Skessuhorn


Skessuhorn - 02.08.2017, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 02.08.2017, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 2. áGúst 2017 23 Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Davíð Þór sigurðsson, formað- ur íþróttafélagsins Hattar á Egils- stöðum, dró fána UMFÍ að húni á mánudaginn á einni af fánaborgun- um sem búið er að koma fyrir á Eg- ilsstöðum. Unglingalandsmót UMFÍ fer sem kunnugt er fram þar í bæ um verslunarmannahelgina. Búist er við um og yfir 1.000 keppendum á aldrinum 11-18 ára auk foreldra þeirra, forráðamanna og annarra gesta. Gert er ráð fyrir allt að tíu þúsund gestum frá landinu öllu á meðan mótið stendur yfir dagana 4.- 6. ágúst. Nokkur röskun verð- ur á daglegu lífi bæjarbúa á meðan Unglingalandsmóti UMFÍ stend- ur um verslunarmannahelgina. Nokkrum götum verður lokað í bænum og nágrenni hans og munu strætisvagnar aka fólki til að draga úr bílaumferð í bænum. Veðurstofa Íslands spáir úrvals keppnisveðri á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina, þurrki og logni. Undirbúningur fyrir mótið er í fullum gangi, búið er að gera stíga fyrir keppni í fjallahjólreiðum og verið að marka tjaldstæðin fyr- ir keppendur og fjölskyldur þeirra sem sumar hverjar koma langt að. Mikið er í boði fyrir alla fjölskyld- una á Unglingalandsmóti UMFÍ, t.d. námskeið í leikjum, fimleikum, frisbí og margt fleira. á kvöldin verða tónleikar með flottasta tón- listarfólki þjóðarinnar. kgk Fáni UMFÍ dreginn að húni á Egilsstöðum skagamönnum hefur gengið afleit- lega það sem af er tímabili í Pepsi- deild karla í knattspyrnu. á mánu- daginn mættu þeir toppliði Vals í þrettándu umferð deildarinnar. Fyr- ir leikinn bjuggust fáir við öðru en öruggum sigri Valsmanna og reynd- ist það vera raunin. skagamenn töp- uðu leiknum 6-0 og setti liðið þar með met þar sem ÍA hafði fram að þessum leik aldrei í sögu félagsins tapað deildarleik með fleiri en fimm mörkum. skagamenn voru fyrir leikinn í neðsta sæti með níu stig og eru þar enn eftir leikinn en fjögur stig eru upp úr fallsæti eins og stað- an er nú. skagamenn lágu lágt á vellinum í fyrri hálfleik og voru þéttir til baka. Þeir gáfu Valsmönnum fá færi á sér en þrátt fyrir það náðu Valsmenn að skora tvö mörk undir lok fyrri hálf- leiks. Fyrra markið var skorað á 44. mínútu eftir sendingu sigurðar Eg- ils Lárussonar af vinstri kanti á koll- inn á Patrick Pedersen sem skallaði boltann beint í fangið á Ingvari Þór Kale af stuttu færi en Ingvar missti boltann inn í markið. Mínútu síð- ar skoruðu Valsmenn svo keimlíkt mark þar sem Bjarni Ólafur Eiríks- son gaf boltann fyrir af vinstri kant- inn þar sem Guðjón Pétur Lýðs- son stýrði knettinum inn fyrir lín- una. staðan 2-0 þegar flautað var til hálfleiks og róðurinn þungur fyrir skagamenn. Það var andlaust skagalið sem mætti til leiks í síðari hálfleik og fljót- lega fór leikurinn að snúast um það hve mörg mörk Valur gæti skorað. Eiður Aron sigurbjörnsson bætti við þriðja marki Vals á 63. mínútu með skalla eftir hornspyrnu. tíu mínút- um síðar bætti Orri sigurður Óm- arsson við fjórða markinu; Orri fékk að boltann nokkuð langt frá vítateig skagamanna, hann fékk að athafna sig eins og honum hentaði án þess að nokkur skagamaður setti pressu á hann. Orri ákvað að skjóta af 25 metra færi og skoraði stórglæsilegt mark. Ekki þurftu áhorfendur að bíða lengi eftir næsta marki en fjór- um mínútum síðar fékk sigurður Egill boltann eftir frábæra sendingu frá Guðjóni Pétri, tók vel á móti boltanum og klobbaði Ingvar Þór í marki skagamanna. Valur bætti svo við sjötta markinu undir lok leiks- ins þegar Kristinn Ingi Halldórsson skoraði eftir sendingu Dions Acoff. sóknarmaðurinn Kristinn Ingi hafði fyrir leikinn spilaði í öllum leikjum Vals í sumar án þess að skora. Eftir leikinn er útlitið nokkuð dökkt fyrir skagamenn sem hafa nú ekki unnið leik síðan um miðjan júní. Næsti leikur skagamanna er á heimavelli gegn KR þriðjudaginn 8. ágúst. bþb Stærsta tap ÍA í deildarleik í sögu félagsins Úr leik ÍA fyrr í sumar. Ljósm. gbh. Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnu- kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, verður ekki meðal keppenda á Opna breska meistaramótinu í golfi sem hefst í skotlandi á fimmtudaginn. Hún keppti á úrtökumóti fyrir risa- mótið á mánudag og lauk leik á 74 höggum, eða tveimur höggum yfir pari. Dugði það ekki til að komast inn á mótið. Alls tóku 112 kylfingar þátt í mótinu en aðeins 20 efstu öðl- ast þátttökurétt á Opna breska. kgk Valdís Þóra komst ekki inn á Opna breska Körfuknattleiksdeild skallagríms samdi á mánudag við Heiðrúnu Hörpu Ríkharðsdóttur um að leika með liðinu í Domino‘s deild kvenna á komandi vetri. Leikmannahóp- ur liðsins er því farinn að taka á sig lokamynd, að því er fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu kkd. skallagríms. Heiðrúnu Hörpu þarf ekki að kynna fyrir stuðningsmönnum skallagríms. Hún er 25 ára gömul, leikur stöðu bakvarðar og er upp- alin hjá félaginu. Hún lék síðast með skallagrími í 1. deild kvenna árið 2011 en hefur síðan leikið með Fjölni og stjörnunni. Hún lék ekki síðasta vetur vegna barneigna en veturinn 2015-2016 var hún lykil- maður Fjölnisliðsins og efst í öll- um tölfræðiþáttum. „Við bjóðum Heiðrúnu velkomna heim í skalla- grím,“ segir í tilkynningu félagsins. kgk ÍA hefur náð samkomulagi við Vikt- or Örn Margeirsson um að leika með liðinu út sumarið 2017 á láns- samningi frá Breiðabliki. Viktor er fæddur árið 1994 og leikur stöðu miðvarðar. Hann lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með Augnabliki sumarið 2013 og sum- arið eftir lék hann 19 leiki með HK í 1. deildinni. Hann gekk síðan til liðs við Breiðablik á nýjan leik og hefur verið þar undangengin þrjú tímabil. „Knattspyrnufélag ÍA býð- ur Viktor Örn velkominn til félags- ins og væntir mikils af honum það sem er eftir af tímabilinu,“ segir í tilkynningu frá KFÍA. kgk Ungur miðvörður til ÍA Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir og Ragnheiður Guðmundsdóttir handsala samninginn. Ljósm. Skallagrímur. Heiðrún Harpa snýr heim í Borgarnes

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.