Skessuhorn


Skessuhorn - 25.01.2017, Page 27

Skessuhorn - 25.01.2017, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 2017 27 Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Auk þess birtum við lausn á krossgátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnar- orð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu- dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausn- inni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessu- horn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum lausn- um og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessuhorni; „Pétrísk íslensk orðabók með alfræðiívafi,“ eftir sr. Pétur Þorsteinsson. Alls bárust 68 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Stormský.“ Vinningshafi er Valur Gunnarsson. [Vantar heimilisfang] Máls- hátttur Mygla Bara Tikk Afl Sk.st. Fiskur Heppni Árblik Hljóp Skel Digur Sk.st. Útlim Grind Von Þuml- ungur Svelgur Iðkun 1000 Kúgun Bíll Lesa Glappa- skot Svertir Skáþak Lækn- ing Dregill Aflögur Skinn 7 Rit- stifti Ást Meðal Árla Dvelja Átt Sparar Orð- færar Veiddi Mælir bót 2 Kostur Hvíldu Fita 4 Naut Lítill Suddi Ötul Eðli 3 Gabb Tónn Alda MJöðm Feiti Skyldar Ósoðin Hug- rakkur Álegg Þrátt fyrir Bor Huguð 51 Rák Leit Hestur Ögn Fitl Gelt Taut Röð Tengi Bólstur Hress 50 Tími Ekki Tímatal Börn Yndi Reipi Villtur Orka Fagur Væl 6 Væl Ráp Arinn Spyrja Súr- efni Ego Kona 8 Skjóla Átt Sjó Sér- hljóðar Samhlj. Hönd 5 Flýtir Menn Bók Tínir saman Deigur S p i l Titill Leiði Hár 1 Tvíhlj. Við- mót Þreitt 1 2 3 4 5 6 7 8 K Á R I B L Æ S B Ó L K R U Ð A Ó L M R Ú L L A T A U Ó L L I Ð S I L R Ó A D I K Y N D U G J D D M L L Ý L A E N N Þ Á G Æ R A I J U K K D Á R Í L Á T I N A R I K R Ú A R P E N N B E N D A Ó G N U N U N D Ó R A R S L A N G U R D Æ S L R A M B A R O R A L T S E G G U R R I F T E R T A T A S N A T T A R O K K U R R P A S S A R I N N A R O K I Ð K A Ö G N Á N A F Á L U T Ó N N D R A G G A T R Ó T A D Ý I Ð A N S T O R M S K ÝL A U S N Ú R S ÍÐ A S T A B L A Ð I Vísnahorn Jæja gott fólk. Það má nú segja að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Við erum orðin svo háð tækninni að minnstu frávik frá vanan- um gera okkur hálf- eða heilfötluð til þeirra hluta sem okkur eru að öllu jöfnu eðlilegir. Ef tölvurnar okkar klikka er hætt við að heimur- inn stöðvist. Við erum vön að hafa ríkisstjórn en einhvern veginn slampaðist þetta með- an engin stjórn var en engum gátum við þó kennt um það sem aflaga fór. Stjórnarmynd- unarviðræður gengu allavega og um þær kvað Hjálmar Freysteinsson: Sundur gekk og saman dró. Svo jókst aftur bilið. Á endanum fékk þjóðin þó það sem hún átti skilið. Hallmundur Kristinsson orti líka um nýju stjórnina: Margir þóttust þrá hana og þegar vildu fá hana en líst svo ekkert á hana er þeir loksins sjá hana. Man ekki betur en það hafi verið Gunn- laugur Pétursson frá Selhaga sem orti um þá- verandi ríkisstjórn hver sem hún nú var: Skeiðar til ég hef og hnífs en hvergi má við fórninni. Af öllu hjarta eilífs lífs óska ég ríkisstjórninni. Það hefur lengi verið siður að tala illa um stjórnmálamenn og ekki síst þá sem einhver völd hafa. Fjarri því að ég sé saklaus í þessu máli sjálfur og þyrfti sjálfsagt umbóta við. Eft- irfarandi mun ort um Halldór Blöndal en ég treysti mér ekki til að nafngreina höfundinn og þá er betra ,,að þegja en segja ekki neitt“: Lítið vitið í þér er ofar beins á völu. Guð hefur lága gefið þér greindarvísitölu. Nú er Halldór kollegi minn vísnamaður eins og margir alþingismenn fleiri enda sá siður í þingveislum að þar megi aðeins taka til orðs í bundnu máli. Ekki veit ég þó hver orti eftirfarandi um þingveislur svona yfirleitt: Engin ræða er á þeim stað önnur gæði hrífa vísur flæða eyrum að eins og skæðadrífa. Samt fer nú þannig fyrir okkur flestum, jafnt alþingismönnum sem öðrum, að ellin segir til sín með því sem henni fylgir enda orti Theódór Einarsson sem lengi var þekkt- ur gamanvísnahöfundur og flestir eldri Akur- nesingar munu kannast við: Fyrr ég gat á árum ort eins og best ég vildi nú er ég eins og kreditkort sem komið er úr gildi. Ekki veit ég hver það var sem fékk eftirfar- andi vísu frá Jónatan Jakobssyni en ósköp er þetta nú notaleg kveðja: Þó að brimi um vík og vog vaxi hrönn á sundum gæfan við þig glingri og gleðji öllum stundum. Það er sagt um suma menn að þeir gleymi aldrei því sem þeim er gert. Hvorki góðu né illu. Björn Pétursson frá Sléttu í Fljótum orti á einhverjum tímapunkti lífsgöngunnar: Þó að skapið hafi hert harður reynsluvetur man ég það sem mér er gert mörgum kannske betur. Nú í upphafi þorrablótavertíðarinnar er ekki úr vegi að rifja upp eitthvað tengt þeim merku hátíðum. Eftirfarandi bragur mun hafa verið sunginn á Þorrablóti í Bonn í febrúar 1988 við lagið „Öxar við ána.“ Ekki veit ég um höfund eða hvort þar var fyrsti flutningur þess ljúfa kvæðis: Fram skulu reiddar sauðkindur seyddar sýrðar og reiktar og höggnar í spað. allt það er seðjar augu sem hreðjar innbyrði gestirnir þegar í stað. Namm, namm, lostætið ljúfa. Namm, namm lundabaggi og svið. Tros og tormelt rengi tyggjum vel og lengi. Á tanngörðunum vinnum við. Flest af þeim mat sem nú er kallað samheit- inu Þorramatur var til skamms tíma venju- legur hversdagsmatur á flestum íslenskum heimilum og sumt af því er algengt enn í dag. Kannske helst að hákarl hafi ekki verið hafður í matinn svona hversdags. Trúlega styttist í að allt verði kallað þorramatur nema pizza. Veit ekki alveg hvað þorramatarpizza væri freist- andi með súrmat og hákarli. Um hákarlsveiði frá Hóli í Svarfaðardal var kveðið: Allar gjafir eru frá æðstum himnadrottni. En hákarlinn sem Hólsmenn fá hann er neðan frá botni. Þorrablót svo sem aðrar stórveislur standa og falla með veitingunum sem yfirleitt eru síst við neglur skornar. Stöku sinnum er svo veitt að hægt er að segja eins og maðurinn; „minna hefði nú kannske nægt.“ Um allfræga afmælisveislu fyrir margt löngu kvað Jóhann- es Benjamínsson: Hress og kátur höfðinginn hellti vel í glasið. Fólk var borið út og inn andvana og lasið. Hef grun en ekki vissu um að Örn Snorra- son hafi ort þessa en veit svosem ekkert hvort það var daginn eftir Þorrablót eður ei: Hvílík högg og hamraskak af hjarta yrði ég glaður ef þú hvíldist andartak elsku Timburmaður. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is Ef þú hvíldist andartak - elsku Timburmaður!

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.