Skessuhorn - 02.08.2017, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 2. áGúst 2017 17
strákarnir hjá Fiskmarkaði snæ-
fellsbæjar slá ekki slöku við þótt
rólegt sé við löndun á afla þar sem
flestir bátar eru komnir í sumarfrí
og strandveiðibátar eru stopp fram
til 1. ágúst. Þá er gott að nýta tím-
ann og góða veðrið til að mála hús-
næði fiskmarkaðarins og laga það
sem laga þarf.
af
Málað í góða veðrinu
„Já ég er að veiða hérna á svæði tvö
í Norðurá og það eru víða fiskar,
en það vantar nýja laxa, þessir eru
ekki mikið í tökustuði,“ sagði Jón
Ingi sveinsson. Hann var að gæda
fimm Belga á svæði tvö í Norðurá
í Borgarfirði, en áin er komin yfir
1100 laxa.
„Það þarf að rigna líka, áin er
orðið vatnslítil en það er mikið
af fiski á mörgum stöðum, en fis-
kurinn er tregur. Fengum einn í
dag og misstum fjóra, laxinn tekur
grannt. Það getur orðið fjör þe-
gar fer að rigna,“ sagði Jón og hélt
áfram að segja Belgunum til. Lax-
inn gat alltaf tekið.
gb
Norðurá komin yfir
ellefu hundruð laxa
Í Norðurá í Borgarfirði. Ljósm. Jón.
Laugardaginn 29. júlí var hald-
inn vináttulandsleikur A-lands-
liðs karla í körfubolta í íþrótta-
húsinu við Vesturgötu á Akranesi
þar sem Ísland tók á móti Belgíu.
Þetta var í fimmta sinn sem spil-
aður var landsleikur á Vestur-
götu. Leikurinn var sá síðasti sem
liðið lék hér á landi áður en það
keppir á Evrópumótinu í Finn-
landi en mótið hefst í lok ágúst.
Leikurinn um helgina var vel
sóttur og áætlað er að um 650
manns hafi verið á pöllunum
að styðja liðið. Ísland var betri
aðilinn allan leikinn og komst
snemma í forystu sem liðið hélt
svo allan leikinn. Liðið spilaði í
heild sinni vel en frammistaða
Hauks Helga Pálssonar stóðu
upp úr. Haukur skoraði 23 stig,
varði þrjú skot, tók eitt frákast,
stal einum bolta og gaf eina stoð-
sendingu en hann klikkaði aðeins
á tveimur skotum í öllum leikn-
um.
Hannes s. Jónsson, formað-
ur Körfuknattleikssambands Ís-
lands, segir að leikurinn og um-
gjörðin hafi verið til fyrirmyndar.
„Metnaður ÍA og Akraneskaup-
staðar var mikill og það er ánægja
innan KKÍ hvernig staðið var að
málum. skagamenn fá líka hrós
fyrir góða mætingu, sérstaklega í
ljósi þess að leikurinn fór fram í
júlí í einu besta veðri sumarsins.
skagamenn geta gengið mjög
stoltir frá þessum leik og fá rúm-
lega tíu fyrir hann. Það skemmdi
líka ekki fyrir hvað Ísland spilaði
góðan leik,“ segir Hannes.
Ekki er hægt að spila keppnis-
leiki, hvort sem það er A-landslið
eða yngri landslið, annars staðar
en í Laugardalshöllinni svo ekki
er hægt að búast við stórum leikj-
um á Akranesi í framtíðinni. „Við
höfum verið dugleg að fara með
vináttuleiki út á land vegna þess
að ekki er hægt að spila keppnis-
leiki þar. Eftir helgina kemur vel
til greina að spila fleiri vináttu-
landsleiki á Akranesi. Íþrótta-
húsið á Vesturgötu er frábært
íþróttahús og hentar vel undir
slíka viðburði,“ segir Hannes.
bþb
Ísland sigraði leik gegn
Belgum á Akranesi
„Umgjörðin til fyrirmyndar,“ segir formaður KKÍ
Hér eru heiðursgestir leiksins á laugardaginn, þau Hanna Þóra Guðbrands-
dóttir sópran, Sigríður Indriðadóttir, forseti bæjarstjórnar og Helga Sjöfn
Jóhannesdóttir, formaður ÍA auk Guðbjargar Norðfjörð varaformanns KKÍ og
Hannesar S. Jónssonar formanns KKÍ. Ljósm. kkí
Sigtryggur Arnar Björnsson, fyrrum
leikmaður Skallagríms, lék sinn fyrsta
landsleik um helgina. Ljósm. jo
Leikurinn var vel sóttur af Skagamönnum. Ljósm. jo
Hanna Þór Guðbrandsdóttir sópran söng þjóðsöng Íslendinga fyrir leik. Ljósm. jo
Kristófer Acox og Pavel Ermolinskij æfðu báðir á sínum yngri árum körfubolta
með ÍA og voru fyrir leik heiðraðir. Ljósm. jo
Sumarlesari vikunnar
Hvað heitir þú og hvað ertu
gömul?
Ég heiti Erna Guðrún Jónsdóttir
og er 7 ára gömul.
Í hvaða skóla ertu?
Ég er í Grundaskóla og er að fara
í 2. bekk.
Hvaða bók varstu að lesa?
Ég var að lesa Fjóla á ferð í rign-
ingu eftir höfundinn Julie Aigner
Clark.
Hvernig var hún?
Mér fannst hún vera skemmti-
leg, hún snýst um eina mús sem
heitir Fjóla sem er að leita að risa
stórum polli.
Hvernig bækur finnst þér
skemmtilegastar?
Mér finnst Prinsessu bækur vera
skemmtilegastar.
Áttu þér uppáhalds bók eða
uppáhalds rithöfund?
Uppáhalds bókin mín er Anna og
leyndarmálið eftir Þorstein frá
Hamri, bókin fjallar um stelpu
sem heitir Anna, hún treystir
kennaranum sínum fyrir leyndar-
máli um að mamma hennar ætl-
ar að eignast barn um jólin. Önnu
hlakkar til en veit ekki hvort það
verði stelpa eða strákur.
Af hverju tekur þú þátt í sum-
arlestrinum?
Ég tek þátt í sumarlestrinum
vegna þess að mér finnst gaman
að lesa.
Kemurðu oft á bókasafnið og
hvað gerir þú á bókasafninu?
Ég kem á þriggja vikna fresti til
þess að fá bækur lánaðar.