Skessuhorn - 25.01.2017, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 2017 29
Nýfæddir Vestlendingar
Hvalfjarðarsveit -
miðvikudagur 25. janúar
Opið hús fyrir eldri borgara í Hval-
fjarðarsveit í Fannahlíð kl. 16 - 18.
Gunnar Straumland les frumsamin
ljóð, Heiðmar Eyjólfsson syngur
nokkur lög. Anton Ottesen flytur
Fjallgönguna, ljóð eftir Tómas
Guðmundsson. Kaffi og meðlæti.
Grundarfjörður -
fimmtudagur 26. janúar
Hundahreinsun í Grundarfirði.
Dýralæknir verður í áhaldahúsinu
frá kl. 13 - 16:30. Öllum hunda-
eigendum skylt að mæta með
hunda sína.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 26. janúar
„Open Mic“ / Opinn hljóðnemi í
Landnámssetri. Hljóðneminn er
opinn og öllum er velkomið að
láta ljós sitt skína. Þeir sem troða
upp fá einn öl að launum!
Borgarbyggð -
fimmtudagur 26. janúar
Prjóna-bóka-kaffi í Bókhlöðunni
kl. 20. Kvöldstund við hann-
yrðir, bókaspjall og kaffisopa.
Prjóna-bóka-kaffið verður hálfs-
mánaðarlega í vetur og er öllum
opið. Safnið er opið til útlána og
gestir eru hvattir til að koma með
uppskriftir og hugmyndir að hvers
kyns handverki. Auk þess hafa
kvöldin reynst góður vettvangur
fyrir þá, sem hafa frá einhverju
fróðlegu og skemmtilegu að segja
eða vilja kynna viðfangsefni sín og
hugðarefni á annan hátt. Allir eru
hjartanlega velkomnir.
Akranes -
föstudagur 27. janúar
Tónlistarskólinn verður með súpu-
tónleika í anddyrinu í hádeginu
næstkomandi föstudag. Stutt og
létt dagskrá. Allir velkomnir.
Borgarbyggð -
föstudagur 27. janúar
Félagsvist. Síðasta kvöldið í þriggja
kvölda keppni. Góða kvöld- og
lokaverðlaun. Veitingar í hléi. Allir
velkomnir.
Snæfellsbær -
föstudagur 27. janúar
„Journey to the centre of the
earth“ í Frystiklefanum í Rifi kl. 20.
Sýning byggð á Leyndardómum
Snæfellsjökuls, klassískri sögu
Jules Verne. Sýningin er tveggja
tíma löng, fer að mestu fram á
ensku og er ekki við hæfi barna
undir sex ára aldri. Miðaverð er
3.900 kr. Netfang: info@thefree-
zerhostel.com / 662-0170. Örfá
sæti eru laus á sýninguna.
Grundarfjörður -
laugardagur 28. janúar
Þorrablót hjónaklúbbsins í Sam-
komuhúsi Grundarfjarðar. Húsið
opnar kl. 19.
Borgarbyggð -
laugardagur 28. janúar
Svarti Galdur í Landnámssetrinu
kl. 20. Svarti Galdur er kröftugur
einleikur eftir og í flutningi Geirs
Konráðs Theodórssonar. Þar vefur
hann saman þekktum þjóðsögum
sem lifað hafa með þjóðinni í
gegnum aldirnar. Bölvuð skemmt-
un fyrir unga sem aldna. Tryggðu
þér miða sem fyrst!
Snæfellsbær -
laugardagur 28. janúar
„Journey to the centre of the
earth“ í Frystiklefanum í Rifi kl.
17. LOKASÝNING. Sýning byggð
á Leyndardómum Snæfells-
jökuls, klassískri sögu Jules Verne.
Sýningin er tveggja tíma löng, fer
að mestu fram á ensku og er ekki
við hæfi barna undir sex ára aldri.
Miðaverð er 3.900 kr. Netfang:
info@thefreezerhostel.com /
662-0170. Örfá sæti eru laus á
sýninguna.
Borgarbyggð -
sunnudagur 29. janúar
Thors Saga Jensen kl. 16. Guð-
mundur Andri Thorson flytur sögu
langafa síns á Sögulofti Land-
námsseturs. Thor Jensen var einn
af áhrifamestu frumkvöðlum 20.
aldar. Hann hóf ferill sinn í Borgar-
nesi og stóð m.a. fyrir byggingu
pakkhússins þar sem Söguloftið er.
Á döfinni
13. janúar. Stúlka. Þyngd 3.752
gr. Lengd 54 sm. Foreldrar:
Ástrún Kolbeinsdóttir og Arnór
Orri Einarsson, Borgarnesi.
Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir.
Óskum eftir húsnæði á
Akranesi til eins árs
Hjón með 3 börn óska
eftir íbúð/húsnæði til leigu
á Akranesi frá fyrri hluta
júnímánaðar 2017 til eins árs.
Erum reglusöm, reyklaus og
skilvís.
Markaðstorg
Vesturlands
LEIGUMARKAÐUR
18. janúar. Drengur. Þyngd
4.048 gr. Lengd 53 sm. Foreldrar:
Hrafnhildur Þrastardóttir og
Daníel Magnússon, Akranesi.
Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir.
Drengurinn hefur verið nefndur
Unnar Daníelsson.
18. janúar. Drengur. Þyngd
3.320 gr. Lengd 49 sm. Foreldrar:
Birna Rún Ragnarsdóttir og
Arnþór Pálsson, Reykholti.
Ljósmóðir: Helga R.
Höskuldsdóttir.
20. janúar. Drengur. Þyngd
3.578 gr. Lengd 50 sm. Foreldrar:
Dagný Ósk Gunnarsdóttir og
Eggert Óskar Ólafsson, Reykjavík.
Ljósmóðir: Lára Dóra Oddsdóttir.
22. janúar. Drengur. Þyngd
4.026 gr. Lengd 53 sm. Foreldrar:
Hekla Karen Steinarsdóttir og
Hilmir Hjaltason, Akranesi.
Ljósmóðir: Elísabet Harles.
Miðvikudaginn 18. janúar fengu
nemendur og starfsfólk Reykhóla-
skóla heimsókn. Þá litu við full-
trúar Þörungaverksmiðjunnar, þau
Finnur Árnason framkvæmdastjóri,
Birna Björnsdóttir framleiðslustjóri
og Bjarni Þór Bjarnason. Færðu þau
Reykhólaskóla að gjöf endurskins-
vesti sem verksmiðjan hafði látið
útbúa handa öllum 70 nemendum
leik- og grunnskóladeildarinnar,
með nafni hvers og eins á bakinu.
Starfsfólk skólans fékk einnig vesti.
Að því er fram kemur á Reykhóla-
vefnum er forsagan að gjöf Þör-
ungaverksmiðjunnar sú að Bjarni
hafði samband við Ástu Sjöfn Krist-
jánsdóttur skólastjóra og spurði
hvort ekki væri góð hugmynd að
færa öllum í skólanum endurskins-
vesti að gjöf. Hann hefði orðið þess
var hve erfitt væri fyrir bílstjóra að
koma auga á börn og ungmenni á
gangi eftir að dimma tekur. Það
gildi reyndar að sjálfsögðu einn-
ig um fullorðna en þeir væru síð-
ur á gangi en þeir sem yngri eru.
Skemmst er frá því að segja að Ásta
Sjöfn tók hugmyndinni fagnandi
og reyndist Bjarna auðsótt mál að
fá Þörungaverksmiðjuna með sér
í lið. „Reykhólaskóli þakkar Þör-
ungaverksmiðjunni og þeim Finni
og Birnu og Bjarna innilega fyr-
ir heimsóknina og þessa frábæru
gjöf,“ segir í frétt á Reykhólavefn-
um.
kgk
Gáfu öllum nemendum
endurskinsvesti
Nemendur og starfsfólk Reykhólaskóla í endurskinsvestunum frá Þörun-
gaverksmiðjunni. Ljósm. fengin af facebook-síðu Reykhólaskóla.
Það voru blendnar tilfinningar að
fara í leit með Landsbjörgu um liðna
helgi, en leit af þessu tagi er ekki efst á
útkallslista nokkurra björgunarsveit-
armanna. Það breyttist þegar í Hafn-
arfjörð var komið. Kennarar, skip-
stjórar, einstaklingar komnir á eftir-
laun, rafvirkjar, bifvélavirkjar, pípar-
ar sem og matreiðslumeistarar. Allir
jafnir og bíða eftir samráðsfundinum
og því næst út að ganga. Svæðisstjórn
og lögregla unnu þrekvirki við skipu-
lagningu og utanumhald á 2000 leit-
arsvæðum. Útdeiling verkefna gekk
hratt og snurðulaust. Björgunarsveit-
ir, með tæki og tól tíndust ein af ann-
arri af stað.
Berserkir frá Stykkishólmi mættu
með fimm manns, fjórhjól, sexhjól og
dróna. Nú myndi koma í ljós hvernig
dróni virkar í svona leit. Laugardag-
urinn var hvass, 12 - 15 m.s. sem er
full hvasst fyrir dróna svo við vorum
splæst saman við aðra sveit og hraun-
ið fyrir vestan Hafnarfjörð var geng-
ið í breiðleit. Sunnudagur kom með
betra veðri 3-5 m.s, og fengum við
úthlutað svæðum við Hafravatn til
leitar. Drónaleit er nýtt fyrir mér og
býður upp á marga möguleika við leit
en sumsstaðar hentar hann alls ekki.
Berserkir voru að fara að tilkynna sig
á þriðja leitarsvæði þegar allir voru
kallaðir inn á sunnudeginum. Ákveð-
inn léttir, vísbending um að eitt-
hvað hafi fundist og enn lifði vonin.
Sveitirnar tíndust inn ein af annarri
í Hafnarfjörð. Allir voru hljóðir, svo
kom tilkynning um að sveitir sem
lengra væru komnar að mættu fara
heim. Við ákváðum að ná í Borgarnes
og horfa á fréttatilkynninguna þar. Í
Borgarnesi styrktist ákveðinn léttir
en verkurinn í hjartanu fór ekki.
Ég vil þakka þeim sem tóku þátt
með einum eða öðrum hætti, Slysa-
varnadeildum sem sáu um að næra
þennan fjölda og öllum öðrum.
Að lokum vil ég votta aðstandend-
um innilega samúð mína.
Sumarliði Ásgeirsson, félagi í
Björgunarsveitinni Berserkjum í
Stykkishólmi.
Tekið þátt í fjölmennri leitaraðgerð