Skessuhorn - 25.01.2017, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 2017 9
Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa um 600 manns með
fjölbreytta menntun og bakgrunn. Árleg framleiðsla er um 310.000 tonn af hágæða áli.
HeilindiHagsýni Liðsheild nordural.is
SPENNANDI SUMARSTÖRF HÆFNISKRÖFUR:• 18 ára og eldri
• Öryggisvitund, heiðarleiki og
stundvísi
• Góð samskiptahæfni
• Dugnaður og sjálfstæði
• Bílpróf er skilyrði
• Verkfræðinemar, iðnnemar og
iðnaðarmenn eru sérstaklega hvattir
til að sækja um
Við leitum að metnaðarfullu og skemmtilegu
fólki í fjölbreytt og eftirsótt sumarstörf í
álverinu á Grundartanga. Í boði er dagvinna og
vaktavinna við framleiðslu, raf- og vélvirkjun
og fleira. Öll störfin henta jafnt körlum og
konum.
Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt,
öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan
starfsanda.
Árangurstengd laun sumarfólks við framleiðslu
eru um 525.000 krónur á mánuði fyrir fullt
starf. Starfsfólki bjóðast ferðir frá Akranesi,
Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu.
Umsóknum skal skilað inn rafrænt á
www.nordural.is fyrir 12. febrúar 2017.
Nánari upplýsingar veitir Helga Björg Hafþórsdóttir
í síma 430 1000. Öllum umsóknum verður svarað
og trúnaði heitið.
Síðdegis í dag mun Creditinfo til-
kynna formlega hvaða félög eru á
lista Framúrskarandi fyrirtækja árið
2016. Að þessu sinni munu 621 fyr-
irtæki hljóta viðurkenningu sem er
tæplega 2% af skráðum fyrirtækjum
hérlendis. Þar af eru 22 fyrirtæki á
Vesturlandi. „Þessi fyrirtæki eiga
það sameiginlegt að sýna stöðug-
leika í rekstri og skapa þannig sjálf-
bær verðmæti og eru því afar verð-
mæt fyrir hluthafa og samfélagið
í heild sinni,“ segir í rökstuðningi
Creditinfo.
Skilyrði fyrir að flokkast sem
framúrskarandi:
Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
Rekstrarhagnaður (EBIT) og ársn-
iðurstaða jákvæð þrjú ár í röð
Eiginfjárhlutfall 20% eða meira
þrjú rekstrarár í röð
Eignir hafa numið 80 milljónum
eða meira þrjú ár í röð
Framkvæmdastjóri er skráður í
hlutafélagaskrá
Fyrirtækið er virkt samkvæmt skil-
greiningu Creditinfo
Skilað ársreikning fyrir 1. septem-
ber 2016.
Eftirfarandi vestlensk fyrirtæki
eru á lista Creditinfo 2016 fyrir
að vera framúrskarandi:
Spölur ehf. Kirkjubraut 28 Akra-
nesi. Flutningafyrirtæki
Skaginn hf. Bakkatúni 26 Akra-
nesi. Framleiðsla.
Runólfur Hallfreðsson ehf.
Tindaflöt 6 Akranesi. Fiskveiðar.
Vignir G. Jónsson ehf. Smiðju-
völlum 4 Akranesi. Framleiðsla.
Bjarmar ehf. Hólmaflöt 2 Akra-
nesi. Útgerð vélknúinna tækja.
Norðanfiskur ehf. Vesturgötu 5
Akranesi. Framleiðsla.
Trésmiðjan Akur ehf.
Smiðjuvöllum 9 Akranesi. Fram-
leiðsla.
Hópferðabílar Reynis Jóhanns-
sonar ehf. Jörundarholti 39 Akra-
nesi. Flutningar.
Norðurál Grundartangi ehf.
Grundartanga. Framleiðsla.
Elkem Ísland ehf. Grundartanga.
Framleiðsla.
Borgarverk ehf. Sólbakka 17-19
Borgarnesi. Mannvirkjagerð.
Límtré Vírnet ehf. Borgarbraut
74 Borgarnesi. Framleiðsla.
Kaupfélag Borgfirðinga (svf)
Egilsholti 1 Borgarnesi. Heild- og
smásöluverslun.
Hótel Borgarnes hf. Egilsgötu 16
Borgarnesi. Rekstur gististaða og
veitingar.
Sorpurðun Vesturlands hf. Bjarn-
arbraut 8 Borgarnesi. Meðhöndlun
úrgangs og afmengun.
Búvangur ehf. Brúarlandi á Mýr-
um. Landbúnaður, skógrækt.
Sæfell hf. Hafnargötu 9 Stykkis-
hólmi. Fiskveiðar.
Fiskmarkaður Íslands hf. Norð-
urtanga í Ólafsvík. Heild- og smá-
söluverslun.
Útgerðarfélagið Dvergur hf.
Grundarbraut 26 í Ólafsvík. Fisk-
veiðar.
Útgerðarfélagið Guðmundur ehf.
Brautarholti 18 í Ólafsvík. Fiskveiðar.
KG Fiskverkun ehf. Melnes 1 á
Hellissandi. Fiskveiðar.
Nesver ehf. Háarifi 19 Hellissandi.
Fiskveiðar.
mm
Á þriðja tug framúrskarandi fyrirtækja á Vesturlandi
22 vestensk fyrirtæki eru á listanum
yfir framúrskarandi fyrirtæki 2016.
Þau eru af ýmsum toga; í ferðaþjón-
ustu, landbúnaði, framleiðslu og
fiskveiðum svo eitthvað sé nefnt.
Hér er Sigurður Reynisson árið 2012
við nýja rútu í eigu Hópferða Reynis,
en rúta þessi kom til landsins þetta
ár og var fyrsti hópferðabíllinn sem
fluttur var nýr inn frá bankahruni
2008. Fyrirtækið er eitt þeirra sem
finna má á listanum. Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Álagningu fasteignagjalda á Akranesi fyrir árið 2017 er nú lokið.
Greiðsluseðlar vegna fyrsta gjalddaga hafa verið póstlagðir.
Gjalddagar fasteignagjalda sem eru umfram kr. 15.000 fyrir
árið 2017 eru 15. hvers mánaðar frá janúar til og með október.
Gjalddagi fasteignagjalda sem eru undir kr. 15.000 er 15. apríl.
Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.
Álagning fasteignaskatts er kæranleg til yfirfasteigna-
matsnefndar og skal kæra borin fram innan þriggja
mánaða frá álagningu.
Álagning á sorphirðu- og sorpeyðingargjaldi er kæranleg til
úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er
kærufrestur einn mánuður frá álagningu.
Nánari upplýsingar er að finna
á www.akranes.is
Álagning fasteignagjalda
ársins 2017