Skessuhorn


Skessuhorn - 30.08.2017, Page 8

Skessuhorn - 30.08.2017, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGúST 20178 Íbúafundur um skólastefnu REYKHÓLAHR: Stýri- hópur um skólastefnu Reykhólahrepps boðar til fundar um skólastefnu hreppsins í sal Reykhóla- skóla fimmtudaginn 31. ágúst kl. 17:00. Boðið verð- ur upp á súpu á fundinum. „Sátt og samvinna eru mik- ilvægar við gerð skóla- stefnu, það er lykilatriði að samfélagið fái að tækifæri til að koma að vinnunni, hvort sem bein tenging við skólann er eða ekki,“ segir í tilkynningu stýrihópsins sem birt var á Reykhólav- efnum. „Allir íbúar Reyk- hólahrepps eru hvattir til að láta skólastefnu sig varða og leggja sitt af mörkum til mótunnar hennar, börn og unglingar ekki síst því þau hafa skoðanir á skólakerf- inu og skólastarfi.“ -kgk Aflatölur fyrir Vesturland dagana 19. - 25. ágúst Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes: 7 bátar. Heildarlöndun: 8.099 kg. Mestur afli: Glódís AK: 2.429 kg í 4 róðrum. Arnarstapi: 3 bátar. Heildarlöndun: 1.635 kg. Mestur afli: Gestur SH: 908 kg í 2 róðrum. Grundarfjörður: 7 bátar. Heildarlöndun: 327.814 kg. Mestur afli: Steinunn SF: 105.312 kg í 2 löndunum. Ólafsvík: 9 bátar. Heildarlöndun: 257.034 kg. Mestur afli: Brynja SH: 65.535 kg í 8 róðrum. Rif: 11 bátar. Heildarlöndun: 153.276 kg. Mestur afli: Sæbliki SH: 42.638 kg í 6 löndunum. Stykkishólmur: 1 bátur. Heildarlöndun: 6.131 kg. Mestur afli: Blíða SH: 6.131 kg í 2 róðrum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Hringur SH - GRU: 65.855 kg. 22. ágúst. 2. Steinunn SF - GRU: 62.293 kg. 20. ágúst. 3. Bylgja VE - GRU: 59.156 kg. 21. ágúst. 4. Vörður EA - GRU: 50.305 kg. 23. ágúst. 5. Helgi SH - GRU: 46.553 kg. 20. ágúst. -kgk Orkuveitan hagnast mikið SV-LAND: „Lækkandi rekstrarkostnaður hjá Orku- veitu Reykjavíkur á sama tíma og ýmis ytri skilyrði voru hag- stæð skópu fyrirtækinu tals- verðan hagnað á fyrri helm- ingi ársins,“ segir í tilkynn- ingu frá OR. Samkvæmt árs- hlutareikningi sem birtur hef- ur verið var afkoma fyrirtækis- ins jákvæð sem nam 7,3 millj- örðum króna fyrstu sex mán- uði ársins 2017. Innan sam- stæðu Orkuveitu Reykja- víkur eru, auk móðurfélags- ins, Veitur, Orka náttúrunn- ar og Gagnaveita Reykjavíkur. Kostnaður við rekstur fyrir- tækjanna lækkaði frá fyrra ári um 152 milljónir króna. Þrátt fyrir samningsbundnar launa- hækkanir þá vóg þar á móti minni kostnaður við raforku- flutning og raforkukaup til endursölu. Það síðarnefnda má meðal annars rekja til auk- innar framleiðslu ON í Hellis- heiðarvirkjun eftir að Hvera- hlíðarlögn var tekin í notkun. Tekjur samstæðunnar jukust. Hækkandi álverð, sem er við- miðun í raforkusölu til stór- notenda, hefur þar áhrif og aukin umsvif í samfélaginu. -mm Framlengja frest til umhverfistil- nefninga BORGARB: Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur framlengt frest til að skila inn tilnefning- um til umhverfisviðurkenn- inga sveitarfélagsins til 1. sept- ember nk. Veittar verða viður- kenningar fyrir snyrtimennsku og íbúar hvattir til að tilnefna í flokkunum snyrtilegasta bændabýlið, snyrtilegasta lóð við íbúðarhús og snyrtileg- asta lóð við atvinnuhúsnæði. Þá verður sérstök viðurkenn- ing umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefndar veitt vegna umhverfismála. „Óskað er eftir tilnefningum í áður- nefndum flokkum og getur hver og einn sent inn margar tilnefningar. Þær óskast send- ar á netfangið: borgarbyggd@ borgarbyggd.is. -mm Minnsta atvinnuleysi frá því mælingar hófust LANDIÐ: Samkvæmt vinnu- markaðsrannsókn Hag- stofu Íslands voru að jafn- aði 201.900 manns á aldrin- um 16–74 ára á vinnumark- aði í júlí 2017, sem jafngildir 83,3% atvinnuþátttöku. Hlut- fall starfandi af mannfjölda var 82,5% og hlutfall atvinnu- lausra af vinnuafli var 1%. Er þetta lægsta mæling atvinnu- leysis frá því að samfelldar mælingar Hagstofunnar hóf- ust árið 2003. -mm Unnið er að stækkun Fosshótels Reykholti og verið að reisa ný- byggingu með 28 hótelherbergj- um. Sjálft hótelið var enduropnað í vor eftir gagngerar breytingar inn- andyra. Nú er unnið að reisingu húseininga sem koma frá Smell- inn á Akranesi. Lokið var í síðustu viku að reisa framhlið byggingar- innar, eins og sést á meðfylgjandi mynd. mm/ Ljósm. bhs. Nú eru hafnar að nýju framkvæmd- ir hjá brúarvinnuflokki Vegagerð- arinnar við endurbætur á brúargólfi Borgarfjarðarbrúar, næst Borgar- nesi. Þetta er jafnframt lokaáfangi verksins, sem unnið hefur verið í áföngum allt frá árinu 2012. Við verkið notar flokkurinn sérstakan háþrýstifræsara sem brýtur brúar- gólfið niður að járngrind og síðan er steypt upp á nýjan leik. Umferð um brúna er stýrt með ljósum með- an á viðgerð stendur og áætlað að framkvæmdum ljúki 14. nóvember. mm Síðasti áfangi viðgerða á Borgarfjarðarbrú Framkvæmdir í gangi á brúnni. Ljósm. úr einum af fyrri áföngum verksins. Bæjarráð Akraneskaupstaður fól á fundi sínum í síðustu viku sviðs- stjóra skóla- og frístundasviðs, í samráði við sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og stjórnsýslu- og fjármálasviðs, að hefja undirbúning að gerð leigusamnings við Skátafé- lags Akraness fyrir notkun húsnæð- is félagsins að Háholti 24 fyrir leik- skóladeild yngri barna. „Málið er nú á vinnslustigi og næstu skref eru að ganga til samninga við Skátafé- lagið. Það hefur lýst yfir vilja sín- um að leigja Akraneskaupstað hús- næðið svo við bindum miklar von- ir við að það náist samningar sem fyrst,“ segir Valgerður Janusdóttir, sviðsstjóri skóla- og frístundarsviðs, sem segir að viðræður hefjist strax í næstu viku. „Deildin er hugsuð fyr- ir yngstu börnin og samhliða und- irbúningi leigusamningsins er haf- inn undirbúningur að því að börn fædd snemma árs 2016 verði tekinn inn á fyrirhugaða deild fljótlega eft- ir áramót,“ segir Valgerður. Ástæða opnunar deildarinnar er sá að skortur hefur verið á dagfor- eldra- og leikskólaplássi í sveitar- félaginu. Akraneskaupstaður hefur undanfarna mánuði leitað skamm- tímalausna á því vandamáli sem uppi er. „Það er stór árgangur að byrja hjá okkur á leikskóla, 124 börn sem er öllu meira en við erum vön. Á sama tíma þurfum við að vera með frátekið pláss fyrir börn á leikskólaaldri sem flytja í sveitar- félagið. Ungt fólk með börn á leik- skólaaldri er í auknum mæli að flytja til Akraness svo búast má við tölu- verði fjölgun á leikskólum bæjarins á næsta ári. Við þurfum að bregðast við með bæði skamm- og langtíma- lausnum. Ein af þeim skammtíma- lausnum sem við horfum til núna er að auka leikskólapláss. Á þessum tímapunkti hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvernig það verður gert, en við skoðum alla möguleika t.d. hvort nýta megi eitthvað hús- næði sem fyrir er á Akranesi,“ sagði Þórður Guðjónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður skóla- og frístundaráðs, í samtali við Skessuhorn fyrr í sumar. bþb Undirbúningur hafinn að nýrri leikskóladeild í Skátahúsinu á Akranesi Skátahúsið á Akranesi að Háholti 24. Þar er nú fyrirhugað að opna leikskóladeild. Hótelviðbygging í Reykholti tekur á sig mynd

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.