Skessuhorn


Skessuhorn - 30.08.2017, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 30.08.2017, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGúST 201714 Hjalti Þórhallsson frá Laugalandi í Borgarfirði keypti sig fyrr á þessu ári inn í rekstur garðyrkjustöðvarinnar sem þar er starfrækt. Varð hann þar með fjórði ættliður garðyrkjubænda á Laugalandi. „Garðyrkjustöðin var stofnuð árið 1942 af langafa mín- um, Helga Bjarnasyni og bróður hans Ólafi Þorgeiri Bjarnasyni. Þeir höfðu fest kaup á jörðinni Stafholts- veggjum og skipt henni upp. Langafi rak stöðina meðfram vörubílaútgerð og hafði alltaf sérfræðinga í vinnu hjá sér sem sinntu daglegum rekstri við garðyrkjuna. Síðan tók afi minn, Bjarni Helgason, við rekstrinum ´66 eða ´68 eftir að hafa lært garðyrkju í Danmörku,“ segir Hjalti. Bjarni rak gróðarstöðina á Laugalandi ásamt konu sinni Leu Kristínu Þórhalls- dóttur til ársins 1986 þegar sonur þeirra, Þórhallur Bjarnason og Erla Gunnlaugsdóttir, foreldrar Hjalta, keyptu sig inn í reksturinn. „Þau keyptu hlutinn sem langafi átti en keyptu síðan ömmu og afa út í kring- um aldamótin. Það var síðan núna á þessu ári að ég keypti mig inn í rekst- urinn,“ segir Hjalti og varð hann þar með fjórði ættliður garðyrkjubænda á Laugalandi í Borgarfirði. Hann er búsettur á Laugalandi ásamt kærustu sinni, Lilju Ósk Al- exandersdóttur. Merkilegt nokk þá var Ólafur Þorgeir, annar stofnenda garðyrkjustöðvarinnar, langafi Lilju. Hún nemur viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst og starfar sem skólaliði í grunnskóladeild GBF á Varmalandi í hlutastarfi. Börn Hjalta og Lilju eru tvö; Alexander Þór, fjögurra ára og Jóhanna Lea, tveggja ára. Líkar vel í garðyrkjunni Aðspurður kveðst Hjalti ekki hafa stefnt sérstaklega á að leggja garð- yrkjuna fyrir sig. „Ég get ekki sagt að þetta hafi verið stefnan. Ég byrj- aði að læra bifvélavirkjun á sínum tíma og vann sem slíkur. En ég leit- aði alltaf hingað heim, vann hér öll sumur á meðan ég var í skólanum og stökk hingað í vinnu í öllum fríum. Seinna kom að því að ég var orð- inn hér allt árið um kring og ákvað að lokum að kaupa mig inn í rekst- urinn,“ segir hann og kveðst ekki sjá eftir því. „Ég er mjög ánægður með það og líkar vel að starfa við garðyrkju. Þetta er mikil vinna, alla daga vikunnar allan ársins hring. En ég vissi alveg hvað ég var að fara út í og lít ekki á vinnuna sem neina kvöð. Þetta er gaman,“ segir Hjalti. „Stefnan er síðan að kaupa meira og meira í fyrirtækinu með tíð og tíma og taka alfarið við rekstrinum,“ segir Hjalti. „Það verður nú ekki strax,“ segir Þórhallur faðir Hjalta sem mættur er inn á kaffistofu að sækja sér bolla. „Ég ætla að sitja hér sem fastast og passa upp á að engu megi breyta. Þú losnar ekki við mig fyrr en ég drepst,“ segir hann léttur í bragði. En að öllu gríni slepptu þá kveðst hann ánægður með að son- urinn sé kominn að rekstrinum og stefni á að taka við. 330 tonn á ári Á Laugalandi er ein stærsta gróðr- arstöð landsins og þar eru ein- göngu ræktaðar gúrkur. „Hér áður voru líka ræktaðir tómatar, paprikur og fleira en fyrir nokkru síðan var ákveðið að sérhæfa sig í gúrkunum. Það hefur gefist vel,“ segir Hjalti. Hann segir að framleiðslan sé um 900 kíló af gúrkum á dag að jafnaði. Það gerir ársframleiðslu upp á rétt innan við 330 tonn. „Það er dálítið magn af gúrkum,“ segir hann. Gróðurhúsin eru sex talsins. Þrjú heilsárshús sem lýst eru upp og hituð allan ársins hring og síðan þrjú eldri hús þar sem stunduð er sumarrækt- un. Þau eru í notkun frá apríl og til loka septembermánaðar, um það bil. Allt í allt munu þetta vera um 2.600 fermetrar undir gleri. Milli fimm og sex hafa starfað við gróðrarstöðina allt árið undanfar- in ár og þá eru ótaldir sumarstarfs- menn. „Starfsmennirnir eru ég, pabbi og mamma, sem sér um bók- haldið. Síðan eru í vinnu hjá okkur franskar mæðgur og pólskur maður sem hefur verið undanfarin sex ár. Á sumrin höfum við yfirleitt ráðið tvo starfsmenn til viðbótar. Þá er mesta uppskeran og mest að gera í gróður- húsunum,“ segir Hjalti. Smágúrkur seljast vel Síðasta haust hófst ræktun á smá- gúrkum á Laugalandi og segir Hjalti þá ræktun hafa gengið vel. „Smá- gúrkurnar hafa verið að seljast þann- ig að ég á von á að þær séu komnar til að vera,“ segir hann. „Hins veg- ar er meiri vinna sem fylgir þeim en þessum venjulegu agúrkum. Smá- gúrkurnar þarf að tína tvisvar á dag, að morgni og síðdegis. Síðan er þeim handpakkað í litlar pakkningar. Það fer í raun heilt starf bara í smágúrk- unum,“ segir Hjalti. „Við höfum að- eins verið að skoða hvort við ættum hreinlega að hætta að pakka þeim í þessar litlu pakkningar og selja þær í lausu í staðinn. Þá myndi sparast tími og líka minnka magn plastum- búða. Ég er mjög hlynntur því að reyna að minnka plastið og við höf- um verið að kynna okkur umhverf- isvænni umbúðir úr maís og fleiru. Við losnum örugglega aldrei alveg við plastið en það má minnka notk- unina verulega,“ segir Hjalti. 20 ára endurnýjun Á síðasta ári var ráðist í endurnýj- un tæknibúnaðar á Laugalandi og til dæmis öllum tölvum skipt út. „Það var alveg 20 ára endurnýjun og dá- lítið stórt stökk. Þó gamli búnaður- inn hafi alveg virkað þá er sá nýi mun fullkomnari og á að skila betri af- köstum,“ segir hann. „Allri ræktun- inni er í raun stýrt með tveimur tölv- um. Ein sér um að áburðarblöndun og alla áburðargjöf. Hin fylgist með lofstslagi og stýrir því gluggum, raka og hitastigi og dælir kolsýru inn í húsin eftir þörfum,“ útskýrir hann. „Hægt er að fylgjast með kerfinu í símanum og ef eitthvað kemur upp á þá fæ ég meldingu og get tekið yfir stjórnina hvar sem ég er staddur, svo lengi sem ég er nettengdur. Það er mikill kostur því þá er maður ekki eins bundinn, það er hægt að bregða sér frá ef þarf.“ Frekari tæknivæðing Þá segist hann einnig hafa hug á að tæknivæða garðyrkjustöðina enn frekar. „Það er töluverð tækniþró- un í garðyrkjunni um þessar mund- ir. Ég reyni að fylgjast vel með þeirri þróun og stefni á að tæknivæða stöð- ina hér í framtíðinni, hvort sem það verður eftir 10 ár eða 20. úti í heimi eru menn víða farnir að nota róbóta til að létta sér framleiðsluna og auka afköstin. Vélmenni hafa þann kost umfram mannfólkið að geta unnið allan sólarhringinn. Til dæmis eru komnir róbótar sem geta hreins- að blöðin af plöntunum, sem er erf- itt og tímafrekt verk,“ segir Hjalti. „Síðan verður vonandi hægt í fram- tíðinni að setja upp einhvers konar kerfi sem aðstoðar við tínsluna. Ég held að mannshöndin verði alltaf að vera við að tína gúrkurnar en tækni mættu gjarnan koma þeim á sinn stað. Það væri gott að losna við allan þennan burð, það myndi létta vinn- una mikið,“ bætir hann við. Beint frá bónda Þegar tæknibúnaðurinn var endur- nýjaður var áburðardreifarinn færð- ur. Gengið er í gegnum það rými á leið inn í gróðurhúsin. „Ætlunin var að útbúa þar aðeins stærri kaffistofu því starfsfólkinu er alltaf að fjölga,“ segir Hjalti og lítur um litlu kaffi- stofuna þar sem hann situr og ræð- ir við blaðamann. „En síðan fórum við að spá hvort ef til vill væri hægt að nýta túrismann. útbúa litla versl- un í rýminu og selja beint frá bónda, fyrst það er nú verið að byggja hót- el hérna við hliðina á okkur. Ég hef rætt við nokkra garðyrkjubændur á Suðurlandi sem láta mjög vel af því að svona fyrirkomulagi. En þetta er nú bara hugmynd ennþá, en samt eitthvað sem væri vert að prófa.“ kgk Hjalti Þórhallsson er fjórði ættliður garðyrkjubænda á Laugalandi Stefnir á að taka alfarið við rekstrinum með tíð og tíma Hjalti Þórhallsson, garðyrkjubóndi á Laugalandi í Borgarfirði. Hjalti virðir fyrir sér gúrkurnar í einu af gróðurhúsunum. Myndarlegar gúrkur bíða þess að vera tíndar. Á hverjum degi er neðsta gúrkan skorin af plöntunni og pakkað í neytendapakkningar. Hluti gróðurhúsanna á Laugalandi. Gróðurhúsin eru samtals sex; þrjú heilsárshús og þrjú eldri sem aðeins eru notuð á sumrin. Hjalti áætlar að allt í allt séu um 2.600 fermetrar undir gleri.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.