Skessuhorn - 25.01.2017, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 2017 15
Snæfellsbær
Opinn kynningarfundur vegna tillögu að nýju
aðalskipulagi Snæfellsbæjar verður haldinn í
Klifi Ólafsvík, fimmtudaginn 26. janúar 2017 kl. 20:30
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Vegna vinnu við tillögu nýs aðalskipulags Snæfellsbæjar verður
haldinn kynningarfundur í samræmi við 2. málsgrein 30. greinar
skipulagslaga og skv. grein 4.6.1 í skipulagsreglugerð. Tilgangur
með kynningunni er að gefa íbúum og öðrum hagsmunaaðilum
tækifæri til að koma athugasemdum á framfæri áður en tillagan
verður afgreidd í auglýsingu.
Einnig er boðið upp á opinn vinnufund fyrir land-
eigendur og hagsmunaaðila í dreifbýli Snæfellsbæjar að
Lýsuhóli fimmtudaginn 26. janúar 2017 kl. 15:30
Þar gefst landeigendum og bændum kostur á að fara yfir tillöguna
fyrir dreifbýlið af meiri nákvæmni en mögulegt er á kynningarfund-
inum. Mikilvægt er að fá fram sjónarmið á þessu stigi, svo íbúar og
aðrir hagsmunaaðilar fái tækifæri til að koma athugasemdum á
framfæri áður en tillagan verður afgreidd í auglýsingu.
Eftir fundina verða gögn aðgengileg á vef Tæknideildar Snæfells-
bæjar, taeknideild-snb.is og tekið verður við upplýsingum og/eða
athugasemdum til 10. febrúar 2017.
Bóndadagurinn var haldinn hátíð-
legur víðsvegar um landið á föstu-
daginn og ýmislegt gert í tilefni
dagsins. Nemendur í 1. til 4. bekk
í Grunnskóla Snæfellsbæjar létu sitt
ekki eftir liggja og hittust á sal til
að syngja saman eins og reyndar er
gert á hverjum föstudegi. Sungu
þau saman hin ýmsu þorralög eins
og Þorraþræl, Táp og fjör og frísk-
ir menn og Fósturlandsins Freyja.
Stóðu krakkarnir sig vel og verða
ekki í vandræðum með að taka und-
ir söng á Þorrablótum framtíðar-
innar. þa
Sungu Þorrann inn
Lokið er álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð árið 2017. Álagningar-
seðlar hafa verið sendir til fasteignaeigenda sem eru 67 ára og eldri og
til fyrirtækja. Vakin er athygli á að allir álagningarseðlar eru aðgengilegir
á „mínum síðum“ á netsíðunni www.Island.is. Einnig geta þeir sem
þess óska haft samband við skrifstofu Borgarbyggðar og fengið senda
álagningarseðla í pappírsformi.
Gjalddagar eru tíu, sá fyrsti 23. janúar og síðan 15. hvers mánaðar
fram í október.
Eindagi er fimmtánda dag næsta mánaðar eftir gjalddaga.
Greiðsluseðlar verða eingöngu sendir til þeirra sem eru 67 ára eða eldri
og þeirra sem þegar hafa óskað eftir að fá þá senda til sín.
Einnig geta þeir sem eru orðnir 67 ára eða eldri afþakkað greiðsluseðla.
Vinsamlega hafið samband við skrifstofu Borgarbyggðar ef óskað er
breytinga á þessu fyrirkomulagi. Sími á skrifstofu Borgarbyggðar er
433-7100 og netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is
Ef gjaldendur telja álagninguna ekki rétta er hægt að fara fram á endur-
álagningu með rökstuddum hætti. Skrifleg beiðni þar um skal berast
skrifstofu Borgarbyggðar eigi síðar en mánuði eftir álagningu gjaldanna.
Borgarnesi 20. janúar 2017.
Skrifstofa Borgabyggðar
Til fasteignaeigenda í Borgarbyggð
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Stigið hefur verið skref í átt að jöfn-
un þjónustu við flóttafólk, hvort sem
það kemur í boði stjórnvalda eða á
eigin vegum. Skrifað hefur ver-
ið undir samning milli Rauða kross
Íslands og félagsmálaráðuneytis-
ins þar að lútandi. Samningurinn er
til þriggja ára og kveður á um hlut-
verk RKÍ varðandi móttöku, aðstoð
og stuðning við flóttafólk sem kem-
ur til landsins á samningstímanum.
Á næstu dögum er von á 47 flótta-
mönnum frá Sýrlandi sem koma
í boði stjórnvalda, í samstarfi við
Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna.
Samningurinn tekur meðal ann-
ars til þess að flóttafólki standi
til boða stuðningur sjálfboðaliða
Rauða krossins. Kveðið er á um að
RKÍ veiti flóttafólki almennar leið-
beiningar, fræðslu og ráðgjöf og vísi
á úrræði sem standa því til boða. Þá
mun RKÍ standa fyrir reglulegum
námskeiðum fyrir flóttafólk um ein-
kenni ofurálags og áfallastreitu og
skyndihjálparnámskeiðum. Rauði
krossinn mun einnig aðstoða flótta-
fólk við að komast í samband við
nána ættingja í gegnum alþjóðlega
leitarþjónustu, meðal annars til að
hafa uppi á týndum ættingjum eða
grafast fyrir um örlög þeirra. Þann-
ig megi endurvekja samband innan
fjölskyldna sem hafa sundrast vegna
átaka, ofsókna eða af öðrum orsök-
um.
mm
Staða flóttafólks jöfnuð í nýjum
samningi ríkis og RKÍ
Sveinn Kristinsson formaður RKÍ og Þorsteinn Víglundsson félagsmálaráðherra
undirrituðu samninginn.
Eins og fram kom í Skessuhorni
nýverið varð Leikskólinn Sólvell-
ir í Grundarfirði 40 ára í byrjun
mánaðarins. Laugardaginn 7. janú-
ar var haldið upp á áfangann og
blés bæjarstjórn til veglegrar veislu
í Samkomuhúsi Grundarfjarðar.
Þar mættu bæjarbúar, velunnar-
ar og fyrrverandi starfsmenn leik-
skólans. Farið var yfir sögu skól-
ans ásamt því að Matthildur Soffía
Guðmundsdóttir var heiðruð sér-
staklega enda hefur hún starfað við
leikskólann frá upphafi og fagnaði
því 40 ára starfsafmæli sínu í leið-
inni.
Að loknum þessum fagnaði hafði
leikskólinn Sólvellir opið hús, þar
sem starfið var kynnt í máli og
myndum. Sólvöllum bárust höfð-
inglegar gjafir við þetta tækifæri en
ákveðið hafði verið að festa kaup á
svonefndum „holukubbum“ fyrir
gjafafé sem bærist. „Svo rausnarleg-
ar voru gjafirnar sem við fengum að
við getum keypt holukubbana, sem
kosta um 500 þúsund krónur, en við
getum líka keypt annað kennsluefni
sem okkur hefur lengi leikið hugur á
að fá,“ segir í tilkynningu frá starfs-
fólki og nemendum Sólvalla. „Við
viljum þakka eftirfarandi félögum
og fyrirtækjum fyrir örlæti þeirra við
okkur: Kvenfélaginu Gleym mér ei,
Rauða kross deild Grundarfjarðar,
Lions í Grundarfirði, Soffanías Ce-
cilssyni ehf, G. Run, Ragnari og Ás-
geiri og Arion banka. Á heimasíðu
Sólvalla, solvellir.grundarfjordur.is,
verður hægt að fylgjast með okkur
og þar munum við birta myndir af
því sem við festum kaup á þegar þar
að kemur,“ segir í tilkynningu frá
starfsfólki og nemendum Leikskól-
ans Sólvalla í Grundarfirði.
mm
Sólvöllum bárust margar gjafir á afmælinu
Svipmynd úr afmælisfagnaðinum í Samkomuhúsinu. Ljósm. tfk.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Bæjarstjórnarfundur unga fólksins á Akranesi verður haldinn í
bæjarþingsalnum Stillholti 16 -18 þriðjudaginn
31. janúar kl. 17:00. Unglingar úr grunnskólunum á Akranesi,
Þorpinu, Arnardal og Hvíta húsinu auk Fjölbrautaskóla
Vesturlands hafa framsögu og taka þátt í umræðum.
Fundurinn er öllum opinn og eru bæjarbúar hvattir
til að mæta og kynna sér bæjarmálin.
Bæjarstjórnarfundur unga fólksins
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is