Skessuhorn


Skessuhorn - 13.09.2017, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 13.09.2017, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 201710 Dagana 6. og 7. september voru haldnir fundir í Stykkishólmi, Helgafellssveit og Grundarfirði um kosti og galla sameiningar þessara þriggja sveitarfélaga. Það voru ráð- gjafar frá KPMG sem stýrðu fund- unum. Mjög góða mæting var hjá íbúum sveitarfélaganna enda marg- ir sem láta sig málið varða. Farið var stuttlega yfir vinnuna sem farið hef- ur fram en einnig var farið yfir nið- urstöðu netkönnunar um áhuga íbúa fyrir sameiningu. Eftir það voru fundargestir látnir skrifa niður sínar hugmyndir og hvernig þeir sjá sam- einingarferlið fyrir sér. Þeir Sævar Kristinsson og Sveinbjörn Gríms- son frá KPMG fóru því með þykkan bunka af hugmyndum og útfærslum í farteskinu eftir þessa þrjá fundi. Það var sameiningarnefnd sem stóð fyrir fundinum en í henni eru þrír fulltrúar frá hverju sveitarfélagi. Nú mun KPMG nota sviðsmynda- sjónarmið þátttakenda í vinnunni sem framundan er áður en frekari kynningar fara fram. Meðfylgjandi myndir voru teknar á íbúafundinum í Grundarfirði. tfk Íbúafundir um sameiningu Vinnan í gangi. Það eru margir íbúar sem vilja frekari kynningu á verkefninu enda fjöldi spurninga sem vakna. Boðið var uppá kaffi og meðlæti á meðan vinnan fór fram. Íbúar höfðu margt til málanna að leggja og var skrafað á hverju borði. Golfklúbburinn Leynir og Akra- neskaupstaður skrifuðu síðast- liðinn fimmtudag undir samn- inga um uppbyggingu frístunda- miðstöðvar við Garðavöll á Akra- nesi. Þetta nýja hús verður rúm- lega þúsund fermetrar að flatar- máli og skiptist í 700 m2 jarðhæð og 310 m2 kjallara. Húsið verður byggt úr forsteyptum einingum og mun rísa á sömu lóð og núverandi klúbbhús Leynis er og stefnt er að því að það verði tilbúið til notkun- ar næsta sumar. Kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir að byggingakostn- aður verði um 300 milljónir króna. Að sögn Guðmundar Sigvalda- sonar, framkvæmdastjóra Leynis, vinna stjórnendur golfklúbbsins út frá þeim forsendum þegar kem- ur að endanlegum samningum við verktaka. Hann segir að ágæt til- boð hafi borist í flesta verkþætti, en ekki sé þó búið að ná samning- um um þá alla. Fjölnota hús Frístundamiðstöðin mun hýsa félagsstarf Leynis og aðra frístund- astarfsemi á vegum Akraneskaup- staðar og Íþróttabandalags Akra- ness. Fyrirkomulag eignarhalds er með þeim hætti að Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf. mun eiga húsið, Akraneskaupstaður leigir það af fasteignafélaginu og endur- leigir síðan til Leynis. Einkum er horft til þess að Leynir nýti húsið yfir sumarið en önnur félagsstarf- semi verði að auki yfir vetrartím- ann. Í húsinu verður m.a. fullbú- ið eldhús og veislusalur fyrir allt að 200 gesti og mun sú aðstaða því bætast í framboð veislu- og við- burðahúsnæðis í bæjarfélaginu. Á jarðhæð hússins verður afgreiðsla, skrifstofa, salerni, búningaaðstaða, veitingasalur og önnur stoðrými. Í kjallara verður heilsárs inniað- staða til golfæfinga og annarra frí- stunda ásamt geymslum og tækni- rými. Núverandi bílastæði munu öll nýtast. Ekki byrjað fyrr en allir samningar verða í höfn Þessa dagana eru útboð í gangi um ýmsa verkhluta við byggingu Frí- stundamiðstöðvarinnar og gera áætlanir golfklúbbsins og Akranes- kaupstaðar ráð fyrir að á næstu vik- um, þegar ásættanleg tilboð hafa borist í alla verkþætti, verði haf- ist handa við framkvæmdir. Byrjað verður að rífa núverandi klúbbhús og jarðvegsframkvæmdir hefjast í kjölfarið. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri gat þess við undirritun samninga í gamla golfskálanum að það væri mikil tilhlökkun meðal stjórnenda bæjarins og bæjarfulltrúa um þetta verkefni í ljósi þess að jákvæðni, metnaður og víðsýni hafi verið haft að leiðarljósi í gegnum allt undir- búningsferli að framkvæmd þessari. Sævar Freyr hrósaði stjórnendum Leynis fyrir frumkvæði, dugnað og metnað með verkefnið þar sem gott skipulag og vönduð vinna hefur farið fram. Golfklúbburinn Leynir mun á næstu vikum, þegar heildar- mynd á verkefnið verður komin, upplýsa frekar um framkvæmda- tíma og annað sem snýr að verk- efninu. Forsenda fyrir stórmót Félaga- og iðkendafjöldi í golfi er mjög vaxandi á Akranesi og núver- andi klúbbhús Leynis fyrir nokkru sprungið utan af starfseminni. Hreinlætisaðstöðu og fleiru er til að mynda ábótavant. Að vonum fagnar Guðmundur Sigvaldason, framkvæmdastjóri Leynis, þessum áfanga. Hann segir að auk þess að bæta aðstöðu félagsmanna í Leyni sé bætt aðstaða forsenda fyrir því að Leynir geti tekið að sér stórmót í golfi í framtíðinni. Golfsamband Íslands hafi í hyggju að setja ákveð- in gæðaviðmið sem útilokað var að Leynir gæti uppfyllt með þeirri að- stöðu sem nú er. Hins vegar sé sjálf- ur golfvöllurinn í röð þeirra bestu og ekkert því til fyrirstöðu að halda stórmót á vellinum. mm Skrifað undir samning um byggingu frístundamiðstöðvar við Garðavöll Byggð verður þúsund fermetra frístundamiðstöð við Garðavöll á sömu lóð og núverandi klúbbhús stendur. Tölvugerð mynd úr aðalsal nýju frístundamiðstöðvarinnar. Guðmundur Sigvaldason, framkvæmdastjóri Leynis, Þórður Emil Ólafsson, formaður stjórnar og Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri handsala samninga að aflokinni undirskrift. Viðstaddir athöfn þar sem skrifað var undir samninga voru m.a. fulltrúar bæjaryfirvalda, golfklúbbsins Leynis og starfsmenn á svæðinu.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.