Skessuhorn


Skessuhorn - 30.08.2017, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 30.08.2017, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGúST 201720 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Leiguakstur á Akranesi sem og á öllu Vesturlandi Ari Grétar Björnsson Sími: 864-2100 Email : taxar@simnet.is H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmar 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 7 Pennagrein Í lögum um menningarminjar frá 2012 er ákvæði um að skipta land- inu í minjasvæði eftir ákvæðum reglugerðar. Á hverju minjasvæði skal starfa minjaráð, en minjar- áð er samráðsvettvangur hvers minjasvæðis sem ætlað er að fjalla um menningarminjar, varðveislu þeirra og nýtingu í þágu sam- félagsins í samráði við Minjastofn- un Íslands og höfuðsöfn landsins. Minjavörður er formaður minjar- áðs. Auk hans, skal Samband sveit- arfélaga á minjasvæðinu tilnefna tvo fulltrúa, þjóðminjavörður skal tilnefna tvo fulltrúa safna og menningarstofnana á svæðinu og forstöðumaður Minjastofnunar Ís- lands tilnefnir tvo fulltrúa. Minjaráð skulu vera samráðs- vettvangur um varðveislu og nýt- ingu minja, hvert á sínu svæði. Minjaráð skulu beita sér fyrir verk- efnum á sviði minjavörslu, til efl- ingar byggðar og atvinnusköpun- ar, meðal annars með ályktunum, sem beint er til sveitarstjórna eða annarra þar til bærra stjórnvalda. Viðfangsefni ráðanna eru m.a.: Fjalla um og gera tillögur um • forgangsröðun á uppbygg- ingu, verndun og rannsókn- um á stöðum með menningar- minjar. Fjalla um og gera tillögur um • verndarsvæði í byggð. Stuðla að fræðslu og umræðu • um minjavernd í samráði við Minjastofnun. Koma að stefnumörkun um • verndun fornleifa og bygging- ararfs. Beina því til sveitarfélaga að • menningarminjar séu skráðar og funda með sveitarstjórnum í þeim tilgangi. Gera tillögur um friðlýsingu • eða skyndifriðun menningar- minja. Vakta viðkvæm svæði í sinni • heimabyggð. Veita umsagnir um mál er varða • menningarminjar á sínu minja- svæði ef eftir því er óskað. Í minjaráði Vesturlands sitja; Magnús A. Sigurðsson, minjavörð- ur Vesturlands, Eyþór Garðarsson, forseti bæjarstjórnar í Grundar- firði, og Einar Brandsson, varafor- seti bæjarstjórnar á Akranesi, full- trúar sveitarfélaganna, Jón Allans- son, forstöðumaður Safnasvæðisins á Akranesi, og Ágúst Ó. Georgs- son, safnvörður, Þjóðminjasafni Íslands, fulltrúar Þjóðminjasafns Íslands, Hulda Guðmundsdóttir skógarbóndi og Sigurður Þórólfs- son, bóndi, skipuð af Minjastofnun Íslands. Fyrsti fundur Minjaráðs Vestur- lands var haldin 20. nóvember 2015. Þar var farið yfir hlutverk minjar- áða og fyrirkomulag og ný lög um verndarsvæði í byggð kynnt. Annar fundur minjaráðs var haldinn 25. nóvember 2016. Þar voru m.a. kynntar umsóknir um styrk til að undirbúa verndarsvæði í byggð. Ein umsókn barst frá Vest- urlandi á árinu 2016 en það er verk- efnið „Framdalurinn – Fitjasókn í Skorradal“, sem hlaut veglegan styrk. Þar stendur til að gera meg- inhluta hinnar fornu Fitjasókn- ar að verndarsvæði til að viðhalda menningarminjum og sögu svæð- isins. Einnig voru kynntar starfs- reglur minjaráða og lög um lands- áætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningar- sögulegum minjum, en búið er að tilnefna þrjá staði á Vesturlandi, þ.e. Dritvík, Snorralaug og Surts- helli, sem koma til með að vera í forgangi þegar kemur að uppbygg- ingu ferðamannastaða á Vestur- landi. Gert er ráð fyrir að minjaráð komi til með að tilnefna fleiri staði. Að lokum kom fram hugmynd um að stefna að árlegum minja- og til- tektardegi með þátttöku almenn- ings. Þriðji fundur minjaráðs var hald- in að Fitjum í Skorradal þann 24. maí 2017. Þar var m.a. menning- arminjadagur Evrópu kynntur, en hann er haldinn á hverju ári, og í ár verður hann laugardaginn 14. októ- ber á öllum minjasvæðum á landinu með fjölbreyttum viðburðum. Á Vesturlandi verði kynning á verk- efninu „Framdalurinn - Fitjasókn í Skorradal verndarsvæði í byggð“. Góð aðstaða til samkomuhalds er á Fitjum og verður kynningin hald- in þar og öllum opin. Nánari út- færsla á dagskrá verður kynnt síðar. Minjavörður kynnti sérstakt átak í skráningu strandminja á Íslandi. Einn þessara minjastaða eru Gufu- skálar á Snæfellsnesi. Um samnor- rænt verkefni er að ræða sem tek- ur til samspils loftslagsbreytinga og skemmda á fornminjum. Minja- stofnun Íslands hefur umsjón með þessu verkefni hér á landi. Með- al þess sem vænst er til að komi út úr verkefninu er aðferð til að vakta staði sem eru í hættu. Að lokum voru eftirfarandi álykt- anir samþykktar; 1) Minjaráð Vesturlands legg- ur til við Minjastofnun Íslands að hún beiti sér fyrir að rannsóknum á þeim rústum sem eru í mestri hættu í hinni fornfrægu verstöð á Gufu- skálum, þ.e. næst ströndinni, verði haldið áfram eins fljótt og við verð- ur komið. Eyðilegging af völdum sjávar blasir við og má þar lítið út af bera í vondum veðrum. 2) Minjaráð Vesturlands bein- ir þeim tilmælum til Minjastofn- unar Íslands að hún láti gera húsa- könnun í Breiðafjarðareyjum þar sem hús frá síðasta skeiði byggðar eru uppistandandi. Undanskilin er Flatey þar sem slík könnun hefur þegar verið gerð. Höfum við miklar væntingar til minjaráðs Vesturlands og vonum að almenningur verði okkur inn- an handar með vöktun og verndun menningarminja og sögu þessa fal- lega landshluta. Allar fyrirspurnir, óskir og ábendingar eru vel þegnar! Magnús A. Sigurðsson Höf. er minjavörður Vesturlands Blásið var til rokkveislu í harðari kantinum í Jónsbúð á Akranesi síð- astliðinn laugardag. Sjö hljómsveit- ir af Akranesi, sem mismikið hafa starfað undanfarin ár, stigu á stokk við mikinn fögnuð gesta. Á stokk stigu sjö hljómsveitir af Akranesi, sem hafa verið misáber- andi undanfarin ár. Fram komu sveitirnar Skrímsl, Hector Rektor, O‘Bannion, xGADDAVÍRx ásamt hinum fornfrægu Skagasveitum The Boy and his Blob, Hark og Panil. Hver á fætur annarri trylltu þess- ar sveitir lýðinn, hávaðinn og lætin jukust jafnt og þétt og ekki var ann- að að sjá en að áhorfendur skemmtu sér hið besta. kgk Rokkveisla í harðari kantinum Hin fornfræga sveit Panil kom í fyrsta sinn fram svo árum skiptir. O‘Bannion í miklum fíling. Kynning á Minjaráði Vesturlands Hluti minjaráðs Vesturlands á fundi sem haldinn var á Fitjum í Skorradal. F.v. Hulda Guðmundsdóttir, Sigurður Þórólfsson, Jón Allansson og Ágúst Ó Georgs- son. NÚ HERJAR SITKALÚS Á GRENI- OG FURUTRÉ TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR GARÐAÚÐUN REYNIS SIG SÍMI: 899-0304

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.