
verða númeraðir inn á kortin. Lögð verður áhersla á að
auglýsendur noti alþjóðleg ferðaþjónustumerki í auglýs-
ingum.
Dreifing og form
Blaðið verður gefið út í 50.000 eintökum. Helstu dreif-
ingarstaðir nú verða á höfuðborgarsvæðinu, upplýsinga-
miðstöðvum um land allt, aðkomuleiðum ferðamanna í
landshlutann og síðast en ekki síst helstu áningar- og ferða-
mannastaðir á Vesturlandi sjálfu. Dreifing blaðsins verður
efld enn frekar frá síðustu árum með áherslu á allt árið
enda er ferðaþjónusta orðin heilsárs atvinnugrein. Lager af
blaðinu verður ætíð til dreifingar hjá Markaðsstofu Vestur-
lands í Borgarnesi. Loks verður blaðið í aðgengilegu formi á
www.skessuhorn.is þaðan sem ferðaþjónustuaðilar geta
hvenær sem er sótt það og sent viðskiptavinum sínum.
Blaðið verður litprentað í A5 broti og 120-160 blaðsíður.
Efnistök
Vesturland er „Land tækifæranna“ árið 2017-2018. Einstök
fyrirtæki og landshlutinn í heild hafa hlotið viðurkenningar
að undanförnu og nefna má að Vesturland var af ferða-
bókaútgefandanum Lonely Planet útnefnt annað áhuga-
verðasta svæði í heimi 2016 og í upphafi þessa árs eitt af
sautján áhugaverðustu svæðum í heimi af CNN-Travel.
Í blaðinu má m.a. lesa almennan kafla um Vesturland,
áhugaverðar héraðslýsingar fyrir Akranes, Hvalfjörð og
Kjós, Borgarfjörð, Snæfellsnes, Dali og Reykhóla á ensku
og íslensku auk ábendinga um markverða viðkomustaði,
náttúruundur og Vesturland að vetri. Loks verður við-
burðaskrá og sérstök þjónustuskrá fyrirtækja í ferðatengdri
starfsemi sem kynna sig og auglýsa í blaðinu.
Auglýsingasala og þjónustuskráning
Panta þarf auglýsingapláss og þjónustuskráningar tíman-
lega eða í síðasta lagi fyrir 10. mars 2017. Auglýsinga-
verð eru óbreytt frá árinu 2016. Um sölu auglýsinga og
skráningu þjónustuskrár sér Emilía Ottesen á netfanginu
auglysingar@skessuhorn.is og í síma 433-5500.
Auglýsendum standa til boða fjölbreyttir kostir:
Heilsíðuauglýsing: Stærð: 128x190 mm.
Verð kr. 231.000 en með vsk. kr. 286.440.
Hálfsíðuauglýsing: Stærð: 128x93 mm eða 61.8x190 mm.
Verð kr. 123.200 en með vsk. kr. 152.768.
1/4 síða: Stærð: 61.8x93 mm.
Verð kr. 66.000, en með vsk. kr. 81.840.
1/8 síða: Stærð: 61.8x45 mm.
Verð kr. 35.200, en með vsk. kr. 43.648.
Skráning í þjónustuskrá blaðsins kostar 18.000 kr. en
með vsk. kr. 22.320. Athugið að líkt og undanfarin ár verða
einungis skráðar upplýsingar í þjónustuskrá blaðsins um
þau fyrirtæki sem þess óska og greiða fyrir. Í skráningunni
kemur fram nafn fyrirtækis, heimili, sími, netfang og vef-
fang auk helstu þjónustuþátta. Þeir sem kaupa 1/4 auglýs-
ingu í blaðinu eða stærri, fá fría skráningu í þjónustuskrá
sem kaupauka. Hægt er að kaupa umfjallanir að hluta eða
öllu leyti í stað auglýsinga. Panta þarf slíkt tímanlega.
Við hlökkum til góðs samstarfs sem fyrr við ferðaþjónustu-
fyrirtæki og aðra samstarfsaðila á Vesturlandi.
Starfsfólk Skessuhorns
1/1
1/2 1/4
1/8
Félag eldri borgara á Akranesi og
í Borgarnesi hafa á undanförnum
árum haft þann sið að skiptast á um
að vera gestgjafar á sameiginlegu
þorrablóti. Að þessu sinni var kom-
ið saman í sal Félags eldri borgara á
Kirkjubraut 40 á Akranesi á sjálfan
bóndadaginn. Matur kom frá Ga-
litó en um söng og skemmtun sá
valið tónlistarfólk. Gísli S Einars-
son spilaði undir og stýrði fjölda-
söng en auk hans komu fram Samú-
el Þorsteinsson og Alla Jóna Axels-
dóttir. Hljómsveitin Tamangó spil-
aði fyrir dansi. Úr varð hin besta
skemmtun. Meðfylgjandi myndir
tók Kolbrún Ingvarsdóttir við þetta
tilefni. mm
Héldu sameiginlegt þorrablót