Skessuhorn


Skessuhorn - 30.08.2017, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 30.08.2017, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGúST 20176 Baulan seld BORGARFJ: Hjónin Krist- berg Jónsson og Sigrún Tóm- asdóttir hafa selt allt hlutafé í veitingastaðnum og verslun- inni Baulunni í Stafholtstung- um. Kaupendur eru félagið Vestur 26 ehf. sem er í eigu þriggja einstaklinga á höfuð- borgarsvæðinu. Söluverð er trúnaðarmál. Afhending eigna og rekstrar fer fram næstkom- andi föstudag, 1. september. Sigrún og Kristberg hafa rek- ið Bauluna í rúm 18 ár og hafa viðskiptin þar aukist jafnt og þétt á liðnum árum. -mm Byggðarráð lýsir áhyggjum BORGARBYGGÐ: „Byggðar- áð Borgarbyggðar lýsir miklum áhyggjum yfir boðaðri lækkun á afurðaverði til sauðfjárbænda á komandi sláturtíð,“ segir í bók- un sem ráðið samþykkti á fundi sínum síðastliðinn fimmtu- dag. Þá segir: „Haustið 2015 var vegið meðalafurðaverð til bænda um 600 kr./kg. Haust- ið 2016 lækkaði afurðaverð til sauðfjárbænda um ríflega 10% og var vegið meðalverð um 538 kr./kg. Haustið 2017 eru enn boðaðar verðlækkanir, allt að 35%, og gangi þær spár eftir mun afurðaverð falla niður í um 350 kr./kg. Sauðfjárrækt er þýð- ingarmikill hluti af búrekstri og búsetu í sveitarfélaginu. Borgar- byggð er eitt af fjárflestu sveit- arfélögum landsins. Því skiptir miklu máli að við fyrrgreindri þróun sé brugðist af stjórnvöld- um af ábyrgð og raunsæi. Fyrir- sjánlegar verðlækkanir á afurða- verði til bænda munu leiða af sér mikið tekjutap fyrir bændur og víða getur skapast forsendu- brestur fyrir áframhaldandi bú- rekstri. Sérstaklega munu ung- ir skuldsettir bændur verða illa úti við þessar aðstæður. Byggð- arráð Borgarbyggðar skorar á ráðherra landbúnaðarmála, ráðherra byggðamála, forystu bænda, afurðastöðvar og aðra hlutaðeigandi að leggja sig alla fram til að leysa þá grafalvarlegu stöðu sem upp er komin varð- andi verðlagningu og afsetn- ingu sauðfjárafurða.“ -mm Upplýsingasíða um dýravakt LANDIÐ: Matvælastofnun hefur tekið í notkun nýja Fés- bókarsíðu undir yfirskriftinni „Dýravakt Matvælastofnunar.“ Tilgangur síðunnar er að skapa gagnvirkan vettvang til að miðla upplýsingum um heilbrigði og velferð dýra milli Matvæla- stofnunar, dýraeigenda og al- mennings, annars vegar með upplýsingagjöf frá stofnuninni til dýraeigenda um dýravelferð- armál og hins vegar með upp- lýsingagjöf frá almenningi til Matvælastofnunar þegar grun- ur leikur á illri meðferð á dýr- um. -mm Stýrivextir verða áfram 4,5% LANDIÐ: Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í síð- ustu viku að halda stýrivöxt- um óbreyttum, eða 4,5% af sjö daga bundnum innlánum. „út- lit er fyrir að hagvöxtur í ár verði hraður eins og á síðasta ári en nokkru hægari en spáð var,“ segir í yfirlýsingu pen- ingastefnunefndar. „Hagvöxt- urinn er einkum drifinn af vexti ferðaþjónustu og einkaneyslu auk þess sem útlit er fyrir slök- un í aðhaldi opinberra fjármála í ár.“ Þá segir að verðbólga sé hafi verið lítið eitt minni á öðr- um fjórðungi ársins en spáð var í maí. Hún mældist 1,8% í júlí og hafði aukist úr 1,5% í júní. „Undirliggjandi verðbólga virð- ist hins vegar hafa haldið áfram að minnka.“ Gengi krónunnar hefur lækkað en það er þó enn tæplega 8% hærra en á sama tíma í fyrra. Loks segir: „Að- haldsstig peningastefnunnar á komandi misserum mun ráðast af framvindu efnahagsmála og annarri hagstjórn.“ -mm Kviknaði í lyftara á Grundartanga HVALFJ.SV: Slökkvilið Akra- ness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út að Grundartanga á þriðja tímanum á miðvikudag- inn síðasta. Eldur var í lyft- ara í húsakynnum fyrirtækis- ins Kratus. Þráinn Ólafsson, slökkviliðsstjóri, segir að engin slys hafi orðið á fólki og var að mestu búið að slökkva eldinn í lyftaranum þegar slökkviliðs- menn bar að garði. Lyftarinn var dreginn út og hann kældur niður áður en slökkviliðið hélt heim á leið að nýju. -bþb Vesturhús höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur við Bæjarháls í Reykja- vík er illa farið af rakaskemmdum og mjög dýrt að gera við það. Mygla finnst í húsinu og er starfsemi ein- ungis í hluta þess í dag. Málið var tekið fyrir á stjórnarfundi OR í vikubyrjun þar sem ýmsum mögu- leikum var velt upp í afleitri stöðu. Ákvörðun um aðgerðir liggur hins vegar ekki fyrir. Í september árið 2015 urðu starfs- menn OR varir við rakaskemmdir á innanverðum útveggjum svokallaðs Vesturhúss á Bæjarhálsi. Mat á eðli og umfangi skemmdanna leiddi í ljós að þær eru ekki bundnar við ákveðin svæði í húsinu heldur eru allir útveggir skemmdir. Vegna myglu fluttu starfsmenn yfir í aðra hluta bygginganna enda eru önn- ur hús OR á lóðinni sögð í ágætu ástandi. Þau eru öll byggð með öðrum hætti en Vesturhúsið sem stendur autt. Tilraunaviðgerð hófst um mitt ár 2016 og nemur áfall- inn kostnaður vegna viðgerða 460 milljónum króna. Í júnímánuði síð- astliðnum lá fyrir mat á árangri til- rauna til viðgerða og síðan hafa val- kostir um framhaldið verið kannað- ir, segir í fréttatilkynningu frá OR. Valkostirnir Sex leiðir hafa verið skoðaðar til lausnar sem skipta má í lagfær- ingu eða endurbyggingu útveggja, að klæða húsið hlífðarkápu eða rífa það að hluta. Ljóst er að allar þær leiðir sem færar eru taldar kosta gríðarlegar fjárhæðir, eða frá 1,5 til 3 milljarða króna. Dýrasta leiðin væri að rífa húsið og byggja annað á grunni þess. Hálfan annan milljarð er áætlað að kosti að lagfæra veggi með varanlegum hætti. Orkuveitan hefur farið þess á leit við Héraðsdóm Reykjavík- ur að dómkvaddur matsmaður verði fenginn til að meta ástæður skemmdanna og tjónið af þeim. Niðurstaðan verður grunnur að því að meta lagalega stöðu OR en í varúðarskyni reiknar fyrirtækið ekki með bótum í kostnaðaráætl- unum. Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir tíðindin vond: „Við verð- um þó að takast á við þann veru- leika sem við okkur blasir. Okkur liggur ekki á að ákveða okkur og getum þess vegna gefið okkur tíma í gott samtal um hvernig er best að ráða fram úr stöðunni. Vesturhús- ið stendur autt í dag og það truflar ekki grunnþjónustu við viðskipta- vini,“ segir Bjarni. Sorgarsaga Hús Orkuveitu Reykjavíkur hefur frá fyrstu tíð verið umdeild bygg- ing. Hönnun var dýr og bygg- ingin óhagkvæm þar sem rými er illa nýtt. Íburður er meiri en eðli- legt má telja í opinberri stofnun. Fram hefur komið að Orkuveitan seldi fjárfestum húsið eftir að fyr- irtækið varð nánast gjaldþrota eft- ir bankahrunið, en tók húsið jafn- framt á langtímaleigu með ákvæði um að sjá um viðhald þess. Þann- ig má segja að bygging hússins, eignarhald, viðhaldssamningur og ástand þess í dag hafi verið og sé ein samfelld sorgarsaga fyrir eig- endurnar; skattborgara og notend- ur þjónustunnar á starfssvæðinu, sem er Reykjavíkurborg, Akranes- kaupstaður og Borgarbyggð. mm Fréttaskýring: Orkuveituhúsið við Bæjarháls þungur baggi sem ekki sér fyrir endann á Vesturhús höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur er illa farið ef ekki ónýtt. Kostnaður við viðgerð þess er áætlaður að lágmarki 1,5 milljarður króna, en það er áætlað að það myndi kosta þrjá milljarða að rífa húsið og byggja annað á grunninum.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.