Skessuhorn - 30.08.2017, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGúST 201720
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Leiguakstur á Akranesi sem og á öllu Vesturlandi
Ari Grétar Björnsson
Sími: 864-2100
Email : taxar@simnet.is
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmar 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Pennagrein
Í lögum um menningarminjar frá
2012 er ákvæði um að skipta land-
inu í minjasvæði eftir ákvæðum
reglugerðar. Á hverju minjasvæði
skal starfa minjaráð, en minjar-
áð er samráðsvettvangur hvers
minjasvæðis sem ætlað er að fjalla
um menningarminjar, varðveislu
þeirra og nýtingu í þágu sam-
félagsins í samráði við Minjastofn-
un Íslands og höfuðsöfn landsins.
Minjavörður er formaður minjar-
áðs. Auk hans, skal Samband sveit-
arfélaga á minjasvæðinu tilnefna
tvo fulltrúa, þjóðminjavörður
skal tilnefna tvo fulltrúa safna og
menningarstofnana á svæðinu og
forstöðumaður Minjastofnunar Ís-
lands tilnefnir tvo fulltrúa.
Minjaráð skulu vera samráðs-
vettvangur um varðveislu og nýt-
ingu minja, hvert á sínu svæði.
Minjaráð skulu beita sér fyrir verk-
efnum á sviði minjavörslu, til efl-
ingar byggðar og atvinnusköpun-
ar, meðal annars með ályktunum,
sem beint er til sveitarstjórna eða
annarra þar til bærra stjórnvalda.
Viðfangsefni ráðanna eru m.a.:
Fjalla um og gera tillögur um •
forgangsröðun á uppbygg-
ingu, verndun og rannsókn-
um á stöðum með menningar-
minjar.
Fjalla um og gera tillögur um •
verndarsvæði í byggð.
Stuðla að fræðslu og umræðu •
um minjavernd í samráði við
Minjastofnun.
Koma að stefnumörkun um •
verndun fornleifa og bygging-
ararfs.
Beina því til sveitarfélaga að •
menningarminjar séu skráðar
og funda með sveitarstjórnum
í þeim tilgangi.
Gera tillögur um friðlýsingu •
eða skyndifriðun menningar-
minja.
Vakta viðkvæm svæði í sinni •
heimabyggð.
Veita umsagnir um mál er varða •
menningarminjar á sínu minja-
svæði ef eftir því er óskað.
Í minjaráði Vesturlands sitja;
Magnús A. Sigurðsson, minjavörð-
ur Vesturlands, Eyþór Garðarsson,
forseti bæjarstjórnar í Grundar-
firði, og Einar Brandsson, varafor-
seti bæjarstjórnar á Akranesi, full-
trúar sveitarfélaganna, Jón Allans-
son, forstöðumaður Safnasvæðisins
á Akranesi, og Ágúst Ó. Georgs-
son, safnvörður, Þjóðminjasafni
Íslands, fulltrúar Þjóðminjasafns
Íslands, Hulda Guðmundsdóttir
skógarbóndi og Sigurður Þórólfs-
son, bóndi, skipuð af Minjastofnun
Íslands.
Fyrsti fundur Minjaráðs Vestur-
lands var haldin 20. nóvember 2015.
Þar var farið yfir hlutverk minjar-
áða og fyrirkomulag og ný lög um
verndarsvæði í byggð kynnt.
Annar fundur minjaráðs var
haldinn 25. nóvember 2016. Þar
voru m.a. kynntar umsóknir um
styrk til að undirbúa verndarsvæði
í byggð. Ein umsókn barst frá Vest-
urlandi á árinu 2016 en það er verk-
efnið „Framdalurinn – Fitjasókn
í Skorradal“, sem hlaut veglegan
styrk. Þar stendur til að gera meg-
inhluta hinnar fornu Fitjasókn-
ar að verndarsvæði til að viðhalda
menningarminjum og sögu svæð-
isins. Einnig voru kynntar starfs-
reglur minjaráða og lög um lands-
áætlun um uppbyggingu innviða
til verndar náttúru og menningar-
sögulegum minjum, en búið er að
tilnefna þrjá staði á Vesturlandi,
þ.e. Dritvík, Snorralaug og Surts-
helli, sem koma til með að vera í
forgangi þegar kemur að uppbygg-
ingu ferðamannastaða á Vestur-
landi. Gert er ráð fyrir að minjaráð
komi til með að tilnefna fleiri staði.
Að lokum kom fram hugmynd um
að stefna að árlegum minja- og til-
tektardegi með þátttöku almenn-
ings.
Þriðji fundur minjaráðs var hald-
in að Fitjum í Skorradal þann 24.
maí 2017. Þar var m.a. menning-
arminjadagur Evrópu kynntur, en
hann er haldinn á hverju ári, og í ár
verður hann laugardaginn 14. októ-
ber á öllum minjasvæðum á landinu
með fjölbreyttum viðburðum. Á
Vesturlandi verði kynning á verk-
efninu „Framdalurinn - Fitjasókn
í Skorradal verndarsvæði í byggð“.
Góð aðstaða til samkomuhalds er á
Fitjum og verður kynningin hald-
in þar og öllum opin. Nánari út-
færsla á dagskrá verður kynnt síðar.
Minjavörður kynnti sérstakt átak
í skráningu strandminja á Íslandi.
Einn þessara minjastaða eru Gufu-
skálar á Snæfellsnesi. Um samnor-
rænt verkefni er að ræða sem tek-
ur til samspils loftslagsbreytinga
og skemmda á fornminjum. Minja-
stofnun Íslands
hefur umsjón
með þessu
verkefni hér
á landi. Með-
al þess sem vænst er til að komi út
úr verkefninu er aðferð til að vakta
staði sem eru í hættu.
Að lokum voru eftirfarandi álykt-
anir samþykktar;
1) Minjaráð Vesturlands legg-
ur til við Minjastofnun Íslands að
hún beiti sér fyrir að rannsóknum á
þeim rústum sem eru í mestri hættu
í hinni fornfrægu verstöð á Gufu-
skálum, þ.e. næst ströndinni, verði
haldið áfram eins fljótt og við verð-
ur komið. Eyðilegging af völdum
sjávar blasir við og má þar lítið út af
bera í vondum veðrum.
2) Minjaráð Vesturlands bein-
ir þeim tilmælum til Minjastofn-
unar Íslands að hún láti gera húsa-
könnun í Breiðafjarðareyjum þar
sem hús frá síðasta skeiði byggðar
eru uppistandandi. Undanskilin er
Flatey þar sem slík könnun hefur
þegar verið gerð.
Höfum við miklar væntingar til
minjaráðs Vesturlands og vonum
að almenningur verði okkur inn-
an handar með vöktun og verndun
menningarminja og sögu þessa fal-
lega landshluta.
Allar fyrirspurnir, óskir og
ábendingar eru vel þegnar!
Magnús A. Sigurðsson
Höf. er minjavörður Vesturlands
Blásið var til rokkveislu í harðari
kantinum í Jónsbúð á Akranesi síð-
astliðinn laugardag. Sjö hljómsveit-
ir af Akranesi, sem mismikið hafa
starfað undanfarin ár, stigu á stokk
við mikinn fögnuð gesta.
Á stokk stigu sjö hljómsveitir af
Akranesi, sem hafa verið misáber-
andi undanfarin ár. Fram komu
sveitirnar Skrímsl, Hector Rektor,
O‘Bannion, xGADDAVÍRx ásamt
hinum fornfrægu Skagasveitum The
Boy and his Blob, Hark og Panil.
Hver á fætur annarri trylltu þess-
ar sveitir lýðinn, hávaðinn og lætin
jukust jafnt og þétt og ekki var ann-
að að sjá en að áhorfendur skemmtu
sér hið besta. kgk
Rokkveisla í harðari kantinum
Hin fornfræga sveit Panil kom í fyrsta sinn fram svo árum skiptir. O‘Bannion í miklum fíling.
Kynning á Minjaráði Vesturlands
Hluti minjaráðs Vesturlands á fundi sem haldinn var á Fitjum í Skorradal. F.v.
Hulda Guðmundsdóttir, Sigurður Þórólfsson, Jón Allansson og Ágúst Ó Georgs-
son.
NÚ HERJAR SITKALÚS Á GRENI- OG FURUTRÉ
TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR
GARÐAÚÐUN REYNIS SIG
SÍMI: 899-0304