Skessuhorn - 05.07.2017, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 5. júLí 20174
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Björn Þór Björnsson bjorn@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Emilía Ottesen emilia@skessuhorn.is
Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Skemmdarverkamenn
ganga lausir
Það er nú svo að fréttir liðinnar viku ættu að öllu óbreyttu að endurspegla
þann veruleika sem við búum við. Að einhverju leyti er það svo en þó alls
ekki alltaf. Ég kýs nefnilega að trúa því að það flokkist sem undantekning
að fólk sé látið greiða 400 krónur fyrir tepoka án vatns á hóteli eða 1200
krónur fyrir smurða brauðsneið í bakaríi. Þetta eru atriði sem ég hef hnot-
ið um á samfélagsmiðlum og öðrum fjölmiðlum undanfarna daga. Það er
nefnilega staðreynd að stórir fjölmiðlar lepja oft upp vitleysuna af sam-
félagsmiðlum þegar einhver í fýlukasti kýs að láta ljós sitt skína. Einkum er
hætt við þessari eftiröpun á sumrin þegar óvanir blaðamenn leysa þá vönu
af á stóru miðlunum, samanber fyrirsögn á mbl.is í fyrradag þar sem sagði
orðrétt: „Keyrt á hátt í 155 kindur.“
Sú frétt sem mér finnst persónulega standa upp úr og snertir okkur Vest-
lendinga mest af tíðindum liðinnar viku er framferði fjárfesta sem fyrir
nokkrum árum keyptu hluta úr jörðinni sem liggur sunnan við Hraunfossa.
Af öllu því sem ég hef séð, heyrt og lesið um þetta mál, finnst mér enginn
vafi leika á að hér ætla eigendur þessa lands að græða mikla peninga á stutt-
um tíma. Ætla að hefja gjaldtöku á bílastæði inn á friðlýst svæði án þess að
hafa á nokkrum tímapunkti lagt krónu í uppbyggingu, vegagerð, stíga eða
annað, enda allar þessar framkvæmdir kostaðar af hinu opinbera. Reyndar
voru þessir fjárfestar kveðnir í kútinn daginn áður en gjaldtaka átti að hefj-
ast. Þeim var bent á að slíkt bryti í bága við náttúruverndarlög enda þarf
Umhverfisstofnun að heimila slíka gjaldtöku áður en af henni getur orðið.
Þessir sömu fjárfestar eiga í sameiningu fremur bágborna viðskiptasögu.
Hafa reyndar verið misjafnlega lunknir við að fela slóð sína. Flinkastur hef-
ur Lárus L Blöndal forseti íSí verið við það. Hann var við síðasta stjórnar-
kjör í íSí kosinn þar rússneskri kosningu. Guðmundur frá Núpum, við-
skiptafélagi hans, hefur að baki risastórt gjaldþrot. Keypti upp fjölda jarða
í nafni Lífsvals á árunum fyrir hrun en er þekktastur fyrir að misfara með
sjóð sem fjarskyld amerísk frænka hans fól honum að úthluta úr styrkjum til
langveikra barna í Bandaríkjunum og íslandi. Nú eru þessir pörupiltar byrj-
aðir hreina og klára skemmdaverkastarfsemi, nú á Vesturlandi.
Ég vil taka fram að ég hef ekkert á móti því að landeigendur þar sem það
á við hefji gjaldtöku inn á viðkvæm svæði, sem án fjárfestingar eða stuðn-
ings hins opinbera til framkvæmda, bæru ekki þann fjölda gesta sem um
þau fara. Til dæmis finnst mér sjálfsagt mál að eigendur Helgafells í Helga-
fellssveit rukki gesti um nokkrar krónur til að standa straum af stígagerð,
vörslu og hreinlæti. Þetta á hins vegar ekki við um þremenningana sem
eiga hluta af Hraunsásslandi í Borgarfirði. Þeir hafa nú hafnað rausnarleg-
um 22 milljóna króna styrk frá ríkinu sem búið var að úthluta til að standa
straum af gerð bílastæða við Hraunfossa. Þeir ætla augljóslega að græða
miklu meiri peninga en þá upphæð á stuttum tíma og þeim er nákvæmlega
sama þótt t.d. veitingamaður á staðnum fari á hausinn vegna framferðis
þeirra og gjörða.
Ég viðurkenni fúslega að ég er reiður vegna hátternis þessara manna. Ég
mun á þessum vettvangi sem öðrum þar sem ég fæ því við komið berjast
gegn ósvífnum peningamönnum sem blygðunarlaust ætla að vinna tjón á
kostnað heiðarlegs fólks. Þessa menn ber að stöðva og ætla ég rétt að vona
að hið opinbera sýni dug til þess og beiti þeim lögum sem tiltæk eru. Sú
umfjöllun sem þessir menn hafa nú kveikt hefur því miður skaðað orðspor
ferðþjónustunnar og framtíð hennar á Vesturlandi. Milljónfalt meira en
einhver 400 króna tepoki eða 1200 króna brauðsneið. Það er bara léttvægt
röfl í samanburði við fyrrgreinda skemmdarverkamenn.
Magnús Magnússon.
Leiðari
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins
lagðist að bryggju í Grundarfirði
síðastliðinn fimmtudag. Þar var á
ferðinni franska skipið Le Soleal
sem var smíðað árið 2012 og fór í
jómfrúarferð sína árið eftir. Skip-
ið tekur 264 farþega og er með 139
í áhöfn. Flestir farþeganna stigu
beint upp í rútur og fóru í skipu-
lagðar ferðir um Snæfellsnesið en
nokkrir spókuðu sig um í bænum
og sáu hvað Grundarfjörður hef-
ur upp á margt að bjóða. Von er á
fjölda skipa í Grundarfjörð á næstu
vikum. Þannig er til dæmis áætlað
að þrjú skip eigi viðkomu meðan
bæjarhátíðin Á góðri stund verður
haldin, síðar í þessum mánuði.
tfk
Veiði hófst í Laxá í Dölum síðast-
liðinn miðvikudag og tók fyrsti
laxinn í fyrsta kasti. Það var Ævar
Sveinsson sem kastaði flugunni á
Höskuldsstaðastreng og fiskurinn
tók með það sama. Fyrsta daginn
veiddust átta laxar og margir þeirra
tveggja ára og vel vænir fiskar. Lax
er komin um alla á. Boltafiskur
slapp af hjá einum veiðimanni eftir
að flugan festist í háfnum.
gb
Héraðsdómur Vesturlands hefur
kveðið upp dóm í máli sem Verka-
lýðsfélag Akraness höfðaði gegn
Hvali hf. fyrir hönd starfsmanns í
hvalskurði. Krafan sem dómurinn
samþykkti laut að sérstakri greiðslu
sem getið er um í ráðningarsamn-
ingi starfsmanna, en dómurinn féllst
á að Hvalur skyldi greiða umrædd-
um starfsmanni 455.056 krónur
ásamt dráttarvöxtum frá 19. janúar
2016. Hvalur hf. var einnig dæmd-
ur til að greiða 500.000 krónur í
málskostnað. Krafa stefnanda var í
fjórum liðum og var Hvalur sýkn-
aður af þremur þeirra. Ágreiningur
málsaðila laut að því að Hvalur hf.
hélt því fram að sérstök greiðsla upp
á 5.736 kr. fyrir hverja unna vakt,
vegna skerðingar á hvíldartíma og
ferða til og frá vinnustað, hafi ver-
ið inni í vaktavinnukaupi starfs-
mannsins, en dómurinn tók und-
ir kröfu VLFA um að starfsmenn
hefðu mátt skilja ráðningarsamn-
inginn þannig að þessi greiðsla væri
til viðbótar vaktakaupi.
Vilhjálmur Birgisson formaður
VLFA telur dóminn hafa fordæm-
isgefandi gildi gagnvart öllum þeim
starfsmönnum sem unnu hjá Hvali
hf. á vertíðunum 2013, 2014 og
2015 og að dómurinn geti því náð
til allt að 130 starfsmanna. „Það er
erfitt að segja nákvæmlega til um
hversu mikið fordæmisgildi þessi
dómur hefur í krónum talið, en það
má alveg áætla að hann muni kosta
Hval hf. um eða yfir 200 milljónir,“
segir Vilhjálmur Birgisson. Ekki
liggur fyrir hvort Hvalur hf. muni
áfrýja dómnum, en fyrirækið hef-
ur allt af þrjá mánuði til að ákveða
það.
mm
Rekstur Reykhólahrepps var já-
kvæður um 39,5 milljónir á síðasta
ári, en ársreikningur sveitarfélags-
ins var lagður fram til fyrri umræðu
á fundi sveitarstjórnar síðastlið-
inn föstudag. Rekstrartekjur A og B
hluta námu 533,7 milljónum króna á
síðasta ári, en þar af námu rekstrar-
tekjur A hluta 398,1 milljón. Rekstr-
arniðurstaða samstæðu A og B hluta
var því sem fyrr segir 39,5 milljónir
króna, en niðurstaða A hluta var já-
kvæð um 37,1 milljón.
Álagningarhlutfall útsvars var
14,52% sem er lögbundið hámark.
Álagningarhlutfall fasteignaskatts í
A flokki nam 0,5%, sem einnig er
lögbundið hámark, í B flokki nam
það 1,32% sem er lögbundið hlut-
fall og 1,65% í C flokki, sem er lög-
bundið hámark þess með álagi.
Heildareignir sveitarfélags-
ins námu 626 milljónum króna og
heildarskuldir 185,7 milljónum.
Eigið fé í árslok 2016 nam 440,3
milljónum króna samkvæmt efna-
hagsreikningi en eigið fé A hluta
nam 379,1 milljón.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Hvalur hf. dæmdur til greiðslu
vangoldinna launa
La Soleal en nær liggur hvalaskoðunarbáturinn Láki við flotbryggjuna.
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins í Grundarfirði
Jákvæður rekstur Reykhólahrepps
Ævar Sveinsson með fyrsta
laxinn úr Laxá í Dölum sem
tók í fyrsta kasti.
Fyrsti laxinn tók í fyrsta kasti