Skessuhorn - 13.09.2017, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 37. tbl. 20. árg. 13. september 2017 - kr. 750 í lausasölu
Loratadin
LYFIS
- fæst án lyfseðils
Yfir ��� tilboð
Allir viðskiptavinir Arion banka
eru í Einkaklúbbnum
Náðu í appið og nýttu þér tilboðin
Til alþingismanna
Tökum upp
US Dollar
Pétur Geirsson
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
SÍMENNTUNARMIÐSTÖÐIN
Á VESTURLANDI
Fylgstu með okkur á Facebook
FYRRI
NÁMS
VÍSIR
HAUST
ANNAR
ER KO
MINN
ÚT
HAUSTÖNN 2017
Á þessum árstíma er veisla hjá smáfuglunum. Sumir halda til fjarlægari landa meðan aðrir búa sig undir vetursetu hér. Starar
er sólnir í ýmis ber. Hér er einn þeirra að gæða sér á beri af reyniviði, en þessu skemmtilega skoti náði Guðmundur Bjarki Hall-
dórsson ljósmyndari á Akranesi í skógrækt bæjarins í liðinni viku.
Fisk Seafood ehf. hefur fest kaup á
sjávarútvegsfyrirtækinu Soffaníasi
Cecilssyni hf. í Grundarfirði. Kaup-
in eru með fyrirvörum, m.a. um
samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu
sem send hefur verið fjölmiðlum.
„Með þessu hyggst Fisk Seafood
ehf. styrkja sig í sessi sem eitt öflug-
asta sjávarútvegsfyrirtæki landsins og
treysta enn frekar fjölbreyttan rekst-
ur í útgerð, fiskvinnslu og sölu sem
byggst hefur upp á undanförnum
árum. Ef af kaupunum verður mun
starfsemi félagsins skipulögð með
það að markmiði að tryggja áfram-
haldandi öfluga starfsemi í Grundar-
firði.“ Sjá nánar bls. 8.
Fisk Seafood kaupir
í Grundarfirði
Fyrirhugað er að hefja í næstu viku
sauðfjárslátrun í Sláturhúsi Vestur-
lands í Brákarey. Öll tilskilin leyfi eru
til slátrunar í húsinu og því ekkert að
vanbúnaði að hefja þar starfsemi. „Við
erum hópur fólks úr héraði sem hef-
ur undirbúið þetta að undanförnu og
búið er að taka húsið á leigu af eigend-
um þess sem ekki höfðu sjálfir tök á
að nýta það. Nú er ákveðið að hefja
slátrun í næstu viku og að hún verði
komin á fullt mánudaginn 25. sept-
ember,“ segir Þorvaldur T Jónsson í
Hjarðarholti í samtali við Skessuhorn,
en hann er í forsvari fyrir undirbún-
ingshópinn.
Þorvaldur segir að mikil þörf sé fyr-
ir starfsemi af þessu tagi í héraðinu
og þrýstingur á að aðstaðan og leyf-
ið verði nýtt. „Við tökum sláturhús-
ið á leigu til reynslu en ef vel geng-
ur verður þetta framtíðarrekstur. Við
byrjum á dilkaslátrun núna, en áætl-
um að hægt verði að taka stórgripi til
slátrunar síðar í haust. Þá höfum við í
hyggju að bæta vinnsluna og munum
að líkindum bæta við frystigámum til
að hægt sé að geyma kjöt tímabund-
ið. Við sjáum þetta engu að síður fyrir
okkur sem þjónustusláturhús þar sem
bændur koma sjálfir með féð til slátr-
unar, kjötið verði látið hanga í 2-3 daga
en verði þá tekið og bændur sjái sjálfir
um sölu þess.“ Þorvaldur gerir ráð fyr-
ir að til að byrja með verði slátrað 80
lömbum á dag og að 5-6 muni starfa
við slátrun. Leyfi er þó til auka veru-
lega við þann fjölda, eða allt upp í 300
dilka á dag og mun eftirspurnin ráða
því hvort bætt verði við. Jón Eyjólfs-
son á Kópareykjum verður sláturhús-
stjóri. „Við erum búin að manna þetta
að hluta en vantar enn tvo vaska menn
í slátrunina,“ segir Þorvaldur.
Sláturpantanir eru teknar á netfang-
ið fyrirspurnir@slaturhus.is en einnig
gefur Þorvaldur nánari upplýsingar í
síma 853-6464. mm
Bændur taka Sláturhús
Vesturlands á leigu
Forráðamenn Lindex á Íslandi hafa
ákveðið að opna nýja verslun á
Akranesi laugardaginn 4. nóvember
næstkomandi. Albert Þór Magnús-
son, umboðsaðili Lindex á Íslandi,
segist í samtali við Skessuhorn vera
spenntur fyrir þessu verkefni. Lin-
dex er ein stærsta tískufatakeðja
Norður-Evrópu með um 500 versl-
anir í 16 löndum. Verslunin býður
tískufatnað fyrir konur, undirföt,
snyrtivörur og fylgihluti, sem og
föt fyrir börn og unglinga. Verslun
Lindex á Akranesi verður til húsa
að Dalbraut 1, við hlið bókaversl-
unar Eymundsson og Krónunn-
ar. Þar var síðast verslun árið 2008,
þegar tölvuverslun BT var þar til
húsa. Sjá nánar bls. 13.
kgk
Lindex verslun opnuð á Akranesi
Albert Þór Magnússon og
Lóa Dagbjört Kristinsdóttir
eru umboðsaðilar Lindex.
Hér eru þau við opnun
verslunar Lindex í Krossmóa í
Reykjanesbæ fyrr á þessu ári.