Skessuhorn - 30.08.2017, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 35. tbl. 20. árg. 30. ágúst 2017 - kr. 750 í lausasölu
Loratadin
LYFIS
- fæst án lyfseðils
Yfir ��� tilboð
Allir viðskiptavinir Arion banka
eru í Einkaklúbbnum
Náðu í appið og nýttu þér tilboðin
Til alþingismanna
Tökum upp
US Dollar
Pétur Geirsson
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Haustplöntur
komnar
Opnunartími
Mánudaga – föstudaga
kl. 12-18
Laugardaga
kl. 11-15
Skagabraut 17, Akranes
Félagar úr 1959 árganginum á Akra-
nesi gerðu sér glaðan dag síðastlið-
inn laugardag. Þeir hittust á Garða-
velli eftir hádegi, skiptu sér í holl og
spiluðu golf, en það er árviss viðburður
þessa hóps. Fleira gerir hópurinn sér
til skemmtunar og til að slíkt sé mögu-
legt greiða skólafélagarnir í sjóð til að
standa straum af kostnaði við viðburði
ársins. Að þessu sinni varð afgangur í
sjóðnum og því var ákveðið að verja
honum til góðs málefnis. Skemmti-
nefndin lét smíða bekk sem færður var
Golfklúbbnum Leyni að gjöf.
Bekkurinn er gefinn til minningar
um látna skólafélaga, sem eru orðnir
allt of margir, eins og haft var á orði
við afhendinguna. Guðmundur Sig-
valdason, formaður GL, veitti bekkn-
um viðtöku og þakkaði 1959 árgangn-
um kærlega fyrir höfðinglega gjöf.
Verður bekknum fundinn staður við
nýja félagsaðstöðu golfklúbbsins þeg-
ar hún verður risin. kgk
Færðu Leyni
útibekk að gjöf
Laxveiðinni í sumar hefur verið
misskipt milli landshluta. Almennt
eru árnar á Norðurlandi og Vest-
fjörðum að gefa lakari veiði en í
fyrra, en þó með undantekning-
um. Einkum eru þurrkar og vatns-
leysi orsökin. Vestlensku árnar eru
að skila mjög misjöfnum árangri,
en í flestum tilfellum stefnir í betri
veiði en síðasta sumar. Þannig
eru dæmi um nokkrar ár sem eru
nú þegar búnar að skila betri lax-
veiði en allt síðasta sumar, miðað
við veiðitölur sem Landssamband
veiðifélaga tók saman 23. ágúst
síðastliðinn.
Átta ár í landinu höfðu síðastlið-
inn miðvikudag skilað yfir þúsund
löxum í sumar. Á toppnum trón-
ir Ytri-Rangá með ríflega 4200
laxa og Miðfjarðará var komin í
2668 laxa. Þverá og Kjarará voru í
þriðja sæti með 1777 laxa og nálg-
ast heildarveiðina í fyrra þegar
1902 laxar komu á land. Norðurá
er í sjötta sæti með 1355 laxa og
er veiðin í sumar nú þegar orðin
meiri en hún var allt síðasta sumar.
Langá er í sjöunda sæti með 1237
laxa og Haffjarðará í áttunda sæti
með 1033. Nokkrar fleiri ár á Vest-
urlandi hafa náð betri en heildar-
veiðinni í fyrra, en það eru Grímsá
og Tunguá, Straumarnir í Hvítá
og Norðlingafljótið. Búist er við
að sú verði einnig raunin í Búðar-
dalsá, Flókadalsá, Laxá í Leirár-
sveit, Langá auk Þverár og Kjarar-
ár. Undir væntingum í sumar eru
meðal annarra Hítará en ekki síst
Laxá og Haukadalsá í Dölum, þar
sem veiðin nú er um þriðjungur
þess sem hún var allt síðasta sum-
ar. mm
Félagar í 1959 árganginum af Akranesi.
Bekkurinn er gefinn til minningar um
látna skólafélaga.
Laxveiðin betri á Vesturlandi
en í öðrum landshlutum
Thelma Skúladóttir Mogensen er hér með fallegan og nýrunninn lax úr Brennunni
í Hvítá sem hún veiddi fyrr í sumar. Ljósm. Aðalsteinn Pétursson.