Skessuhorn - 25.01.2017, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 201718
Rektorar íslenskra háskóla
fagna þeirri ákvörðun Alþing-
is að hækka fjárframlög til há-
skólanna við afgreiðslu frum-
varps til fjárlaga 2017 og koma
þannig til móts við áskorun
til þingmanna um að bæta úr
undirfjármögnun íslensks há-
skólakerfis. „Rektorarnir taka
undir ákvæði í stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar sem kveða á
um eflingu allra skólastiga og
að styðja skuli háskólana í að
halda uppi gæðum og standast
alþjóðlega samkeppni um leið
og samvinna og samhæfing ís-
lenskra háskóla- og vísinda-
stofnana verður aukin. Þá taka
rektorar eindregið undir það
að endurskoða þurfi reiknilíkan
háskólakerfisins því að forsenda
þess að háskólar á Íslandi geti
haldið uppi gæðum og staðist al-
þjóðlega samkeppni er sú að þeir
búi við sambærilega fjármögn-
un og háskólar í nágrannalönd-
um okkar. Stjórnvöld hafa áður
markað sér þá stefnu að meðal-
tali framlaga til háskóla í OECD-
ríkjum skuli náð og síðar meðal-
tali hinna norrænu ríkjanna en
Ísland er enn langt undir þeim
markmiðum. Því er mikilvægt að
viðbótarframlag til háskólanna í
fjárlögum 2017 verði ekki tíma-
bundin aðgerð heldur einung-
is fyrsta skrefið í markvissri áætl-
un um bætta fjármögnun háskól-
anna,“ segir í ályktun frá rektor-
um sjö háskóla hér á landi.
Í stjórnarsáttmála ríkis-
stjórnarinnar segir enn fremur
að menntakerfið gegni „lykil-
hlutverki við að búa landsmenn
undir þátttöku í lýðræðislegu
samfélagi og þekking, menn-
ing, listir, nýsköpun og vísindi
skipt[i] sköpum við uppbygg-
ingu atvinnulífs og eflingu lífs-
gæða“. „Rektorar íslenskra há-
skóla taka heils hugar undir
það og lýsa yfir einlægum vilja
til samstarfs við stjórnvöld um
að efla háskóla landsins svo
þeir geti staðið undir því hlut-
verki að leiða þróun íslensks
þekkingarsamfélags.“
mm
Rektorar vilja markviss skref um
bætta fjármögnun háskólanna
Tímamót verða á skrifstofu Sjóvá
á Akranesi nú um mánaðamótin en
þá lætur af störfum Ólafur Grét-
ar Ólafsson eftir hvorki fleiri né
færri en 46 ár hjá fyrirtækinu. Við
starfi hans hefur nú tekið Harald-
ur Ingólfsson, en auk þeirra hef-
ur starfað á skrifstofunni frá árinu
2002 Harpa Hrönn Finnbogadótt-
ir. Opið hús verður þriðjudaginn
31. janúar næstkomandi á Garða-
braut 2A og gefst þá viðskiptavin-
um tækifæri til að kveðja Óla Grét-
ar og óska honum góðs gengis við
þessi kaflaskipti í lífinu. Aðspurð-
ur segist Óli Grétar ekki kvíða
starfsflokum, hann hafi alltaf haft
nóg fyrir stafni og getur vel hugs-
að sér að spila meira bridds og golf
til að halda huganum og skrokkn-
um áfram í góðu formi. „Maður er
heppinn að vera við góða heilsu á
þessum tímapunkti og vonandi næ
ég að njóta þess nú þegar hefð-
bundinni starfsævi lýkur.“ Sest var
niður með þeim Óla Grétari og
Haraldi, eða Hadda Ingólfs eins og
hann er jafnan kallaður, nú í viku-
lokin og spjallað um tímamótin
sem framundan eru.
Lærði af Bíla Bergi
„Það er gaman að segja frá því að
þegar ég byrjaði hjá Sjóvá trygg-
ingum 20. maí árið 1970 þá tek
ég við starfi Ingólfs Steindórsson-
ar sem einmitt er faðir Haraldar
sem nú tekur við af mér,“ segir Óli
Grétar. Haddi bætir því við að síð-
ar þetta sama ár, eða 1. ágúst 1970
hafi hann sjálfur fæðst. „Óli Grétar
er þannig búinn að starfa við trygg-
ingar hjá sama félaginu allt mitt líf
og ríflega það,“ segir Haddi. „Þeg-
ar ég byrjaði hjá Sjóvá tryggingum
var það Bergur Arnbjörnsson, eða
Bíla Bergur eins og hann var allt-
af kallaður, sem var hér fyrir. Það
var fróðlegt að starfa með honum.
Bíla Bergur var litríkur karakter,
fljótfær en góður karl. Allir þekktu
hann og hann þekkti alla.“ Fyrstu
árin var Sjóvá til húsa í Skökkinni
við Suðurgötu 62 en við samein-
ingu Sjóvár og Almennra trygginga
1988 fór Óli Grétar að starfa með
Ásgeiri Guðmundssyni sem var
umboðsmaður Almennra trygg-
inga og saman unnu þeir í fjölmörg
ár við tryggingasölu. Lengst var
skrifstofa Sjóvá-Almennra í gömlu
Mjólkurstöðinni við Garðabraut
2 en síðustu árin í nýja húsinu við
hliðina, Garðabraut 2A. „Það var
stutt að flytja hingað yfir, þurft-
um ekki bíl til þess, bárum draslið á
milli,“ segir Óli.
Mannskaðar og stór-
brunar erfiðustu málin
Þrjú tryggingafélög hafa nú starf-
semi á Akranesi og opna skrifstofu.
Auk Sjóvá er það Tryggingamið-
stöðin og VÍS. „Ætli við hjá Sjóvá
séum ekki með svona þriðjungs
markaðshlutdeild hér á Skaganum,
en við skilgreinum starfssvæði okk-
ar sunnan Skarðsheiðar. Vörður
er ekki með opna skrifstofu hérna
á Akranesi en auðvitað skiptir það
máli að vera með opna skrifstofu
og geta þannig veitt persónulega
og skjóta þjónustu við viðskipta-
vinina,“ segir Óli Grétar. Aðspurð-
ur rifjar hann upp að það sem hafi
mest breyst í starfinu á þessum tíma
sé tölvubyltingin. „Áður þurftum
við að handskrifa allar beiðnir og
því er afgreiðsluhraðinn meiri. Vá-
tryggingaskilmálar hafa einnig tek-
ið breytingum.“ Aðspurður segir
hann að stærstu tjónin séu þegar
mannskaðar verða og stórbrunar,
en kýs að nefna ekki einstök dæmi.
„Starfið er hins vegar fjölbreytt og
oftast skemmtilegt,“ segir hann.
Viðskiptafræðingur og
fyrrum atvinnumaður í
boltanum
Haraldur Ingólfsson var ráðinn
svæðisstjóri Sjóvá á Akranesi eft-
ir að starfið var auglýst á liðnu
ári. Hann er uppalinn á Akranesi
og hefur prófað ýmislegt á sinni
starfsævi, meðal annars atvinnu-
mennsku í fótbolta. „Ég byrjaði
hér hjá Sjóvá í haust og hef verið
afar lánssamur að njóta leiðsagn-
ar bæði Óla Grétars þegar hann er
að draga saman seglin og Hörpu
sem áfram mun starfa mér við hlið.
Það hefur verið gott að geta leitað
í þann reynslubrunn sem þau eru
og þá hef ég einnig gott „backup“
á skrifstofunni fyrir sunnan,“ segir
Haddi. „Mér líst vel á starfið. Það
tekur tíma að sjóast í trygginga-
bransanum, en engu að síður er
þetta þjónustustarf og þeim er ég
ekki ókunnur af öðrum vettvangi,“
segir Haddi. Eftir að hann lauk
námi í Fjölbrautaskóla Vesturlands
lagði hann stund á viðskiptafræði
við HÍ. Eftir það starfaði hann í
tvö ár við skattaeftirlit á Skattstofu
Vesturlands en fór þá utan í at-
vinnumennsku í knattspyrnu. „Ég
var atvinnumaður erlendis í sjö ár
eftir að hafa spilað hér heima með
uppeldisfélaginu ÍA. Á mínum at-
vinnumannsferli spilaði ég með
Aberdeen í Skotlandi, Elvsborg í
Svíþjóð og að endingu með Rau-
foss í Noregi. Þannig lagað var ég
aðallega að spila með félagsliðum í
nágrannalöndum okkar. Þegar við
fórum utan var ég 26 ára og kom-
inn með konu og tvö börn. Þetta
var fróðlegur og skemmtilegur tími
sem kenndi manni margt. Við kom-
um síðan heim aftur í árslok 2003
og var ég þá ráðinn framkvæmda-
stjóri í nýtt starf hjá Verkalýðs-
félagi Akraness sem þá var búið að
ganga í gegnum mikla og storma-
sama breytingatíð og ný stjórn tek-
in við. Eftir hálft ár þar var ég svo
kominn í starf í KB banka, síðar
Arion banka. Eftir að útibúinu var
lokað á Akranesi starfaði ég í útibúi
Arion banka í Mosfellsbæ allt þar
til ég var ráðinn framkvæmdastjóri
KFÍA haustið 2013. Þar var ég svo
þar til ég fékk þessa stöðu hjá Sjóvá
nú í haust.“
Kveður sáttur
Ólafur Grétar segist kveðja starf-
ið sáttur. „Fyrst og fremst er ég
ánægður með að vera við góða
heilsu og geta notið lífsins nú við
starfslok. Ég hef fullt af áhugamál-
um og nefni golfið og briddsið sem
dæmi. Það er engin ástæða til að
kvíði starfslokum en ég vil koma
á framfæri kærum þökkum til við-
skiptavina og allra sem ég hef starf-
að með þennan tíma. Endilega lát-
ið sjá ykkur í kveðjukaffi á þriðju-
daginn, það verður heitt á könn-
unni og kaka í tilefni dagsins,“ seg-
ir Ólafur Grétar að endingu.
mm
Lætur af störfum eftir 46 ár í tryggingabransanum
Á skrifstofu Sjóvá á Akranesi verða breytingar nú um mánaðamótin. F.v. Haraldur Ingólfsson, Harpa Hrönn Finnbogadóttir og Ólafur Grétar Ólafsson.