Skessuhorn


Skessuhorn - 30.08.2017, Page 15

Skessuhorn - 30.08.2017, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGúST 2017 15 Fimmtudaginn 7. september næst- komandi verða 50 ár liðin frá stofn- un Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Skólinn var stofnaður þennan sama dag árið 1967 og voru það félagar í Tónlistarfélagi Borgarfjarðar sem höfðu forgöngu að stofnun hans. Til stendur að halda upp á daginn með pompi og prakt á sjálfan af- mælisdaginn, fimmtudaginn í næstu viku. „Hugmyndin er að bjóða í há- degissnarl á afmælisdaginn. Þang- að er öllum boðið og síðan verð- ur skólinn opinn og fólki velkom- ið að kíkja við, kynna sér starfsem- ina og fylgjast með kennslu. Síð- an verður blásið til tónleika um kvöldið í Borgarneskirkju. Þar mun koma fram tónlistarfólk sem hefur útskrifast frá Tónlistarskóla Borg- arfjarðar í gegnum tíðina,“ seg- ir Theodóra Þorsteinsdóttir skóla- stjóri í samtali við Skessuhorn. Hún bætir því við að alls hafi útskrifast frá skólanum 22 nemendur með framhaldspróf í söng og píanóleik síðan fyrst var útskrifað árið 1998. „Því munu söngvarar og píanóleik- arar stíga á stokk á afmælistónleik- unum. Tónlistarfólkið hefur alveg frjálsar hendur um efnistök á tón- leikunum, en ég á von á því að á dagskrá verði bæði samsöngur og samspil, einsöngur og einleikur. Ég held að það verði mjög gam- an og flott að enda afmælisdaginn með þessum hætti. Allir nemend- ur sem hafa útskrifast hafa fengist við tónlist síðan, hver með sínum hætti enda tónlistarmennirnir eins fjölbreyttir og þeir eru margir. Því munu koma fram alls konar týpur af röddum og tónlistarfólk sem er að fást við alls kyns músík,“ segir Theodóra. Setja upp söngleikinn Móglí Hún segir skólann ætla að gangast fyrir fleiri viðburðum í allan vet- ur í tilefni hálfrar aldar afmælisins. „Þar verður stærsti viðburðurinn uppsetning tónlistarskólans á söng- leiknum Móglí í leikstjórn Hall- dóru Björnsdóttur. Um 70 manns á öllum aldri munu koma að sýn- ingunni. Yngsti leikarinn er sjö ára gamall og sá elsti rúmlega sextug- ur. Á næstunni munu æfingar hefj- ast af fullum krafti og við stefnum á að frumsýna um miðjan nóvem- ber. Það er mikill spenningur fyrir þessu metnaðarfulla verkefni,“ seg- ir hún. „Með leikstjórn fer Hall- dóra Björnsdóttir, ég mun annast tónlistarstjórn og flestir kennarar skólans munu koma að undirleik og fleiru í sýningunni. Þetta held ég að verði mjög skemmtilegt.“ Eftir áramót verður síðan blás- ið til kennaratónleika þar sem við kennarar munum koma fram. „Síð- an ætlum við einnig að prófa svo- lítið nýtt og halda ráptónleika. Þá mega krakkarnir rápa á meðan tón- leikunum stendur, vera með tyggjó þegar þau spila, vera með hatta og gera allt sem ekki er leyft á tónleik- um okkar almennt.“ Skólastjóri í 25 ár Sem fyrr segir var skólinn stofnaður 7. september 1967 af Tónlistarfélagi Borgarfjarðar, en félagið hafði verið stofnað árið áður. Prímusmótorarnir í starfi tónlistarfélagsins og þeir sem höfðu forgöngu um stofnun tón- listarskóla voru einkum þrír menn; Hjörtur Þórarinsson á Kleppjárns- reykjum, Jakob Jónsson á Varmalæk og Friðjón Sveinbjörnsson í Borgar- nesi. Fyrsti skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar var Jón Þ. Björnsson, næstur var Ólafur Guðmundsson á Hvanneyri og sá þriðji Björn Leifs- son. „Síðan tek ég við af Birni árið 1991 og er því að hefja 26. árið mitt sem skólastjóri. Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt,“ segir Theodóra. „Fyrsta árið sem ég var skólastjóri var einmitt verið að halda upp á 25 ára afmæli skólans. Þá kenndu tón- listarkennarar í Grunnskólanum í Borgarnesi og inni á heimilum sín- um. Þegar ég byrjaði 1987 þá kenndi ég í stofunni heima hjá mömmu,“ bætir hún við. „En gaman að segja frá því að á fyrsta starfsári skólans þá kenndi apótekarafrúin Dóróthea Jónsdóttir einmitt í þessu húsi hér, sem þá var apótek en hýsir nú tón- listarskólann,“ segir hún og bætir því við að ýmislegt hafi breyst frá því hún tók við starfinu árið 1991. „Þá var skrifstofa tónlistarskóla- stjórans bara á eldhúsborðinu heima og kennt í stofunni og í grunnskól- anum. Síðan eru leigð húsin þar sem nú er veitingastaðurinn Englend- ingavík árið 1997 og þar er skólinn í nokkur ár. Þaðan er farið í svokall- að Ásbjarnarhús á Gunnlaugsgötu. Skólinn var þar í smá tíma þangað til þetta hús, gamla apótekið, var keypt árið 2003 og síðan byrjað að kenna í því 2004. Það var alveg dásamlegt að flytja inn í þetta húsnæði,“ segir Theodóra og bætir því við að gamla apótekið henti starfsemi tónlistar- skólans afar vel. Heppin með starfsfólk Á undangengnu sumri hefur ver- ið unnið að viðhaldi húsnæðis- ins við Borgarbraut. „Það er búið að taka skólann aðeins í gegn, mála húsið að utan, skipta um glugga og merkja skólann. Síðan stendur til að laga skellur og sinna öðru minnihátt- ar viðhaldi fram á haustið. En það er gaman að húsið hafi fengið góða andlitslyftingu á afmælisárinu,“ seg- ir hún. Kennararnir eru níu, að skólastjór- anum meðtöldum og lætur Theo- dóra afar vel af starfsfólkinu. „Kenn- arar skólans eru mjög tryggir og lítil endurnýjun í hópnum frá ári til árs. Nokkrir hafa verið samferða mér öll þau 25 ár sem ég hef verið hér skóla- stjóri og sumir voru byrjaðir að kenna fyrir þann tíma. Skólinn býr því að afar reynslumiklu fólki og mikl- um stöðugleika í starfsliðinu. Ég tel okkur því afar heppin með allt okkar starfsfólk,“ segir Theodóra. Fjölbreytt nám Innan veggja tónlistarskólans gefst nemendum kostur á að læra á flest þau hljóðfæri sem til eru. „Hér er öfl- ug píanódeild, söngur og gítarinn er jafnan sterkur en önnur hljóðfæri eru meira sveiflum háð. Mér hefur aldrei tekist að halda úti lúðrasveit og þykir mér það leiðinlegt. Blásturshljóðfæri virðast vera í lægð um þessar mund- ir og sú er raunin í flestum tónlistar- skólum landsins. Fyrir nokkru síðan var starfrækt hér fiðlusveit en fiðl- unemendum hefur fækkað síðustu ár. Aftur á móti er mikill trommuá- hugi um þessar mundir og margir að læra á trommur hjá okkur,“ segir hún. „Starfsemin er því mjög fjölbreytt og við leggjum okkur fram við að hafa það þannig. Við viljum höfða til sem flestra,“ segir Theodóra. Nemendurnir eru um 150 tals- ins um allan Borgarfjörð. Kennt er í húsnæði tónlistarskólans við Borgar- braut í Borgarnesi en einnig í grunn- skóladeildum GBF á Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi. „Námið hefur verið skipulagt þannig að kennarar okkar eru á ferð um hér- aðið. Það fyrirkomulag hefur gefist mjög vel,“ segir Theodóra. Þar fyrir utan telur hún að lágmark 50 börn til viðbótar kynnist tónlist og tónlistar- námi í gegnum tónsmiðjur sem skól- inn hefur staðið fyrir í samstarfi við Ungmennasamband Borgarfjarðar. Tónlistarskóli Borgarfjarðar er einn fárra á landinu þar sem kom- ið hefur verið á fót forskóladeild. „Þar kennum við leikskólabörn- um á aldrinum þriggja til fimm ára. Börnin fara í söngtíma, læra rythma og hlustun. Eldri börnin fá síðan að læra á blokkflautu og aðeins að kynnast hljóðfærum. Þessi forskóla- deild hefur reynst afar vel og er mjög vinsæl,“ segir Theodóra. kgk Tónlistarskóli Borgarfjarðar stendur á fimmtugu Tímamótunum fagnað með viðburðum í vetur Theodóra Þorsteinsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Húsnæði tónlistarskólans í gamla apótekinu við Borgarbraut í Borgarnesi. Theodóra er fjórði skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Sá fyrsti var Jón Þ. Björnsson, þá Ólafur Guðmundsson á Hvanneyri og sá þriðji Björn Leifsson. Í stiganum í tónlistarskólanum hanga uppi myndir af öllum útskriftarnemum Tón- listarskóla Borgarfjarðar frá árinu 1998 þegar fyrst var útskrifað. Á afmælistón- leikum munu koma fram tónlistarmenn sem hafa útskrifast með framhaldspróf frá skólanum.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.