Skessuhorn


Skessuhorn - 25.01.2017, Side 24

Skessuhorn - 25.01.2017, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 201724 Nýr löndunarkrani, sem er staðsett- ur efst á Norðurtanga, var tekinn í notkun í Ólafsvíkurhöfn á dögun- um. Kraninn er góð viðbót og mun hann nýtast vel en oft hefur verið erfitt að landa á gömlu krönunum sérstaklega í sunnanáttum vegna sjógangs í höfninni. Þessi krani er búinn fjarstýringu sem er til mik- illa þæginda fyrir þá sem landa einir síns liðs og líka hvað varðar öryggi fyrir þá sem er á stóru yfirbyggðu bátunum, en þá getur sá sem híf- ir staðið á lúgunni og horft niður og séð hvað hann er að gera. Áður þurftu þeir að vera með kallkerfi. Mun kraninn einnig stytta lönd- unarbið þegar margir fara í róður í einu og vilja landa á sama tíma. þa Nýr löndunarkrani bætir aðstöðu í Ólafsvíkurhöfn Nemendur unglingastigs Auðar- skóla í Dölum lögðu leið sína í félagsheimilið Árblik í gær, þriðju- dag, til að taka þátt í nýsköpun- arsmiðju um ferðamál í Dölum. Smiðjan var undir leiðsögn Bjarn- heiðar Jóhannsdóttur ferðamála- fulltrúa Dalabyggðar og Eyjólfs Eyjólfssonar frá Nýsköpunarmið- stöð Íslands. Markmið smiðjunn- ar var að skoða þarfir markaðarins og auðlindir á svæðinu og vinna út frá því að þróun hugmynda og útfærslu að nýjum ferðaþjónustu- fyrirtækjum í Dölum. Nemendur unnu í fimm hópum sem gáfu af sér jafn margar hugmyndir að nýj- um ferðaþjónustufyrirtækjum fyr- ir Dalina. Hugmyndirnar voru: Bakarí með söguívafi, bíóhús með áherslu á íslenskar kvikmyndir fyr- ir ferðamenn, sauðfjártengt kaffi- hús með afurðir úr héraði, kajak- siglingar í ám í Dölum og hesta- miðstöð með námskeiðahaldi og hestaferðum. sm Nýsköpunar- smiðja hjá Auðarskóla í Dölum Nemendur niðursokknir í vinnu. Bjarnheiður leiðbeinir nemendum. Það var góður vinnuandi í hópunum þegar fréttarit- ari leit við. Niccoló Carrivale er ítalskur skipti- nemi sem dvelur í Borgarnesi um þessar mundir. Hann kom hingað frá Ítalíu í gegnum skiptinemasam- tökin AFS 19. ágúst síðastliðinn. Hann stundar nám á félagsfræði- braut við Menntaskóla Borgar- fjarðar og líkar dvölin vel. Niccoló segir Ísland hafa verið sitt fyrsta val af tveimur meginástæðum. Í fyrsta lagi vildi hann komast í menningu sem væri minna Evrópuvædd en sú menning sem hann er vanur og í öðru lagi af því að hann heillast af norrænum bókmenntum og hefur meðal annars lesið Völsungasögu. Hann segist vera mjög ánægður með þessa ákvörðun. Niccoló fæddist í Flórens í Ítalíu en flutti til Sikileyjar eftir næstum sex ár í Flórens. Hann segir mikinn mun vera á menningunni hérna og úti. Hann nefnir til dæmis að hér á landi fara allir úr skóm áður en þeir ganga inn á heimili fólks, í skóla og þess háttar. Úti í Ítalíu er það óhugsandi að ganga ekki í skóm innandyra og það að ganga skó- laus innandyra, sérstaklega heima hjá ókunnugu fólki og í skólum, er beinlínis talið ófágað og sóðalegt. Ólíkir skólar Aðspurður segir Niccoló að mik- ill munur sé á skólum á Íslandi og á Ítalíu. Honum finnst skólinn hér vera mikið frjálslegri. „Hér er námið að stórum hluta byggt í kringum tölvur og maður er ekki neyddur til þess að fylgja kennslu- stundinni ef maður vill ekki, svo lengi sem maður truflar ekki þá sem eru að læra í kringum mann. Maður má fara úr kennslustofunni ef maður þarf þess. Úti á Ítalíu gefa kennarar ekki einu sinni leyfi til þess fara úr kennslustofunni ef maður þarf að fara á salernið eða ef maður þarf að hringja til þess að fara veikur heim. Skólalóðinni er læst frá klukkan 8:15 til 13 eða 14. Á þeim tíma er stranglega bannað að yfirgefa skólalóðina til þess að t.d. fara út í búð. Nemendur mega ekki ávarpa kennara með nafni heldur verða þeir alltaf að kalla þá „prófessor”.“ Meira jafnrétti – lægri glæpatíðni Niccoló nefnir auk þess tvö stór félagsleg atriði sem eru gjörólík á Íslandi og Ítalíu. „Hér er jafnrétti kynjanna ekki vandamál. Hér er aukin tíðni glæpa ekki vandamál og hér get ég skilið hjólið mitt eft- ir ólæst og verið viss um að finna það aftur á sama stað. Þetta er allt menningarlegar staðreyndir.” Niccoló líkar mjög vel við land- ið, fólkið, skólann og samfélagið. Það hefur verið komið vel fram við hann hingað til og þrátt fyrir að hafa skipt um fjölskyldu þá seg- ir hann að allt hér hafi allan tím- ann verið dásamlegt. Aðspurð- ur af hverju hann hafi ákveðið að gerast skiptinemi segist hann ekki vita nákvæmlega hver ástæðan er. Hann sá einfaldlega að það væri hægt að sækja um þetta og fannst að hann þyrfti að prófa og víkka út sjóndeildarhringinn. Niccoló er núna á fimmta mán- uðinum sínum hér á landi og þegar hann er spurður segist hann ekki sakna þess að vera heima í Ítalíu. „Mér líkar að vera hér og ég veit að þótt að ég sé fjarri heimili mínu þá hef ég alltaf fólk sem elskar mig. Ég get svo sannarlega sagt að fjölskyldan sem ég dvel hjá sé full- komin. Þau eru góð við mig, hjálpa mér ekki bara með tungumál- ið, heldur líka margt fleira. Ég er gríðarlega þakklátur þeim fyrir allt það sem þau hafa gert fyrir mig, að hafa hleypt mér inn í heimili sitt og komið fram við mig sem einn af fjölskyldunni.“ -Snæþór, Guðjón og Hjálmar, nemendur í MB, skráðu. Ítalskur skiptinemi lætur vel af veru sinni í Borgarnesi „Dvel hjá fullkominni fjölskyldu og allir taka mér vel“ Niccoló hitti Pál Óskar sem var gestur á Þjóðahátíð Vesturlands sem haldin var af Society of New Icelanders á Akranesi. Niccoló hitti Guðna Th Jóhannesson forseta Íslands á kvöldverði hjá Kiwanis- klúbbnum. Fyrir framan styttuna af Leifi Eiríkssyni sem stendur á stalli sínum framan við Hall- grímskirkju í Reykjavík.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.