Skessuhorn - 05.07.2017, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 4. júLí 2017 25
Stúdíóherbergi í Borgarnesi
Til leigu stúdíóherbergi á besta
stað í Borgarnesi. Tvö rúm, salerni,
húsgögn, borðbúnaður, internet,
Stöð 2 og sérinngangur. Laust 15.
ágúst eða síðar. Nánari upplýsingar í
síma 860-8588.
Einbýlishús til leigu í Borgarnesi
Einbýlishús til leigu í Borgarnesi frá
1. júlí og leigist í eitt ár. Leiguverð
kr. 190.000 + hiti og rafmagn.
Upplýsingar í síma 899-2458, Guðjón
og 895-1535, Margrét.
Óska eftir húsnæði til leigu
Óska eftir húsnæði til leigu í
Borgarnesi eða nágrenni frá 20. ágúst.
Helst með tveimur svefnherbergjum.
Sími: 691-6500, Ingveldur.
Hús til leigu í Hvítársíðu
Nýtt hús er til leigu í Hvítársíðu. 80
fermetrar auk um 30 fermetra lofts
sem er manngengt. Það skiptist í
tvö góð herbergi, stofu og eldhús,
baðherbergi og geymsla með
aðstöðu fyrir þvottavél. Pallur er við
húsið og allt umhverfi frágengið.
Húsið stendur við sér heimreið.
agust.jonsson@centrum.is.
Óska eftir leiguíbúð
Fimm manna fjölskylda óskar eftir
þriggja til fimm herbergja leiguíbúð
á Akranesi frá 1.október. Gyða:
gydajan@simnet.is.
Markaðstorg Vesturlands
Dalabyggð - miðvikudagur 5. júlí
Tómas R. Einarsson og félagar á
Hótel Eddu að Laugum í Sælingsdal.
Miðvikudaginn 5. júlí kl. 20:30 heldur
Tómas R. Einarsson sína árlegu tónleika
ásamt félögunum Ómari Guðjónssyni
og hinum eina sanna Mugison.
Aðgangur er ókeypis.
Borgarbyggð - miðvikudagur 5. júlí
Reynir Hauksson gítarleikari heldur
tónleikaröð á Vesturlandi í júlí.
Reynir útskrifaðist sem einleikari frá
Tónlistarskóla FÍH 2015, síðan þá hefur
hann verið iðinn við tónleikahald og
aflað sér meiri þekkingar á sviði gítarsins
erlendis. Leikin verður Flamenco og
klassísk tónlist. Hann heldur tónleika í
Reykholtskirkju miðvikudaginn 5. júlí kl.
20. Aðgangseyrir er 1.500 kr.
Stykkishólmur - fimmtudagur 6. júlí
Kokteilhátíðin Stykkishólmur Cocktail
Weekend verður haldin í annað skipti
dagana 6.-8. júlí. Þátttakendur verða
allir helstu barir og veitingastaðir
bæjarins. staðirnir sem taka þátt búa
allir til kokteil sem verður í boði á
sérstaklega góðu verði yfir helgina.
Vel valin dómnefnd mun fara á milli
staða, smakka kokteilinn, grandskoða
öll atriði og úrskurða hver þeirra sé sá
allra besti. Laugardaginn 8. júlí verður
hátíðinni slitið með skemmtun á
Fosshótel Stykkishólmi en þar verður
tilkynnt um sigurvegara helgarinnar og
hvaða staður hlýtur titilinn „Kokteilbar
Stykkishólms 2017“!
Dalabyggð - fimmtudagur 6. júlí
Réttir og fossar í Haukadal. Fimmta
kvöldganga Byggðasafns Dalamanna
verður fimmtudaginn 6. júlí 2017.
Skoðaðar verða tvær lögréttir
Haukdælinga og nálægir fossar.
Upphaf ferðarinnar er við Kirkjufellsrétt
kl. 19.
Stykkishólmur - fimmtudagur 6. júlí
Reynir Hauksson gítarleikari heldur
tónleikaröð á Vesturlandi í júlí.
Reynir útskrifaðist sem einleikari frá
Tónlistarskóla FÍH 2015, síðan þá hefur
hann verið iðinn við tónleikahald og
aflað sér meiri þekkingar á sviði gítarsins
erlendis. Leikin verður Flamenco
og klassísk tónlist. Hann heldur
tónleika í Vantasafninu í Stykkishólmi
fimmtudaginn 6. júlí kl. 20. Aðgangseyrir
er 1.500 kr.
Stykkishólmur - fimmtudagur 6. júlí
Djass & Vísnasöngur – Music with Z.
Tónlist með Z er tónlistardagskrá með
tónlist sænsku djasssöngkonunnar
Monicu Zetterlund. Tríóið er skipað
Gro Bjørnnes söngkonu sem flytur
uppáhaldslögin úr þeim aragrúa
laga sem Monica söng inn á plötur á
sínum tíma. Tónlistin er ferðalag um
stormasama ævi og frama Monicu,
sem er undir áhrifum melankólíu og
sænskrar þjóðlagahefðar en einnig gleði
söngleikjanna, kabaretta og hinnar
stóru amerísku djasssöngbók. Tríóið
leitast við að endurspegla líflega og
ljóðræna stemningu þeirra tíma sem
margir kalla gullöldina í skandinavískum
djassi. Aðrir meðlimir tríósins eru þeir
Andrés Þór gítarleikari og Andreas
Dreier bassaleikari. Tónleikarnir hefjast
kl. 20:00 í Stykkishólmskirkju. Miðaverð
1500 kr. Posi á staðnum.
Reykhólahreppur - föstudagur 7. júlí
Pub Quiz og fleira á Báta- og
hlunnindasýningunni. Pub Quiz að hætti
Jóhönnu hefst kl. 20:30 og síðan verður
karíókí fyrir þá sem vilja. Bátasúpa með
heimabökuðu brauði á tilboði kr. 800 allt
kvöldið. Tilvalið að skella sér og gera sér
dagamun! Verðum með opið til 02:00.
Aldurstakmark er 18 ár. Hlökkum til að
sjá ykkur!
Stykkishólmur - föstudagur 7. júlí
Reynir Hauksson gítarleikari heldur
tónleikaröð á Vesturlandi í júlí.
Reynir útskrifaðist sem einleikari frá
Tónlistarskóla FÍH 2015, síðan þá hefur
hann verið iðinn við tónleikahald og
aflað sér meiri þekkingar á sviði gítarsins
erlendis. Leikin verður Flamenco og
klassísk tónlist. Hann heldur tónleika á
Hvanneyri pub föstudagin 7. júlí kl. 21.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
Eyja- og Miklaholtshreppur -
laugardagur 8. júlí
Sumarmarkaður Sveitamarkaðarins
í Breiðabliki. Sumarmarkaður verður
haldinn í Breiðabliki helgina 8.-9. júlí
frá kl. 12-18. Heimaunnið handverk
og matvörur beint frá býli. Kjötvörur,
broddur, handspunnið og jurtalitað
band, prjónavörur, salat, plöntur, sultur,
brjóstsykur, lífrænn áburður úr þangi,
egg, heimabakað góðgæti og svo margt
margt fleira. Vöfflukaffið verður að
sjálfsögðu á sínum stað. Hlökkum til að
sjá ykkur.
Borgarbyggð - laugardagur 8. júlí
Hin árlega Hvanneyrarhátíð verður
haldin á Hvanneyri í Borgarfirði þann
8. júlí næstkomandi milli kl. 13:30 og
15:00. Nánari upplýsingar má finna á
facebook undir „Hvanneyrarhátíð“. Allir
hjartanlega velkomnir!
Stykkishólmur - laugardagur 8. júlí
Skotthúfan 2017 í Byggðasafni
Snæfellinga - Norska húsinu frá kl.
15:00 til 16:30. Gestum í þjóðbúningi
verður boðið í kaffi og pönnukökur.
Gott væri ef þeir sem hyggjast mæta
í þjóðbúningum myndu skrá sig hjá
Norska húsinu. Allir velkomnir.
Dalabyggð - laugardagur 8. júlí
Brekkusöngur á Laugum í Sælingsdal
kl. 21:30. Stórbóndinn og trúbadorinn
Hlynur Snær Theodórsson úr Landeyjum
leiðir brekkusöng við varðeld við Hótel
Eddu á Laugum. Aðgangur er ókeypis.
Dalabyggð - sunnudagur 9. júlí
Svavar Knútur á Laugum í Sælingsdal.
Sunnudaginn 9. júlí kl. 21:00 spilar og
skemmtir hinn þjóðkunni Svavar Knútur
af sinni alkunnu snilld. Aðgangur er
ókeypis.
Akranes - mánudagur 10. júlí
ÍA mætir Víkingi R. í Pepsi deild karla í
knattspyrnu á Akranesvelli. Leikurinn
hefst kl. 19:15.
Dalabyggð - þriðjudagur 11. júlí
Jóhanna Valsdóttir á Laugum í
Sælingsdal. Þriðjudaginn 11. júlí kl. 21:00
mun söngkonan Jóhanna Ósk Valsdóttir
ásamt eiginmanni sínum, Bjarti Loga
Guðnasyni, flytja íslensk þjóð- og
sönglög, meðal annars við texta skálda
úr Dölunum. Aðgangur er ókeypis.
Nýfæddir Vestlendingar
Á döfinni
23. júní. Stúlka. Þyngd: 4.060
gr. Lengd: 53 cm. Foreldrar:
Elísabet Guðmundsdóttir og
Egill Björgvinsson, Reykjavík.
Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir.
27. júní. Drengur. Þyngd: 4.088
gr. Lengd: 54 cm. Foreldrar: Anna
Sólrún Kolbeinsdóttir og Friðrik
Pálmi Pálmason, Borgarnesi.
Ljósmóðir. Lóa Kristinsdóttir.
LEIGUMARKAÐUR
29. júní. Drengur. Þyngd:
3.330 gr. Lengd: 50 cm.
Foreldrar: Bertha María Mæhle
Vilhjálmsdóttir og Þórður
Þorsteinn Þórðarson, Akranesi.
Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir.
3. júlí. Drengur. Þyngd: 4.532
gr. Lengd: 56 cm. Foreldrar:
Magný Þórisdóttir og Helgi
Rafn Brynjarsson, Hafnarfirði.
Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir.
4. júlí. Stúlka. Þyngd: 3.670
gr. Lengd: 54 cm. Foreldrar:
Karitas Hrafns Elvarsdóttir og
Aron Baldursson, Snæfellsbæ.
Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir.