Skessuhorn


Skessuhorn - 02.08.2017, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 02.08.2017, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 2. áGúst 2017 7 ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA BLIKKSMIÐJA Loftræstingar – Reykrör Klæðningar – Nýsmíði Viðhald – Efnissala JÁRNSMIÐJA Gjafagrindur – Nýsmíði Viðhald – Þjónusta Hesthúsinnréttingar RAFMAGNS- VERKSTÆÐI Nýlagnir – Viðhald Viðgerðaþjónusta Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is SK ES SU H O R N 2 01 7 Skipulagsauglýsingar Byggðarráð í umboði sveitarstjórnar Borgarbyggðar hefur á 420. fundi þann 6. júlí 2017, samþykkt að auglýsa eftirfarandi skipulag: Ánabakki 13 - nýtt deiliskipulag Tillagan felur meðal annars í sér nýtt deiliskipulag fyrir íbúðarhús og skemmu/hesthús. Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinar- gerð dagsett í apríl 2015. Málsmeðferð verði í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 Skipulagstillagan liggur frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi frá 2. ágúst til 15. september 2017 og verður einnig aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is Hverjum þeim aðila sem hagsmuna eiga að gæta er gefin kostur á að gera athugasemd við tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar og berast í síðasta lagi 15. september 2017 í Ráðhús Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eða á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is Húllum-hæ lokahátíð 16. ágúst kl. 14 Ævar vísindamaður kemur í heimsókn, happadrætti og léttar veitingar Verið velkomin! Sumarlestur 2017 – fyrir börn á aldrinum 6-12 ára Krakkar, munið að skila lesblöðunum ykkar, í síðasta lagi 11. ágúst nk. Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Laugardaginn 22. júlí síðastlið- inn var opnuð upplýsingamiðstöð um snæfellsnes í félagsheimilinu á Breiðabliki á sunnanverðu snæ- fellsnesi. „Að opna upplýsinga- miðstöð við þennan aðal inngang inn á snæfellsnes er gömul hug- mynd. Það eru þrjár leiðir inn á snæfellsnes og flestir okkar gesta koma þessa leið,“ segir Ragnhild- ur sigurðardóttir, framkvæmda- stjóri svæðisgarðsins í samtali við skessuhorn. Hún bætir því við að yfir 500 gestir hafi heimsótt upp- lýsingamiðstöðina frá því hún var opnuð á laugardaginn var. Verkefnið nýtur stuðnings ferðamálaráðherra og fékk styrk úr framkvæmdasjóði ferðamanna- staða. Um er að ræða tilrauna- verkefni til tveggja mánaða. „Opn- un upplýsingamiðstöðvar núna er undirbúningsverkefni fyrir ann- að og stærra verkefni, sem er að hér verði í framtíðinni gestastofa snæfellsness,“ segir Ragnhildur. „Með þessu erum við sannarlega að veita upplýsingar, um þjón- ustu, náttúru og menningu á snæ- fellsnesi, en líka að safna gögnum, telja gesti sem koma inn á svæðið og athuga hvað þeir vilja vita og á hvaða tímum þeir koma. sam- hliða veitum við þeim þeim upp- lýsingar um þá fjölmörgu staði hér á snæfellsnesi sem geta með góðu móti tekið á móti gestum. Mikið er spurt um gönguleiðir og fossa og þá bendum við til dæmis á Bjarna- foss, svöðufoss og friðlöndin okk- ar; Búðahraun og ströndina milli Arnarstapa og Hellna, þjóðgarð- inn snæfellsjökul, súgandisey og fleiri náttúruperlur sem búið er að gera aðgengilegar með því að leggja bílastæði, gera göngustíga og fleira,“ segir hún. „á svæðinu eru fjölmargir aðilar sem sinna margs konar þjónustu við ferða- menn. Okkar hlutverk er að kynna þessa aðila, hvetja fólk til að dvelja á snæfellsnesi og bjóða gesti hjart- anlega velkomna til okkar,“ bætir hún við. „Næstu tvo mánuði verð- ur opið frá kl. 9 - 17 alla daga og kynning er í gangi um Gestastofu snæfellsness. Vonandi verðum við búin að fjármagna gestastofuna til fulls fyrir lok ágúst og þá mun- um við halda ótrauð áfram,“ segir Ragnhildur. Góð samskipti við aðrar greinar Bakhjarlar svæðisgarðins eru sveit- arfélög á snæfellsnesi ásamt fyrirtækj- um og félagasamtökum á svæðinu. Þar á meðal eru þrjú búnaðarfélög og snæfell, félag smábátasjómanna á snæfellsnesi. „Einhverjir kunna að spyrja sig hvort ferðamennska komi bændum eða sjómönnum eitthvað við. svarið er já, því það skiptir bænd- ur og sjómenn máli að hafa góða inn- viði og að samskipti við aðrar atvinnu- greinar séu góð. Eins vilja þeir auðvi- tað fá vel greitt fyrir sínar afurðir og innanlandsmarkaðurinn skiptir máli. Ekki síst fyrir lífsgæði íbúa. Bændur vilja að húsdýrin fái að vera óáreitt og sjómenn vilja að ferðamenn haldi sig á til þess gerðum útsýnisstöðum við bryggjur á meðan aflanum er land- að. Við viljum taka saman höndum og tryggja um leið gæði og öryggi ferðamanna eins og kostur er á,“ seg- ir Ragnhildur. „Unnið er að uppsetn- ingu á öryggismiðstöð með Lands- björg/ safe travel. Ferðamálasamtök snæfellsness eru öflugt samstarfsnet og taka virkan þátt í svæðisgarðinum auk starfsmannafélags. Við vinnum á jákvæðum nótum, segjum fólki hvað má og hvar það má vera,“ bætir hún við. „Þá hefur gjaldtaka í ferða- þjónstu verið töluvert í umræðunni. Við erum þeirrar skoðunar að eðli- legt sé að taka gjald fyrir veitta þjón- ustu. stýrum gestum um svæðið á ábyrgan hátt,“ segir Ragnhildur. Mikilvæg heilsárs atvinnugrein Opið verður í upplýsingamiðstöð- inni a.m.k. næstu tvo mánuði frá 9:00 til 17:00. Ragnhildur hvetur heima- menn, ekki síður en ferðalanga, til að líta við á Breiðabliki. „Heimamenn, ferðaskipuleggjendur og hreinlega allir eru hjartanlega velkomnir og við hvetjum fólk til að kíkja við. Við erum að safna upplýsingum, viljum heyra viðbrögð við þeim hugmyndum sem unnið er eftir og hvernig við getum nýtt húsið og útiaðstöðuna sem allra best,“ segir Ragnhildur. „Hér verð- ur innan tíðar settur upp lítill mark- aður með vörum, bæði mat og hand- verki af snæfellsnesi. Þá erum við að ganga frá kynningarefni þessa dag- ana, setja upp skilti og myndir,“ segir hún. „Þannig að verkefnið er í mót- un. Okkur er full alvara með því að styðja við bakið á ferðaþjónustunni, sem er mikilvæg heilsárs atvinnu- grein hér á snæfellsnesi,“ segir Ragn- hildur að endingu. kgk Upplýsingamiðstöð opnuð á Breiðabliki

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.