Skessuhorn - 02.08.2017, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 2. áGúst 201710
síðastliðinn sunnudag kom í fyrsta
sinn skemmtiferðaskip til hafn-
ar á Akranesi. Le Boreal hét skip-
ið sem kom snemma morguns og
lá við bryggju fram á kvöld. skip-
ið var smíðað árið 2010 og er tæp-
lega ellefu þúsund brúttótonn.
Það er 142 m á lengd, breidd er
18 m og djúpristan er 4,8 m. Far-
þegar skipsins voru um 250 talsins
og fóru þeir nær allir beint upp í
rútu og í jöklaferð. áhöfnin, 139
manns, gekk um bæinn á meðan
beðið var eftir farþegum. Aðbún-
aður farþega í Le Boreal er býsna
góður en í skipinu má finna; versl-
un, samkomusal þar sem fara fram
tónleikar og aðrar uppákomur dag
hvern, tvo veitingastaði, bar, sund-
laug, bókasafn, líkamsrækt, sána
og fleira.
Etienne Garcia, skipstjóri Le
Boreal, tók vel á móti bæjarstjórn
og aðilum frá Faxaflóahöfnum um
morguninn. sagðist hann vona að
þessi ferð yrði ekki sú síðasta sem
hann færi til Akraness. Hann hafði
siglt til Íslands í fjöldamörg ár og
kynni vel við land og þjóð.
áður en skipið kom til Akra-
ness greindi fréttastofa stöðvar 2
frá því að Garcia hafi farið á svig
við lög hérlendis. Hann hafði dag-
inn áður hleypt um 200 farþegum
Le Boreal í land á friðlýstu svæði á
Hornströndum án leyfis auk þess
sem skipið og farþegarnir hafi ekki
verið tollskoðaðir. Ekki liggur fyr-
ir hvernig málið verður afgreitt.
bþb
Fyrsta skemmtiferðaskipið til Akraness
Le Boreal tekur um 250 farþega og áhöfnin telur 139 manns.
Etienne Garcia skipstjóri og Erna Kristjánsdóttir, markaðs- og gæðastjóri Faxa-
flóahafna, skiptust á minnismerkjum. Við hlið Garcia er Sævar Freyr Þráinsson
bæjarstjóri Akraness og fyrir aftan Ernu stendur Ólafur Adolfsson, bæjarfulltrúi á
Akranesi.
Annar af tveimur veitingastöðum skipsins en um borð starfa 20
kokkar.
Samkomusalur þar sem er skemmtun nær alla daga. Tónleikar,
leikrit og annað í þeim dúr.
Þó veður hafi verið ágætt gátu farþegar lítið sólað sig við
sundlaugarbakkann á Le Boreal. Franski fáninn blaktir við hún en
skipið og flestir áhafnameðlimir eru franskir.
Í grein sem birtist í hinu virta
tímariti New York times síð-
astliðinn föstudag er kastljós-
inu beint að Húsafelli sem næsta
stóra áfangastað ferðamanna hér
á landi. Greinarhöfundur rekur
hina miklu fjölgun ferðamanna
hingað til lands á undanförnum
árum. Hann segir áhrif uppsveifl-
unnar að sjá alls staðar um land-
ið. Flestir þekktustu áfangastað-
irnir séu orðnir svo umsetnir að
nauðsynlegt sé að ferðamenn beini
sjónum sínum að nýjum stöðum,
þangað sem Íslendingar fari sjálf-
ir; nefnilega „villta vestrið“ eins og
hann kallar Vesturlandið. Þar sé
margt spennandi og áhugavert að
sjá og þá sérstaklega Húsafell. „Ef
Húsafell væri ekki til þá þyrfti að
finna það upp,“ segir greinarhöf-
undur. Hann fer fögrum orðum
um Húsafell, hótelið og það sem
hægt er að skoða í næsta nágrenni.
Nefnir hann sérstaklega Hraun-
fossa og Barnafoss, hellinn Víð-
gelmi og Deildartunguhver, nýjar
gönguleiðir um nágrenni Húsafells
og ísgöngin í Langjökli, sem hann
segir stærsta aðdráttarafl svæðisins
um þessar mundir.
kgk/ Ljósm. úr safni.
New York Times beinir
kastljósinu að Húsafelli
„Það er búið að vera erfitt hjá okk-
ur þennan túr. Þær tegundir, sem
við höfum aðallega verið að elt-
ast við, hafa annað hvort vart látið
sjá sig eða veiðin hefur verið frem-
ur treg. Við eigum að vera í landi á
mánudag og þetta verður því stutt
veiðiferð hjá okkur, 23 dagar,“ seg-
ir Haraldur árnason, skipstjóri á
frystitogaranum Höfrungi III AK,
í frétt á vef HB Granda á sunnu-
dag. Höfrungur III hóf veiðiferðina
með því að fara á grálúðumiðin út
af Austfjörðum. Hann segir aflann
ekki hafa verið í samræmi við vænt-
ingar. „Þarna hafði nokkur fjöldi
netabáta verið á grálúðuveiðum og
það er eins og að þetta tvennt, tog-
og netaveiðar, fari ekki saman. Afl-
inn út af Héraðsflóadjúpinu og í
seyðisfjarðardjúpi var a.m.k. ekki
mikill,“ segir Haraldur.
Hann upplýsir að stefnan hafi í
framhaldinu verið sett beint á Vest-
fjarðamið. „Það var ekki til neins að
reyna grálúðuveiðar út af Víkuráln-
um því hinir stóru og öflugu togar-
ar, sem draga tvö troll í einu, höfðu
ekki erindi sem erfiði. Það er eins
og að grálúðan hafi látið sig hverfa
og hið sama má segja um ufsann
sem við höfum varla orðið varir við
í þessari veiðiferð,“ segir skipstjór-
inn. Ýsuveiðarnar segir hann sömu-
leiðis ekki hafa gengið vel. „Það var
mjög góð ýsuveiði á Látragrunni
fyrir um hálfum mánuði síðan en
síðan ekki söguna meir. Við náðum
í skottið á ágætri djúpkarfaveiði á
Hampiðjutorginu en svo þurrkað-
ist hún upp. Hins vegar er mikið
magn af gullkarfa á ferðinni aust-
ur allan kantinn á Vestfjarðamiðum
og það hefur sömuleiðis verið mjög
góð þorskveiði hjá norðlensku tog-
urunum í Reykjafjarðarálnum og
á sporðagrunni,“ segir Haraldur
árnason. kgk
Nóg af þorksi og gullkarfa
- aðrar tegundir sjást varla
Höfrungur III AK. Ljósm. HB Grandi.