Skessuhorn - 05.07.2017, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 4. júLí 2017 19
Norðurálsmótið í knattspyrnu fór
fram helgina 23.-25. júní sl. og
þótti heppnast mjög vel. Mótið er
fyrir drengi á aldrinum sex til átta
ára og í ár voru um 1600 keppend-
ur, í 180 liðum frá 31 félagi. Mik-
ill fjöldi foreldra, ættingja og ann-
arra gesta heimsóttu Akranes þessa
helgi en einn gestur vakti meiri at-
hygli en aðrir. Guðni Th. jóhann-
esson forseti íslands fylgdi syni sín-
um á mótið og tók að sér vaktir sem
næturvörður á mótinu. Þótti mörg-
um það sýna hversu alþýðlegur for-
setinn er. Guðni sendi frá sér pist-
il á Facebook-síðu sinni á dögunum
þar sem hann hrósaði Skagamönn-
um fyrir Norðurálsmótið og Vest-
manneyingum fyrir Orkumótið.
„Að svona miklum viðburðum
kemur fjöldi fólks – þeir sem skipu-
leggja og undirbúa dæmið í lengri
tíma og svo allir sem sjá um að allt
gangi vel fyrir sig innan vallar sem
utan þegar ballið er byrjað. Hverju
liði fylgja svo þjálfarar og liðsstjór-
ar og vösk sveit foreldra eða ann-
arra forráðamanna. Allt þetta fólk
á miklar þakkir skildar, að ekki sé
minnst á drengina sem léku á als
oddi og nutu lífsins, glaðir yfir góð-
um leik, stundum sárir yfir úrslitum
en það stóð ekki lengi, enda gekk
leikskipulagið á báðum mótum út
á að strákarnir mættu jafningjum
sínum. Það er lofsvert. Þessi mót og
önnur af sama tagi eru meðal þess
sem gerir ísland svo gott – og nefni
ég það þótt maður hafi til öryggis
þann sjálfsagða fyrirvara að margt
má bæta í samfélaginu. En leyfum
okkur samt að njóta þess sem vel er
gert. Uppi á Skaga og úti í Eyjum
var mjög ánægjulegt að hitta hressa
krakka og spjalla við hina eldri, með-
al annars um þessi vel heppnuðu
mót, gildi íþrótta og það sem ber að
varast í þeim efnum. Þá má ekki síst
nefna mikilvægi þess að leyfa öllum
að vera með og njóta sín á eigin for-
sendum, láta fjárhag aldrei ráða úr-
slitum um það hvort börn geti ver-
ið í tómstundum, leyfa heilbrigðu
keppnisskapi að koma fram og gera
þeim sem skara fram úr kleift að
sýna listir sínar og metnað, en alls
ekki á kostnað hinna sem vilja líka
vera með þótt þeir hafi ekki náð eins
góðum tökum á íþróttinni. Svo seg-
ir það sig líka sjálft að við 8-10 ára
aldur sést alls ekki fyrir víst hverj-
ir munu slá í gegn og hverjir ekki.
íþróttahreyfingin verður að gæta
sín á því í öllu barna- og unglinga-
starfi að áhersla á afrek og árang-
ur bitni ekki á hinni fögru hugsjón
að leyfa öllum að vera með og hafa
gaman af því að leika sér í íþrótt-
um,“ segir í pistli Guðna sem end-
ar á orðunum: „Bestu þakkir, kæru
Skagamenn, Eyjamenn, strákar og
fylgdarlið hvaðanæva af landinu!
Þið megið vera stolt af ykkar hlut.
Það var gaman að fá að vera með.“
bþb
Forsetinn hrósar Skagamönnum
fyrir Norðurálsmótið
Fernir tónleikar eru á dagskrá næstu
vikuna á Hótel Eddu á Laugum í
Sælingsdal. Dalamaðurinn Tómas
R. Einarssson ríður á vaðið í dag,
miðvikudaginn 5. júlí kl. 20:30,
þegar hann heldur sína árlegu tón-
leika. Með honum í för verða eng-
ir aðrir en Ómar Guðjónsson og
Mugison. Næstkomandi laugardag,
8. júlí kl. 21:30, mun Hlynur Snær
Theodórsson, stórbóndi og trúba-
dor úr Landeyjum, leiða brekku-
söng við varðeld á Laugum. Daginn
eftir, sunnudaginn 9. júlí kl. 21:30
er komið að söngvaskáldinu þjóð-
kunna Svavari Knúti sem mun spila
og syngja af sinni alkunnu snilld.
Þriðjudaginn 11. júlí kl. 21:00 mun
söngkonan jóhanna Ósk Valsdótt-
ir flytja ásamt eiginmanni sínum,
Bjarti Loga Guðnasyni, íslensk
þjóð- og sönglög, meðal annars við
texta skálda úr Dölunum.
Þá er vert að geta þess að hægt
er að skoða listaverk Helga Þorgils
Friðjónssonar. Aðgangur að öllum
viðburðunum er ókeypis.
kgk
Fernir tónleikar á
Laugum í vikunni
Söngkonan Jóhanna Ósk Valsdóttir
mun flytja íslensk þjóð- og sönglög
ásamt eiginmanni sínum næst-
komandi þriðjudag.
Svavar Knútur mun spila og syngja af
sinni alkunnu snilld á sunnudaginn.
Leikhópurinn Lotta skemmti hátíðargestum í Garðalundi á sunnudaginn.
Hálandaleikarnir fóru fram við Byggðasafnið þar sem aflraunamenn kepptu sín á
milli.
Einn af hápunktum Írskra daga er val á Rauðhærðasta Íslendingnum 2017. Kom
það í hlut Sigurðar Heiðars Valgeirssonar frá Grundarfirði að hreppa titilinn.
Á Akratorgi var antikmarkaður þar sem ýmsa gullmola var hægt að finna.
Börn og foreldrar skemmtu sér vel á fjölskylduskemmtun á Akratorgi á laugardaginn.