Skessuhorn


Skessuhorn - 02.08.2017, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 02.08.2017, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 2. áGúst 20176 Meðalaldur kennara hækkar LANDIÐ: Meðalald- ur starfsfólks við kennslu í grunnskólum landsins hef- ur farið hækkandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þá um haustið var meðalaldur starfsfólks við kennslu 42,2 ár en var 46,8 ár haustið 2016. á sama tímabili hef- ur meðalaldur kvenkenn- ara hækkað meira, eða úr 41,8 árum í 46,9 ár. Með- alaldur karlkennara hefur hækkað úr 43,6 árum í 46,3 ár. Meðalaldur starfsfólks við kennslu án réttinda er töluvert lægri en réttinda- kennara og hefur verið á öllu tímabilinu. Haustið 2016 var meðalaldur kenn- ara með réttindi 47,3 ár en meðalaldur kennara án réttinda 38,8 ár. Kennurum undir þrítugu hefur fækk- að á tímabilinu en kenn- urum 50 ára og eldri hefur fjölgað úr 23,7% haustið 1998 í 41,3% haustið 2016. á sama tímabili fjölgaði kennurum 60 ára og eldri úr 5,7% í 14,2%. -kgk Reykholtshátíð að baki B O R G A R B Y G G Ð : tónlistarhátíðin Reyk- holtshátíð var haldin um liðna helgi og heppnaðist vel. á dagskrá voru fern- ir tónleikar með mörg- um af fremstu listamönn- um þjóðarinnar. Finnski strengjakvartettinn Meta4 var sérstakur gestur hátíð- arinnar. á opnunartónleik- um hátíðarinnar á föstu- dag voru flutt verk eftir Johann sebastian Bach og Arvo Pärt. strengjakvar- tettinn Meta4 var í aðal- hlutverki kammertónleik- unum á laugardag. Flutti kvartettinn m.a. Beet- hoven-strengjakvartett úr op. 18 sem og nýlegt verk eftir innska tónskáld- ið Juha Koskinen. á ein- söngstónleikunum voru það Dísella Lárusdótt- ir sópran og píanóleikar- inn Nína Margrét Gríms- dóttir sem fluttu evrópsk verk frá seinni hluta 19. aldar. á lokatónleikunum bættist Berglind stefáns- dóttir flautuleikari í hóp- inn og fluttur var flau- tukvartett eftir Mozart, auk sjaldheyrðs verks eft- ir belgíska sellósnilling- inn og tónskáldið Adrien Francois servais. Hátíð- inni lauk svo með flutn- ingi eins dáðasta kammer- verks allra tíma; trengja- oktett í Es-dúr op. 20 eftir Mendelssohn. -kgk Í sumar hafa verið miklar fram- kvæmdir í snæfellsbæ að sögn Kristins Jónssonar bæjarstjóra. Meðal annars er Landsnet að leggja streng milli Grundarfjarð- ar og Ólafsvíkur og leggja í leið- inni ljósleiðara í Fróðarhreppi. Einnig er verið að leggja ljósleið- ara á sunnanverðu Nesinu, auk þess sem Rarik er að leggja jarð- streng frá Gröf að Hellnum, og einnig ljósleiðara á þeim kafla, þannig að það verður lagður ljós- leiðari frá stekkjarvöllum að Mal- arrifi. segir Kristinn og bætir við að malbiksframkvæmdir séu þegar hafnar. Malbikuð verða bílastæði og nokkrar götur. síðan verður göngustígurinn milli Ólafsvíkur og Rifs malbikaður í samstarfi við Vegagerðina og svo mun bæjar- félagið síðan sjá um malbiksfram- kvæmdir á göngustígnum á milli Rifs og Hellissands. Kristinn segir að unnið sé að stækkun á tjaldstæðinu á Hellis- sandi og einnig séu miklar fram- kvæmdir á höfninni í Rifi, auk þess sem miklar framkvæmdir séu hjá einkaaðilum. svo í haust er fyrirhugað að leggja gervigras á Ólafsvíkurvöll og munu þær kosta í kring um 150 miljónir. segir Kristinn að lokum að nú sé verið að auka þjónustuna á tjaldstæðinu á Hellissandi og í Ólafsvík. Verð- ur þar sett upp þráðlaus netteng- ing, gestum að kostnaðarlausu. af Miklar framkvæmdir í Snæfellsbæ Starfsmenn Kraftfags vinna við að malbika bílastæði við Leikskólann á Hellssandi. Kraftfag frá Akureyri sér um malbiks framkvæmdir í Snæfellsbæ

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.